Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 2  —  2. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.

Frá fjármála- og efnahagsráðherra.



I. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009.
1. gr.

    Í stað „21,40 kr.“, „18,60 kr.“, „26,20 kr.“ og „23,25 kr.“ í 2. mgr. 1. gr. laganna kemur: 22,20 kr.; 19,30 kr.; 27,15 kr.; og: 24,10 kr.

II. KAFLI
Breyting á lögum um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl., nr. 96/1995.
2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 3. gr. laganna:
     a.      Í stað „150,85 kr.“ í 1. tölul. kemur: 156,45 kr.
     b.      Í stað „137,40 kr.“ í 2. tölul. kemur: 142,50 kr.
     c.      Í stað „185,95 kr.“ í 3. tölul. kemur: 192,85 kr.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 9. gr. laganna:
     a.      Í stað „619,35 kr.“ í 1. tölul. kemur: 642,25 kr.
     b.      Í stað „34,45 kr.“ í 2. tölul. kemur: 35,70 kr.
     c.      Í stað „34,45 kr.“ í 3. tölul. kemur: 35,70 kr.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 10. gr. laganna:
     a.      Í stað „777,90 kr.“ í 1. tölul. kemur: 806,70 kr.
     b.      Í stað „43,15 kr.“ í 2. tölul. kemur: 44,75 kr.

5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 10. gr. d laganna:
     a.      Í stað „8 kr.“ í 1. tölul. kemur: 8,30 kr.
     b.      Í stað „12 kr.“ í 2. tölul. kemur: 12,45 kr.
     c.      Í stað „15 kr.“ í 3. tölul. kemur: 15,55 kr.
     d.      Í stað „20 kr.“ í 4. tölul. kemur: 20,75 kr.
     e.      Í stað „40 kr.“ í 5. og 6. tölul. kemur: 41,50 kr.
     f.      Í stað „60 kr.“ í 7. tölul. kemur: 62,20 kr.

III. KAFLI
Breyting á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993.
6. gr.

    Í stað „34,55 kr.“ í 14. gr. laganna kemur: 35,85 kr.

7. gr.

    Í stað „55,65 kr.“ og „58,95 kr.“ í 2. málsl. 1. mgr. 15. gr. laganna kemur: 57,70 kr.; og: 61,15 kr.

IV. KAFLI
Breyting á lögum um olíugjald og kílómetragjald, nr. 87/2004.
8. gr.

    Í stað „77,30 kr.“ í 4. mgr. 1. gr. laganna kemur: 80,15 kr.

9. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:
     a.      4. mgr. orðast svo:
    Kílómetragjald af gjaldskyldum bifreiðum skv. 1. tölul. 1. mgr., sbr. 3. tölul., skal vera sem hér segir:
Leyfð heildarþyngd
ökutækis, kg
Kílómetragjald, kr. Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg Kílómetragjald, kr.
10.000–11.000 0,41     21.001–22.000 10,00
11.001–12.000 1,29 22.001–23.000 10,90
12.001–13.000 2,16     23.001–24.000 11,75
13.001–14.000 3,06 24.001–25.000 12,64
14.001–15.000 3,92     25.001–26.000 13,49
15.001–16.000 4,80     26.001–27.000 14,38
16.001–17.000 5,66     27.001–28.000 15,28
17.001–18.000 6,53 28.001–29.000 16,15
18.001–19.000 7,40 29.001–30.000 17,00
19.001–20.000 8,25 30.001–31.000 17,87
20.001–21.000 9,17 31.001 og yfir 18,73
     b.      6. mgr. orðast svo:
    Sérstakt kílómetragjald af gjaldskyldum ökutækjum skv. 2. mgr. skal vera sem hér segir:
Leyfð heildarþyngd
ökutækis, kg
    Kílómetragjald, kr.     Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg Kílómetragjald, kr.
5.000–6.000 12,29     18.001–19.000 32,45
6.001–7.000 13,29     19.001–20.000 33,92
7.001–8.000 14,32     20.001–21.000 35,40
8.001–9.000 15,33     21.001–22.000 36,89
9.001–10.000 16,32     22.001–23.000 38,32
10.001–11.000 17,77     23.001–24.000 39,79
11.001–12.000 19,67     24.001–25.000 41,28
12.001–13.000 21,57     25.001–26.000 42,75
13.001–14.000 23,44     26.001–27.000 44,21
14.001–15.000 25,34     27.001–28.000 45,69
15.001–16.000 27,20     28.001–29.000 47,17
16.001–17.000 29,09     29.001–30.000 48,64
17.001–18.000 30,99     30.001–31.000 50,07
31.001 og yfir 51,56

V. KAFLI
Breyting á lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku-
og tengiltvinnbifreiða, nr. 101/2023.

10. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 6. gr. laganna:
     a.      Í stað „6 kr.“ í 1. tölul. kemur: 6,20 kr.
     b.      Í stað „2 kr.“ í 2. tölul. kemur: 2,05 kr.

11. gr.

    Í stað „10.000 kr.“ og „5.000 kr.“ í 2. málsl. 1. mgr. 7. gr. laganna kemur: 10.370 kr.; og: 5.185 kr.

VI. KAFLI
Breyting á lögum um bifreiðagjald, nr. 39/1988.
12. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
     a.      Í stað „20.500 kr.“ og „181 kr.“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 21.260 kr.; og: 188 kr.
     b.      Í stað „20.500 kr.“ og „149 kr.“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 21.260 kr.; og: 154 kr.
     c.      Í stað „20.500 kr.“ og „149 kr.“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: 21.260 kr.; og: 154 kr.
     d.      Í stað „71.160 kr.“, „2,99 kr.“ og „111.340 kr.“ í 4. mgr. kemur: 73.795 kr.; 3,10 kr.; og: 115.460 kr.

