Ferill 1048. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1527  —  1048. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um gagnkvæma réttaraðstoð.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Hversu oft hefur íslenska ríkið óskað eftir framsali á ríkisborgara lands sem íslenska ríkið hefur gert samning við um gagnkvæma réttaraðstoð? Hversu oft hefur slíkri beiðni verið hafnað?
     2.      Hversu oft hefur þess verið óskað að íslenska ríkið framselji íslenskan ríkisborgara til lands sem íslenska ríkið hefur gert samning við um gagnkvæma réttaraðstoð? Hversu oft hefur slíkri beiðni verið hafnað?


Skriflegt svar óskast.