Ferill 760. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1498  —  760. mál.




Svar


háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni um ráðningu starfsfólks með skerta starfsorku.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hver er stefna ráðuneytisins er varðar ráðningu starfsfólks með skerta starfsorku? Liggur sú stefna fyrir opinberlega og ef svo er ekki, hvaða ástæður liggja þar að baki?
     2.      Hefur ráðuneytið beitt sér fyrir því að undirstofnanir þess móti skýra stefnu við ráðningu starfsfólks með skerta starfsorku? Ef ekki, hvers vegna ekki? Hvaða undirstofnanir hafa mótað stefnu og hverjar ekki?
     3.      Hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess sett sér tölusett markmið varðandi fjölda starfa sem henta einstaklingum með skerta starfsorku? Ef ekki, mun ráðherra beita sér fyrir slíkri stefnumótun?
     4.      Hversu margt starfsfólk með skerta starfsorku er í hlutastarfi eða fullu starfi hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
     5.      Liggur fyrir mat á því hversu mörg störf eða hlutastörf, sem henta einstaklingum með skerta starfsorku, geti verið hjá ráðuneytinu eða undirstofnunum? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.


    Við vinnslu svarsins var safnað upplýsingum frá stofnunum sem heyra undir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og byggist svarið m.a. á þeim.
    Í mannauðsstefnu Stjórnarráðsins segir m.a. að allt starfsfólk eigi að hafa sömu möguleika á að geta nýtt hæfileika sína í starfi og eigi ekki að sæta mismunun af nokkrum toga. Á það m.a. við um starfsfólk með skerta starfsgetu. Þá er kveðið á um bann við mismunun á vinnumarkaði vegna skertrar starfsgetu og viðeigandi ráðstafanir atvinnurekenda vegna hennar í lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði, nr. 86/2018. Ráðuneytið fylgir framangreindri mannauðsstefnu og meginreglum laga um jafna meðferð á vinnumarkaði við ráðningar í störf, þ.m.t. að mismuna ekki umsækjendum um starf vegna skertrar starfsgetu.
    Þá er það stefna ríkisstjórnar samkvæmt stjórnarsáttmála að auðvelda þátttöku og endurkomu einstaklinga með skerta starfsgetu á vinnumarkað þannig að fólk hafi fjárhagslegan hag af atvinnuþátttöku og fái tækifæri á vinnumarkaði án þess að afkomuöryggi þeirra sé ógnað, sem og að auka þjónustu við þessa einstaklinga.
    Fjöldi starfsmanna með skerta starfsgetu hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti og stofnunum þess:
     *      Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti: einn starfsmaður í fullu starfi hefur verið ráðinn í gegnum úrræði Vinnumálastofnunar og annar starfsmaður er í endurkomu eftir langvarandi veikindi.
     *      Háskóli Íslands: fimm starfsmenn.
     *      Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís: fjórir starfsmenn.
     *      Háskólinn á Akureyri: einn starfsmaður.
     *      Háskólinn á Hólum: einn starfsmaður.
     *      Landbúnaðarháskóli Íslands: einn starfsmaður.
     *      Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins: einn starfsmaður.
     *      Fjarskiptastofa: enginn starfsmaður.
     *      Hugverkastofa: enginn starfsmaður.
     *      Menntasjóður námsmanna: enginn starfsmaður.
    Ráðuneytið og stofnanir á málefnasviði þess hafa hvorki mótað sér sérstaka stefnu um ráðningu starfsfólks né sett sér tölusett markmið um fjölda starfa sem henta einstaklingum með skerta starfsorku. Þá hefur ráðuneytið ekki beitt sér sérstaklega fyrir því að stofnanir ráðist í slíka stefnumótun. Hjá ráðuneytinu og stofnunum á málefnasviði þess liggur ekki fyrir greining á því hversu mörg störf eða hlutastörf henti einstaklingum með skerta starfsorku.