VII. KAFLI
Breyting á lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald, nr. 99/1999.
13. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
     a.      Í stað „4.770.000 kr.“ í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 4.961.000 kr.
     b.      Í stað „0,03250%“ í a-lið 1. tölul. 1. mgr. kemur: 0,03140%.
     c.      Í stað „4.770.000 kr.“ í 2. tölul. 1. mgr. kemur: 4.961.000 kr.
     d.      Í stað „1.060.000 kr.“ í 3. tölul. 1. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
     e.      Í stað „2.650.000 kr.“ í 4. tölul. 1. mgr. kemur: 2.756.000 kr.
     f.      Í stað „2.650.000 kr.“ í 6. tölul. 1. mgr. kemur: 2.756.000 kr.
     g.      Í stað „4.770.000 kr.“ í 7. tölul. 1. mgr. kemur: 4.961.000 kr.
     h.      Í stað „4.770.000 kr.“ í 8. tölul. 1. mgr. kemur: 4.961.000 kr.
     i.      Í stað „4.780.000 kr.“, „6.360.000 kr.“, „10.844.000 kr.“, „13.992.000 kr.“ og „17.490.000 kr.“ í 9. tölul. 1. mgr. kemur: 4.971.000 kr.; 6.614.000 kr.; 11.278.000 kr.; 14.552.000 kr.; og: 18.190.000 kr.
     j.      Í stað „4.770.000 kr.“ í 12. tölul. 1. mgr. kemur: 4.961.000 kr.
     k.      Í stað „1.060.000 kr.“ í 13. tölul. 1. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
     l.      Í stað „1.060.000 kr.“ í 14. tölul. 1. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
     m.      Í stað „1.590.000 kr.“ í 15. tölul. 1. mgr. kemur: 1.654.000 kr.
     n.      Í stað „1.060.000 kr.“ í 2. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
     o.      Í stað „2.157.000 kr.“ í 5. mgr. kemur: 2.243.000 kr.
     p.      Í stað „567.000 kr.“, „1.510.000 kr.“, „4.530.000 kr.“, „8.305.000 kr.“ og „11.955.000 kr.“ í 6. mgr. kemur: 590.000 kr.; 1.570.000 kr.; 4.711.000 kr.; 8.637.000 kr.; og: 12.433.000 kr.
     q.      Í stað „189.000 kr.“, „317.000 kr.“, „697.000 kr.“, „1.134.000 kr.“, „1.638.000 kr.“ og „1.888.000 kr.“ í 7. mgr. kemur: 197.000 kr.; 330.000 kr.; 725.000 kr.; 1.179.000 kr.; 1.704.000 kr.; og: 1.964.000 kr.
     r.      Í stað „3.300.000 kr.“, „1.650.000 kr.“ og „550.000 kr.“ í 8. mgr. kemur: 3.432.000 kr.; 1.716.000 kr.; og: 572.000 kr.
     s.      Í stað „1.060.000 kr.“ í 9. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
     t.      Í stað „1.060.000 kr.“ í 10. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
     u.      Í stað „1.060.000 kr.“ í 11. mgr. kemur: 1.102.000 kr.
     v.      Í stað „0,00174%“ í 13. mgr. kemur: 0,00180%.
     w.      Í stað „0,00174%“ og „250.000 kr.“ í 14. mgr. kemur: 0,00180%; og: 500.000 kr.
     x.      Í stað „514.000 kr.“ í 15. mgr. kemur: 535.000 kr.
     y.      Í stað „514.000 kr.“ í 16. mgr. kemur: 535.000 kr.
     z.      Í stað „770.000 kr.“ tvívegis í 17. mgr. kemur: 801.000 kr.

14. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
     a.      Í stað „3.200.000 kr.“ í 1. tölul. 2. mgr. kemur: 3.320.000 kr.
     b.      Í stað „1.280.000 kr.“ í 2. tölul. 2. mgr. kemur: 1.320.000 kr.
     c.      Í stað „330.000 kr.“ í 3. tölul. 2. mgr. kemur: 340.000 kr.
     d.      Í stað „330.000 kr.“ í 3. mgr. kemur: 340.000 kr.
     e.      4. mgr. orðast svo:
                      Fastagjald fyrir mat á hæfi aðila til að fara með virkan eignarhlut í eftirlitsskyldum aðila er eftirfarandi:
                  1.      Í viðskiptabanka, sparisjóði, lánafyrirtæki eða vátryggingafélagi 1.860.000 kr.
                  2.      Í öðrum eftirlitsskyldum aðila 900.000 kr.
     f.      Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Eftirlitsskyldur aðili skal greiða eftirfarandi fastagjald fyrir mat á hæfi framkvæmdastjóra eða stjórnarmanns:
                  1.      Hæfismat á grundvelli skriflegra gagna 220.000 kr.
                  2.      Munnlegt hæfismat 340.000 kr.
     g.      6. mgr. orðast svo:
                      Gjaldskrá fyrir eftirlit skv. 1. mgr. og þjónustu skv. 6. mgr. skal birt í Stjórnartíðindum.

VIII. KAFLI
Breyting á lögum um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara, nr. 166/2011.
15. gr.

    Í stað „0,007%“ í 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: 0,0065%.

IX. KAFLI
Breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999.
16. gr.

    Í stað „14.093 kr.“ í 3. málsl. 1. mgr. 10. gr. laganna kemur: 14.614 kr.

17. gr.

    Í stað „og 2025“ í ákvæði til bráðabirgða VII í lögunum kemur: 2025 og 2026.

X. KAFLI
Breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.
18. gr.

    Í stað „og 2025“ í ákvæði til bráðabirgða XV í lögunum kemur: 2025 og 2026.

XI. KAFLI
Breyting á lögum um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987.
19. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða, skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga vera 1.133 kr. á mánuði árið 2026 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.

XII. KAFLI
Breyting á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023.
20. gr.

    Við 4. mgr. 20. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fjárhæð losunargjalds skv. 2. mgr. vegna gjaldskyldrar losunar sem á sér stað árið 2026 skal vera 10.123 kr. fyrir hvert tonn.

XIII. KAFLI
Breyting á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013.
21. gr.

    Í stað „21.400 kr.“ í 4. málsl. 1. mgr. 14. gr. laganna kemur: 22.200 kr.

XIV. KAFLI
Breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990.
22. gr.

    Í stað „og 2025“ í ákvæði til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 2025 og 2026.

23. gr.

