Ferill 1147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1822  —  1147. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um að tryggja áframhaldandi skólastarf Laugaskóla sem verður 100 ára 2025.


Flm.: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að tryggja að skólastarf haldist áfram í Framhaldsskólanum á Laugum (Laugaskóla), eina starfandi héraðsskóla landsins, sem verður 100 ára haustið 2025.

Greinargerð.


    Héraðsskólinn á Laugum hóf störf á Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu haustið 1925, þar sem Laugamönnum hefur tekist að halda úti samfelldu skólastarfi í bráðum 100 ár, en alls tíu héraðsskólar voru stofnaðir í héruðum landsins á sinni tíð. Með sameiningu Héraðsskólans á Laugum og Húsmæðraskóla Þingeyinga árið 1988 tók Framhaldsskólinn á Laugum til starfa og rekur þar þrjár heimavistir; Fjall (Draugastein), Álfastein og Tröllastein, og eru nemendur yfir 100 ár hvert.
    Tvær heimavista skólans eru reknar í húsnæði ríkisins, en sú stærsta er rekin í húsnæði Tröllasteins ehf. Sú heimavist er eina húsnæði skólans sem ekki er í eigu ríkisins og hefur skólinn leigt húsið, en leigusamningur um húsið rennur sitt skeið 1. júlí nk. og verður ekki endurnýjaður.
    Tröllasteinn er bygging á þremur hæðum með 35 tveggja manna herbergjum með baði. Auk þess er þar matsalur, notaður undir félagsaðstöðu fyrir nemendur og eldhús. Stærð hússins er 1.228 m2. Eftir að Tröllasteinn var byggður voru heimavistir skólans í eigu ríkisins, Fjall (Draugasteinn) og Álfasteinn, lagfærðar og þar gerð herbergi með baði. Á Fjalli eru 15 herbergi með rými fyrir 31 nemanda og í Álfasteini eru sjö herbergi með rými fyrir 14 nemendur. Auk þess eru í skólanum tveir óuppgerðir heimavistargangar. Í Dvergasteini eru átta eins manns herbergi án baðs og í Gamla skóla eru tíu eins manns herbergi án baðs og eru þeir gangar ekki í notkun fyrir nemendur skólans.
    Ljóst er að án Tröllasteins verður ekki rekinn framhaldsskóli á Laugum þar sem ekki er þá rými fyrir fleiri en um 40 nemendur auk þess sem þrengjast myndi um félagsaðstöðu nemenda. Þá hefur skólameistari einnig sagt það auðvelda gæslu á heimavist að þurfa ekki að reka fleiri en þrjár heimavistir og að geta haft marga nemendur á sömu vistinni (Tröllasteini), sérstaklega nýnema meðan þeir eru að átta sig á reglum, umgengni, hegðun, skólabrag og öðru því sem fylgir að vera í heimavistarskólanum Framhaldsskólanum á Laugum.
    Það er líka ljóst að núverandi eigendur Tröllasteins vilja losa það fjármagn sem hefur verið bundið í byggingunni og án nokkurrar arðsemi/arðgreiðslna frá aldamótum.
    Skólahald við Framhaldsskólann á Laugum er í uppnámi fyrir veturinn 2024–2025 og því mikilvægt að ríkið eignist heimavistina Tröllastein og leigi skólanum hana eins og annað skólahúsnæði á staðnum.
    Framhaldsskólinn á Laugum er mjög vinsæll skóli og þarf á hverju ári að hafna nemendum um skólavist. Skólinn hefur að auki sérstöðu meðal framhaldsskóla vegna þess náms- og kennsluumhverfis sem rekið er á Laugum og þess fjölbreytta starfs sem skólinn býður upp á.
    Skólastjórnendur og aðrir Laugamenn segja mjög mikilvægt fyrir Laugaskóla að koma eignarhaldi bygginganna sem hann notar á eina og sömu hendi og geta þannig tryggt húsnæði fyrir nemendur og þar með skólahald til framtíðar.
    Fullkomin óvissa er um áframhaldandi skólastarf á Laugum næsta haust, skólaárið 2025– 2026. Flutningsmaður telur að Framhaldsskólanum á Laugum yrði mikill sómi sýndur með því að ríkið eignaðist heimavistina Tröllastein á 100 ára afmælisárinu og þar með yrði stuðlað að áframhaldandi skólastarfi á Laugum.