Ferill 1037. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1510  —  1037. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um almenningssamgöngur milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins.

Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.


     1.      Hvers vegna hefur tillögum starfshóps að úrbótum á almenningssamgöngum milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar, sem eiga við um sumarið 2024 annars vegar og næstu þrjú ár hins vegar, ekki verið skilað þrátt fyrir að skilafrestur sé liðinn?
     2.      Er hópurinn enn að störfum þrátt fyrir að skipunartími hans hafi verið til 30. september 2023?
     3.      Hvernig hyggst ráðherra bæta almenningssamgöngur til Keflavíkurflugvallar sumarið 2024 úr því að nefndar tillögur, sem áttu að liggja fyrir með rúmlega árs fyrirvara, liggja ekki fyrir?


Skriflegt svar óskast.