    Á eftir 23. gr. a laganna kemur ný grein, 23. gr. b, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Markaðsgjald.

    Markaðsgjald, 0,05%, skal lagt á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds eins og hann er skilgreindur í III. kafla. Um álagningu og innheimtu markaðsgjalds fer að öðru leyti eftir ákvæðum laga þessara. Markaðsgjald má draga frá tekjum þess rekstrarárs þegar stofn þess myndaðist.

XV. KAFLI
Breyting á lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, nr. 60/2012.
24. gr.

    Í stað „2025“ í ákvæði til bráðabirgða III í lögunum kemur: 2026.

XVI. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.
25. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 66. gr. laganna:
     a.      4. tölul. fellur brott.
     b.      Í stað „1.–4. tölul.“ í 1. málsl. 5. tölul. kemur: 1.–3. tölul.

26. gr.

    4. málsl. 2. mgr. A-liðar 67. gr. laganna fellur brott.

27. gr.

    B-liður 68. gr. laganna fellur brott.

28. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XLI í lögunum:
     a.      Í stað „og 2025“ í 1.–5. mgr. kemur: 2025 og 2026.
     b.      Í stað „og 2024“ í 1.–5. mgr. kemur: 2024 og 2025.

29. gr.

    Í stað „2025“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða LXXXII í lögunum kemur: 2026.

XVII. KAFLI
Breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.
30. gr.

    2.–4. málsl. 1. mgr. 18. gr. laganna falla brott.

XVIII. KAFLI
Breyting á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002.
31. gr.

    Í stað „73 kr./kg“ í viðauka IV við lögin kemur hvarvetna: 88 kr./kg.

32. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á viðauka VI við lögin:
     a.      Tollskrárnúmerið 2903.5100 og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds fellur brott.
     b.      Í stað „260 kr./kg“ kemur hvarvetna: 300 kr./kg.

33. gr.

    Við viðauka X bætast eftirfarandi tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæðir úrvinnslugjalds:
     a.      2404.1211     208 kr./kg.
     b.      2404.1212     208 kr./kg.
     c.      2404.1221     208 kr./kg.
     d.      2404.1222     208 kr./kg.

34. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XI A við lögin:
     a.      Við viðaukann bætast eftirfarandi tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds:
                  1.      8507.2091 4 kr./kg.
                  2.      8507.2092 6 kr./kg.
                  3.      8507.8020 10 kr./kg.
     b.      Eftirfarandi tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds falla brott:
                  1.      8507.2031 4 kr./kg.
                  2.      8507.2032 6 kr./kg.
                  3.      8507.8010 10 kr./kg.

35. gr.

    Við viðauka XV við lögin bætist eftirfarandi tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds: 2903.5100 2,5 kr./kg.

36. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XIX við lögin:
     a.      Í stað „11 kr./kg“ undir tollskrárnúmerinu 8543.9009 kemur: 24 kr./kg.
     b.      Við bætast fjögur ný tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds:
                  1.      8543.9003 24 kr./kg.
                  2.      8544.4209 24 kr./kg.
                  3.      8711.6012 11 kr./kg.
                  4.      8711.6015 11 kr./kg.

XIX. KAFLI
Breyting á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997.
37. gr.

    Í stað „2025“ í ákvæði til bráðabirgða II í lögunum kemur: 2026.

XX. KAFLI
Breyting á lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, nr. 52/1989.
38. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 1. gr. laganna:
     a.      Í stað „19,82 kr.“ í 2. málsl. kemur: 20,73 kr.
     b.      Í stað „6,10 kr.“, „0,40 kr.“, „12,30 kr.“, „9,40 kr.“, „4,10 kr.“, „1,60 kr.“ og „0,60 kr.“ í 4. málsl. kemur: 7,00 kr.; 0,60 kr.; 15,00 kr.; 12,00 kr.; 5,50 kr.; 3,00 kr.; og: 2,50 kr.

XXI. KAFLI
Breyting á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.
39. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
     a.      Í stað „13.000 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 18.200 kr.
     b.      Í stað „12.000 kr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 16.800 kr.

40. gr.

    Í stað „40.000 kr.“ í 1. málsl. og „13.000 kr.“ í 2. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: 56.000 kr.; og: 18.200 kr.

41. gr.

    6. gr. laganna orðast svo:
    Þegar umsókn um leyfi til einkaskipta á dánarbúi er afhent sýslumanni skal um leið greiða 20.300 kr. sem skiptagjald í ríkissjóð.
    Þegar umsókn um leyfi til setu í óskiptu búi er afhent sýslumanni skal um leið greiða 11.200 kr. í ríkissjóð.

42. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
     a.      Í stað „2.700 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 3.800 kr.
     b.      Í stað orðanna „og löggeymslu“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: löggeymslu, búsetuleyfis og erfðaskiptayfirlýsingar.

43. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
     a.      Í stað „2.700 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 3.800 kr.
     b.      Í stað „5.400 kr.“ í 2. mgr. kemur: 7.500 kr.
     c.      Í stað „8.600 kr.“ í 3. mgr. kemur: 12.000 kr.

44. gr.

    Í stað „9.700 kr.“ í 12. tölul. 13. gr. laganna kemur: 13.600 kr.

45. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:
     a.      1. tölul. 1. mgr. orðast svo: Fyrir umsókn um borgaralega hjónavígslu 15.400 kr.
     b.      2. tölul. 1. mgr. orðast svo: Fyrir umsókn um lögskilnaðarleyfi 9.100 kr.
     c.      3. tölul. 1. mgr. orðast svo: Fyrir umsókn um leyfi til skilnaðar að borði og sæng 9.100 kr.
     d.      4. tölul. 1. mgr. orðast svo: Fyrir umsókn um ættleiðingarleyfi 7.500 kr.
     e.      Í stað „2.700 kr.“ í 7. tölul. 1. mgr. kemur: 3.800 kr.
     f.      Í stað „2.200 kr.“ í 8. tölul. 1. mgr. kemur: 3.100 kr.
     g.      Í stað „2.700 kr.“ í 9. tölul. 1. mgr. kemur: 3.800 kr.
     h.      Í stað a- og b-liðar 10. tölul. 1. mgr. koma fimm nýir stafliðir, svohljóðandi:
               a.      Fyrir umsókn um ríkisborgararétt 60.000 kr.
               b.      Fyrir umsókn um ríkisborgararétt fyrir barn 30.000 kr.
               c.      Sé sótt um ríkisborgararétt samtímis fyrir fullorðinn einstakling og börn hans skal innheimta eitt gjald 60.000 kr.
               d.      Fyrir tilkynningu um ríkisborgararétt 30.000 kr.
               e.      Fyrir tilkynningu um ríkisborgararétt fyrir barn 15.000 kr.
     i.      16. tölul. 1. mgr. orðast svo: Fyrir umsókn um könnunarvottorð 6.700 kr.
     j.      Við 1. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Fyrir skipun ráðsmanns, breytingar á störfum hans og við lausn hans frá störfum 21.600 kr.
     k.      Í stað „14.000 kr.“ í a-lið. 1. tölul. 2. mgr. kemur: 19.000 kr.
     l.      Í stað „28.000 kr.“ í b-lið 1. tölul. 2. mgr. kemur: 39.200 kr.
     m.      Í stað „7.500 kr.“ í c-lið 1. tölul. 2. mgr. kemur: 10.500 kr.
     n.      Í stað „6.000 kr.“ í a-lið 2. tölul. 2. mgr. kemur: 7.000 kr.
     o.      Í stað „12.000 kr.“ í b-lið 2. tölul. 2. mgr. kemur: 14.000 kr.
     p.      Í stað „3.000 kr.“ í c-lið 2. tölul. 2. mgr. kemur: 3.500 kr.
     a.      6.–9. tölul. 3. mgr. orðast svo:
         6.    Fyrir umsókn um dvalarleyfi greiðast eftirfarandi gjöld:
                      a.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku 80.000 kr.
                      b.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna náms 70.000 kr.
                      c.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar 110.000 kr.
                      d.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar við handhafa alþjóðlegrar verndar 90.000 kr.
                      e.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar barns 60.000 kr.
                      f.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna vistráðningar 120.000 kr.
                      g.      Fyrir umsókn um önnur dvalarleyfi 40.000 kr.
         7.    Fyrir umsókn um endurnýjun dvalarleyfis greiðast eftirfarandi gjöld:
                      a.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku 80.000 kr.
                      b.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna náms 70.000 kr.
                      c.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar 60.000 kr.
                      d.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar við handhafa alþjóðlegrar verndar 60.000 kr.
                      e.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar barns 40.000 kr.
                      f.      Fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna vistráðningar 120.000 kr.
                      g.      Fyrir umsókn um önnur dvalarleyfi 40.000 kr.
         8.    Fyrir umsókn um bráðabirgðadvalarleyfi 40.000 kr.
         9.    Fyrir umsókn um ótímabundið dvalarleyfi greiðast eftirfarandi gjöld:
                      a.      Fyrir fullorðinn einstakling 60.000 kr.
                      b.      Fyrir barn 30.000 kr.
     b.      10. tölul. 3. mgr. fellur brott.
     c.      Við 12. tölul. 3. mgr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Eigi skal þó greiða fyrir dvalarleyfi skv. 66. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sé samningur samkvæmt þeirri grein í gildi og þar kveðið á um undanþágu frá greiðslu.

46. gr.

    Í stað „3.200 kr.“ í 14. gr. b laganna kemur: 4.500 kr.

47. gr.

    Í stað „10.000 kr.“ í 1. málsl. 18. gr. laganna kemur: 14.000 kr.

XXII. KAFLI
Breyting á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008.
48. gr.

    Í stað „75.000 kr.“ í a-lið 2. mgr. 24. gr. laganna kemur: 100.000 kr.

XXIII. KAFLI
Breyting á lögum um gistináttaskatt og innviðagjald, nr. 87/2011.
49. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir 2. mgr. 3. gr. a skal innviðagjald fyrir hvern farþega um borð í skemmtiferðaskipi í millilandasiglingum á meðan skipið dvelur í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði ríkisins, sbr. 2. gr. tollalaga, nr. 88/2005, vera 2.000 kr. á árinu 2026.

XXIV. KAFLI
Breyting á lögum um Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun, nr. 38/2010.
50. gr.

    2. og 3. mgr. 5. gr. laganna falla brott.

XXV. KAFLI
Breyting á lögræðislögum, nr. 71/1997.
51. gr.

    50. gr. laganna fellur brott.

52. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2026.
    Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast 27. gr. gildi 1. janúar 2027. Við gildistöku ákvæðisins falla brott ákvæði B-liðar 68. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Ákvæðið skal þó halda gildi sínu um ákvörðun vaxtabóta fyrri ára, sbr. 1. mgr. 97. gr., sbr. og 2. mgr. 101. gr. tilvitnaðra laga.
    25.–26. gr. og 30. gr. koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda 2027 og á staðgreiðsluárinu 2026 eftir því sem við á.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu samhliða frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026. Tillögur þess hafa bæði áhrif á tekju- og gjaldahlið fjárlagafrumvarpsins.

