Ferill 758. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1423  —  758. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um skilgreiningu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig skilgreinir ráðuneytið orðið kona?

    Samkvæmt 4. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022, fer forsætisráðuneytið með jafnréttismál, þar á meðal lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og lög um kynrænt sjálfræði. Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, tóku gildi 6. janúar 2021. Orðið kona er ekki skilgreint í lögunum og engin lagaleg skilgreining er til á því orði. Markmið laganna er að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.
    Í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 150/2020 kemur fram að með kyni í lögunum sé átt við konur, karla og fólk með hlutlausa skráningu kyns en í lögum nr. 80/2019, um kynrænt sjálfræði, er kveðið á um óskoraðan rétt einstaklinga til að skilgreina kyn sitt sem kona, karl eða kynhlutlaus. Miða lög um kynrænt sjálfræði að því að tryggja að kynvitund einstaklinga njóti viðurkenningar. Í þeim tilvikum sem réttaráhrif fylgja kyni einstaklinga gildir hin opinbera skráning kyns í þjóðskrá.
    Óski fyrirspyrjandi eftir upplýsingum um orðsifjar nafnorðsins kona og málfræðilega merkingu þess ber að beina fyrirspurn þess efnis að menningar- og viðskiptaráðherra sem fer með málefni íslenskunnar, sbr. 10. tölul. 9. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022.