Ferill 114. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 114 — 114. mál.
Fyrirspurn
til félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra um búningsaðstöðu og salerni.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
Hvað líður vinnu við endurskoðun á lögum, reglugerðum og reglum í tengslum við búningsaðstöðu og salerni á vinnustöðum, með tilliti til laga um kynrænt sjálfræði, sem boðuð var í svari við fyrirspurn á 150. löggjafarþingi (þskj. 1422, 729. mál)?
Skriflegt svar óskast.