2. Meginefni frumvarpsins.
    Í frumvarpinu er að finna eftirfarandi tillögur að lagabreytingum:
     .      Hækkanir á kolefnisgjaldi, olíugjaldi og kílómetragjaldi, kílómetragjaldi vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, almennu og sérstöku bensíngjaldi, bifreiðagjaldi og gjaldi af áfengi, tóbaki og nikótínvörum verði 3,7% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026. Sama gildir um gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra og sérstakt gjald til Ríkisútvarpsins.
     .      Breytingar á eftirlitsgjaldi og fastagjöldum vegna sérstakra aðgerða til að standa undir áætluðum kostnaði við rekstur Fjármálaeftirlitsins og skilavalds innan Seðlabanka Íslands.
     .      Breyting á gjaldhlutfalli vegna greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara í samræmi við áætlaðan rekstrarkostnað stofnunarinnar.
     .      Framlenging á bráðabirgðaákvæði þar sem kveðið er á um að Framkvæmdasjóði aldraðra sé heimilt að verja fé til að standa straum af rekstrarkostnaði hjúkrunarrýma fyrir aldraða.
     .      Lækkun á sóknargjöldum.
     .      Breytingar á fjárhæð losunargjalds samkvæmt lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
     .      Framlenging á bráðabirgðaákvæðum þar sem kveðið er annars vegar á um að starfsendurhæfingarsjóðir fái ekki tekjur af almennu tryggingagjaldi út árið 2026 og hins vegar að atvinnurekendur sem stunda sjálfstæða starfsemi og lífeyrissjóðir greiði áfram sama hlutfall af stofni til iðgjalds út árið 2026, eða 0,10%.
     .      Tímabundnar útreikningsreglur og viðmiðunarfjárhæðir barnabóta verði framlengdar óbreyttar um eitt ár.
     .      Tímabundnar útreikningsreglur og viðmiðunarfjárhæðir vaxtabóta verði framlengdar óbreyttar um eitt ár og bæturnar felldar brott frá og með 1. janúar 2027.
     .      Samsköttunarheimild hjóna og sambýlisfólks milli tveggja skattþrepa verði felld brott.
     .      Nýting persónuafsláttar til greiðslu fjármagnstekjuskatts verði felld brott.
     .      Breytingar á úrvinnslugjaldi sem lagt er á smurolíu, halógeneruð efnasambönd, HFO-efni (vetnisflúorolefín), einnota rafrettur, íhluti í margnota rafrettur, rafhlaupahjól, svifbretti og hleðslukapla fyrir rafbíla auk íhluta í lítil raftæki.
     .      Bráðabirgðaákvæði sem kveður á um heimild til að nota fé ofanflóðasjóðs til að taka þátt í greiðslu kostnaðar við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða er framlengt um eitt ár.
     .      Hækkun skilagjalds og umsýsluþóknunar á umbúðir úr stáli, áli, gleri og plastefni.
     .      Hækkun gjalda fyrir umsóknir um dvalarleyfi og ríkisborgararétt auk breytinga og hækkana á gjöldum fyrir umsóknir og þjónustu sýslumannsembættanna og Þjóðskrár Íslands.
     .      Hækkun skrásetningargjalds í opinbera háskóla.
     .      Tímabundin lækkun til eins árs innviðagjaldi sem skemmtiferðaskip í millilandasiglingum greiða fyrir hvern farþega á meðan skip dvelur í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði ríkisins.
     .      Framlög til Íslandsstofu verði ákveðin af Alþingi í fjárlögum ár hvert og ákvæði um markaðsgjald flutt efnislega óbreytt úr lögum um Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun, nr. 38/2010, yfir í lög um tryggingagjald, nr. 113/1990.

3. Nánar um einstaka liði frumvarpsins.
3.1. Verðlagsuppfærsla krónutöluskatta.
    Í frumvarpinu eru tillögur um 3,7% hækkun á svokölluðum krónutölusköttum í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarpsins. Er þá miðað við áætlaða tólf mánaða breytingu á vísitölu neysluverðs árið 2025 sem er 3,7% samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Þannig munu gjöldin halda verðgildi sínu milli ára í stað þess að rýrna að raunvirði. Breytingin nær til áfengis-, tóbaks- og nikótíngjalda, bensín-, olíu- og kolefnisgjalda, kílómetragjalds vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða og bifreiða- og kílómetragjalds, gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra og útvarpsgjalds. Um er að ræða aðgerð stjórnvalda á tekjuhlið ríkisfjármálanna sem miðar að því að draga úr þenslu og verðbólgu. Áætlað er að verðlagsuppfærslan skili ríkissjóði samtals um 4,3 milljörðum kr. að meðtöldum hliðaráhrifum á virðisaukaskatt. Þessar hækkanir munu óhjákvæmilega hafa áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs og eru þau áhrif áætluð 0,12%. Breytingar á útvarpsgjaldi og gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra hafa þó ekki áhrif á vísitölu neysluverðs. Gert er ráð fyrir því að hækkun á kolefnisgjaldi, vörugjaldi af bensíni, olíugjaldi, kílómetragjaldi og kílómetragjaldi vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða sem kveðið er á um í frumvarpi þessu verði felld brott nái frumvarp um upptöku kílómetragjalds vegna notkunar ökutækja fram að ganga á árinu 2026. Verði það raunin er áætlað að verðlagsuppfærsla annarra gjalda en þeirra sem felld verða niður skili ríkissjóði samtals um 2,3 milljörðum kr. að meðtöldum hliðaráhrifum á virðisaukaskatti og að áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs verði 0,06%.

3.2. Greiðsla kostnaðar vegna reksturs Fjármálaeftirlits og skilavalds.
    Lagt er til að gjöld vegna Fjármálaeftirlitsins og skilavalds Seðlabanka Íslands skv. 5. gr. laga um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald, nr. 99/1999, taki breytingum, að mestu leyti til hækkunar í takt við verðlagsþróun. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur Seðlabankans.

3.3. Greiðsla kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara.
    Lögð er til breyting á gjaldhlutfalli af álagningarstofni skv. 4. gr. laga um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara, nr. 166/2011. Gjaldinu er ætlað að standa undir kostnaði við rekstur stofnunarinnar og er lagt á gjaldskylda aðila, sbr. 1. mgr. 5. gr. laganna. Í 7. gr. laganna er kveðið á um að tekið skuli tillit til rekstrarafgangs eða rekstrartaps af starfsemi umboðsmanns skuldara við ákvörðun á fjárhæð gjalds fyrir næsta almanaksár. Útlán gjaldskyldra aðila 31. desember 2024 voru um 5.669 milljarðar kr. og áætlaður kostnaður vegna reksturs umboðsmanns skuldara verður um 370 millj. kr. Álagningarprósentan verður því 0,0065% á árinu 2026. Álagningarstofn gjaldsins er öll útlán gjaldskyldra aðila.

3.4. Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra.
    Lögð er til 3,7% hækkun á gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2026. Samkvæmt því verður gjaldið 14.614 kr. á hvern gjaldanda við álagningu opinberra gjalda á árinu 2026 vegna tekna ársins 2025. Áætlað er að hækkunin skili ríkissjóði um 133 millj. kr. viðbótartekjum á ári.

3.5. Sóknargjöld.
    Í frumvarpinu er lagt til að föst krónutala sóknargjalda lækki úr 1.221 kr. á mánuði samkvæmt lögum um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987, í 1.133 kr. fyrir árið 2026. Lögboðið framlag til sókna þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga breytist að öllu jöfnu í samræmi við áætlaða breytingu á meðaltekjuskattsstofni einstaklinga 16 ára og eldri, sem og fjölgun einstaklinga. Nú er hins vegar, eins og í fjárlögum fyrir árið 2025, með breytingu á lögum um sóknargjöld o.fl., gert ráð fyrir að fastsetja fjárhæð sóknargjalda. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir 3.298,4 millj. kr. framlagi til þeirra liða sem sóknargjald reiknast á að teknu tilliti til almennra aðhaldskrafna í forsendum frumvarpsins og nemur heildarlækkun sóknargjaldsins frá gildandi fjárlögum því 187 millj. kr. Lækkunin kemur til af því að við gerð fjárlagafrumvarps fyrir árið 2025 á 155. löggjafarþingi gerði Alþingi tillögu um 255,1 millj. kr. tímabundna hækkun sóknargjalda í samræmi við tillögur efnahags- og viðskiptanefndar í frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025 (2. mál, þskj. 2). Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2025 var gert ráð fyrir því að sóknargjöld yrðu 1.133 kr. á mánuði, en eftir tillögu Alþingis var gert ráð fyrir 88 kr. hækkun á sóknargjöldum sem leiddi alls til 255,1 millj. kr. hækkunar. Nú hefur þessi tímabundna hækkun verið felld niður.

3.6. Gjaldskyld losun gróðurhúsalofttegunda.
    Í frumvarpinu er lagt til að færa inn fjárhæð losunargjalds skv. 4. mgr. 20. gr. í lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023, þar sem kveðið er á um losunargjald sem lagt er á rekstraraðila starfsstöðva sem undanskildar hafa verið gildissviði viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir samkvæmt greininni, fyrir gjaldskylda losun sem á sér stað árið 2025. Í ljósi þess að losunargjaldið hefur einkenni skatts, sbr. 2. mgr. 77. gr. stjórnarskrárinnar, þarf að kveða á um fjárhæð þess í lögum og uppfæra gjaldið árlega og er því mælt fyrir um fjárhæð gjaldsins í frumvarpinu.
    Nauðsynlegt er að lögfesta fjárhæð losunargjalds vegna losunar á árinu 2026 í síðasta lagi 31. desember 2025 svo að rekstraraðilum starfsstöðva sem hafa verið undanskildar gildissviði viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir verði ljóst fyrir upphaf árs 2026 hver fjárhæð gjaldsins verður vegna losunar ársins. Lagt er til að fjárhæð losunargjalds vegna gjaldskyldrar losunar sem fram fer á árinu 2026 verði 10.123 kr. fyrir hvert tonn losunar gróðurhúsalofttegunda.
    Samkvæmt 5. mgr. 20. gr. laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir skal Umhverfisstofnun fyrir 31. maí ár hvert afhenda innheimtumanni ríkissjóðs skýrslu um magn gjaldskyldrar losunar á undangengnu ári. Innheimtumaður ríkissjóðs í umdæmi starfsstöðvar skal því næst, fyrir 1. júlí ár hvert, leggja á og innheimta losunargjald af starfsstöðvum sem hafa verið undanþegnar gildissviði viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir.
    Samkvæmt skýrslu Umhverfis- og orkustofnunar frá 30. maí 2025, um gjaldskylda losun gróðurhúsalofttegunda árið 2024, voru þrjár starfsstöðvar undanþegnar gildissviði viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir. Tvær starfsstöðvar losuðu meira en sem samsvarar því sem þær hefðu fengið úthlutað endurgjaldslaust í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og bar þeim því að greiða fyrir losun sína árið 2024. Fjárhæð losunargjalds nam hæst 139.076.352 kr. en lægst 18.492.624 kr. Ein starfsstöð losaði minna en hún hafði fengið úthlutað endurgjaldslaust í viðskiptakerfinu og bar því ekki að greiða losunargjald vegna losunar fyrir árið 2024.
    Í skýringum við 20. gr. frumvarps þess er varð að lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023, (543. mál á 154. lögþ.) kemur fram að losunargjald taki mið af meðalverði losunarheimilda á árstímabili sem lýkur 31. júlí árið áður en hin gjaldskylda losun á sér stað. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið reiknaði út meðalverð losunarheimilda sem meðalverð losunarheimilda í krónum á tímabilinu 1. ágúst 2024 til 31. júlí 2025.
    Í útreikningum ráðuneytisins kemur fram að meðalverð losunarheimilda á tímabilinu 1. ágúst 2024 til 31. júlí 2025 hafi verið 69,01 evra sem samsvarar 10.123 kr. miðað við meðaltal af miðgengi dagslokagengis evru hjá Seðlabanka Íslands á sama tímabili. Við útreikning meðalverðs var stuðst við söguleg gögn um viðskipti með losunarheimildir á téðu tímabili frá uppboðsvettvangi kauphallarinnar European Energy Exchange (EEX).
    Frá því að síðasti útreikningur var gerður vegna fjárhæðar losunargjalds 2025 hefur meðalverð losunarheimilda lækkað um 1,69 evrur, eða um 2,4%. Á sama tíma hefur meðalverð losunarheimilda í íslenskum krónum lækkað um 388 kr., eða um 3,7%. Meðalgengi evru á síðasta tímabili var 147,7 kr. en hafði lækkað niður í 146,58 kr. á þessu tímabili, sem samsvarar lækkun upp á 0,8%.
    Á tímabilinu 1. ágúst 2024 til 31. júlí 2025 voru 248 dagar þar sem viðskipti áttu sér stað. Meðalverð tímabilsins er reiknað út sem meðaltal af vegnu meðalverði dagsviðskipta, ef einhver voru.
    Lagt er til að framangreindir útreikningar ráðuneytisins verði lagðir til grundvallar við ákvörðun losunargjalds vegna gjaldskyldrar losunar á árinu 2026. Rekstraraðilar starfsstöðva sem undanskildar hafa verið gildissviði viðskiptakerfisins skv. 20. gr. í lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir skulu samkvæmt því greiða 10.123 kr. fyrir hvert tonn losunar gróðurhúsalofttegunda frá viðkomandi starfsstöð á tímabilinu 1. janúar 2025 til 31. desember 2025.

3.7. Sérstakt gjald vegna Ríkisútvarpsins.
    Lagt er til að sérstakt gjald vegna Ríkisútvarpsins hækki um 3,7% og fari úr 21.400 kr. í 22.200 kr. Áætlaðar viðbótartekjur af breytingunni nema um 243 millj. kr. árlega.

3.8. Starfsendurhæfingarsjóðir.
    Lögð er til framlenging á ákvæðum til bráðabirgða við lög um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða og lög um tryggingagjald sem kveða á um að starfsendurhæfingarsjóðir fái ekki tekjur af almennu tryggingagjaldi út árið 2026. Sambærileg ákvæði hafa verið í gildi fyrir árin 2013–2025. Eftir sem áður er gert ráð fyrir óbreyttri fjármögnun frá atvinnurekendum og lífeyrissjóðum, eða 0,10%. Þá er gert ráð fyrir því að samkomulagi milli fjármála- og efnahagsráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra annars vegar og VIRK starfsendurhæfingarsjóðs ses. hins vegar verði breytt til samræmis og að á árinu 2026 leggi ríkissjóður starfsendurhæfingarsjóði til framlag á fjárlögum.

3.9. Samnýting skattþrepa felld brott.
    Afnám samsköttunar milli tekjuskattsþrepa hefur í för með sér mikla einföldun á skattkerfinu. Með því er felld brott undanþága sem sett var árið 2010 til að milda áhrifin sem upptaka þriggja þrepa tekjuskattkerfis hafði á tekjuhæstu skattgreiðendurna. Samnýting skattþrepa felur í sér frávik frá þeirri einstaklingsskattlagningu sem grunngerð tekjuskattkerfisins byggist á. Nauðsynlegt er að taka tillit til þessarar grunngerðar og flækjustigsins sem núverandi fyrirkomulag hefur skapað með því að afnema undanþáguna.
    Í tengslum við upptöku þriggja þrepa tekjuskattskerfis árið 2010, með lögum um tekjuöflun ríkisins, nr. 128/2009, tekin upp sérstök ívilnandi regla sem nýtist hjónum og sambýlisfólki í þeim tilvikum þegar annað þeirra er í efsta tekjuskattsþrepi en hitt nær á sama tíma ekki að fullnýta miðþrepið. Reglan heimilar tilfærslu á tekjum úr efsta þrepi niður í miðþrep, en þó með hámarki. Lagt er til að heimild hjóna og sambúðarfólks til að samnýta skattþrep verði felld brott við álagningu 2027 vegna tekna ársins 2026. Uppgjör samsköttunar fer fram við álagningu opinberra gjalda einu sinni á ári. Afnám samnýtingar þrepa mun því ekki hafa áhrif á kaupmátt þeirra sem hafa notið hennar frá mánuði til mánaðar. Millifæranlegur persónuafsláttur milli hjóna og sambúðarfólks fellur ekki undir fyrirhugaðar breytingar og verður áfram heimill með óbreyttu sniði.
    Aðgerðin styður því almennt hlutverk hins opinbera að stuðla fremur að því að jafna tekjudreifinguna en auka hana. Auk þessa má gera ráð fyrir því að samsköttun auki kynjamisrétti þar sem konur hafa að jafnaði lægri laun en karlar og bera að auki meiri ábyrgð á ólaunuðum heimilis- og umönnunarstörfum. Þess ber þó að geta að í um helmingi tilvika þar sem tekjuhærri aðilinn nýtir þrep tekjulægri makans, þá hefur tekjulægri makinn tekjur yfir miðgildi launa á vinnumarkaði. Við álagningu opinberra gjalda 2025 nutu konur 19% af samsköttuninni en karlar 81%. Á eftirfarandi mynd má sjá hvernig efsti hluti tekjudreifingarinnar nýtur eftirgjafar tekjuskatts. Alls nam ívilnunin til þessa hóps 2,8 milljörðum kr. á tekjuárinu 2024.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Þá má benda á að í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um úrbætur á tekjuskattskerfi einstaklinga og barna- og vaxtabótum, sem unnin var að beiðni ráðherra fjármála- og efnahagsmála og birt á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins 27. nóvember 2015, er samsköttunarreglan gagnrýnd. Markmið hennar er talið óljóst þegar litið er til grunngerðar skattkerfisins og stefnu í skattamálum, hún gagnist aðeins allra tekjuhæstu heimilunum og ábatinn sem hún færir úr ríkissjóði til hvers heimilis í þessum hópi ákvarðist af tekjudreifingu hjónanna í hverju tilviki.
    Í sögulegu samhengi var haustið 2015 í frumvarpi til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016 (2. mál á 145. lögþ.) gert ráð fyrir að samsköttunarreglan félli brott ásamt miðþrepinu 2017 enda reglan einungis talin fela í sér tilfærslu á tekjum milli þriðja þreps og annars þreps. Efnahags- og viðskiptanefnd gerði breytingartillögu við 2. umræðu frumvarpsins þar sem fallið var frá brottfalli samsköttunar milli þrepa frá 1. janúar 2017 og gert ráð fyrir því að millifæranlegur stofn mundi ekki lengur takmarkast við 50% af ónýttu „plássi“ í neðra þrepi hjá tekjulægri makanum heldur yrði engin slík takmörkun. Það hefði jafngilt kerfisbreytingu úr einstaklingsskattlagningu yfir í fulla samsköttun á fjölskyldugrunni. Við 3. umræðu var síðan gerð sú breyting að viðhalda 50% hámarkinu og voru tekjuáhrifin af þeirri breytingu metin neikvæð um 3 milljarða kr. árið 2018.
    Vorið 2016 var að nýju lagt til í frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld (667. mál á 145. lögþ.) að fallið yrði frá þeim áformum að heimila hjónum og sambýlisfólki samsköttun, sem gilti þegar annar aðilinn var skattlagður í þriðja þrepi en hinn ekki, jafnframt því sem hinn tekjulægri fullnýtti ekki annað þrepið, frá 1. janúar 2017, við brottfall miðþreps tekjuskatts einstaklinga. Við þær aðstæður hefði sá tekjuhærri getað nýtt sem nemur helmingi af ónýttu tekjubili í öðru þrepi með millifærslu tekna úr þriðja þrepi í annað þrep. Tilfærslan var einungis heimil milli tveggja efri þrepanna og því rökrétt að fækkun skattþrepa í tekjuskatti einstaklinga á árinu 2017 úr þremur í tvö hefði í för með sér brottfall samsköttunarinnar. Tillagan náði ekki fram að ganga og í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar kom eftirfarandi fram: „Afstaða meiri hlutans er að mikilvægt sé að þessi heimild haldist inni og telur að þau sjónarmið sem bent hafi verið á vegi ekki eins þungt og þeir hagsmunir einstaklinga sem þarna búa að baki. Nefndin telur rétt að áfram verði heimilt að flytja ófyllt skattþrep þess hjóna sem lægri hefur tekjurnar til þess sem hærri tekjur hefur og leggur því til að 3. gr. og 5. gr. frumvarpsins falli niður.“
    Með lögum um breytingu á lögum um tekjuskatt og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 132/2019, var aftur komið á fót þriggja þrepa tekjuskattskerfi, í tveimur skrefum, með nýju lágtekjuþrepi í stað tveggja þrepa eins og áður var og með því var jafnframt dregið úr umfangi samnýtingar skattþrepa.

3.10. Ónýttur persónuafsláttur til greiðslu fjármagnstekjuskatts.
    Í fjármagnstekjuskatti er 300.000 króna frítekjumark fyrir vaxtatekjur ásamt arði og söluhagnaði sem á uppruna að rekja til skráðra fyrirtækja ásamt 50% undanþágu leigutekna af langtímaleigu íbúðarhúsnæðis og ná frítekjumörkin yfir stóran hóp framteljenda. Samhliða upptöku frítekjumarks fjármagnstekna og síðar tvöföldun þess árið 2020 hefur í raun verið komið á persónuafslætti fjármagnstekna og hefði verið rétt að endurskoða og fella brott það ákvæði sem kveður á um nýtingu ónýtts persónuafsláttar til greiðslu fjármagnstekjuskatts.
    Lagt er til að ákvæði 4. málsl. 2. mgr. A-liðar 67. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, sem kveður á um ráðstöfun 22/ 31 hluta af óráðstöfuðum persónuafslætti til greiðslu fjármagnstekjuskatts verði fellt brott. Persónuafsláttur er frádráttur sem einstaklingar geta notað til lækkunar á tekjuskatti af launum og lífeyri í staðgreiðslu. Við álagningu opinberra gjalda kemur persónuafsláttur til lækkunar á reiknuðum tekjuskatti ársins. Það sem ekki nýtist á móti reiknuðum tekjuskatti gengur til greiðslu útsvars. Sá persónuafsláttur sem þá er eftir færist til maka. Sé enn eftir ónýttur persónuafsláttur ganga 22/ 31 hlutar af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur. Það sem þá kann að standa eftir fellur niður. Óráðstafaður persónuafsláttur gengur því úr tekjuskattskerfinu yfir í fjármagnstekjuskattskerfið. Við upptöku fjármagnstekjuskatts má ráða að litið var svo á að þessi heimild kæmi að einhverju leyti í stað frítekjumarks fyrir fjármagnstekjur.

3.11. Vaxtabætur.
    Í lok árs 2010 voru gerðar margvíslegar breytingar á útreikningsreglum vaxtabóta. Þessar reglur áttu að gilda í tvö ár en hafa síðan verið framlengdar óbreyttar ár frá ári. Þá voru eignarmörk bótanna hækkuð um 10% og vaxtagjalda- og vaxtabótafjárhæðir um 5% í lok árs 2018. Jafnframt voru eignamörk bótanna hækkuð um 50% í lok árs 2022 með gildistöku 1. janúar 2023 sem hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Verði þessar útreikningsreglur ekki framlengdar nú taka eldri reglur við frá og með næstu áramótum með þeim afleiðingum að stuðningur ríkissjóðs í formi vaxtabóta dreifist á fleiri fjölskyldur, þ.e. fjölskyldur sem ekki njóta bóta í dag, en á sama tíma lækka bætur þeirra fjölskyldna sem notið hafa hámarksbóta (tekjulágar og eignalitlar fjölskyldur). Í ljósi þess að enn er unnið að heildarendurskoðun á húsnæðisstuðningi stjórnvalda á ýmsum sviðum (vaxtabótakerfi, húsaleigubótakerfi, félagslegri aðstoð o.fl.) er lagt til að útreikningsreglur vaxtabóta verði framlengdar um eitt ár í viðbót sem þýðir að reiknireglur og viðmiðunarfjárhæðir kerfisins verði þær sömu á árinu 2026 og á árinu 2025. Á þeim forsendum er áætlað að útgjöld vegna vaxtabóta nemi 800 millj. kr. á árinu 2026. Mikil hækkun fasteignamats ásamt hærri tekjum mun leiða til aukinna skerðinga á árinu 2026. Jafnframt hafa vextir og verðbólga lækkað á milli 2024 og 2025 sem minnkar stofn til útreiknings vaxtabóta á árinu 2026 enn frekar.
    Frá og með 1. janúar 2027 er gert ráð fyrir að vaxtabætur skv. B-lið 68. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, verði felldar brott. Ákvæðið mun þó halda gildi sínu vegna ákvarðana vaxtabóta fyrri ára, sbr. 1. mgr. 97. gr., sbr. og 2. mgr. 101. gr. laganna. Stjórnvöld hafa undanfarin ár beint húsnæðisstuðningi í önnur úrræði. Þannig býðst fyrstu kaupendum að nýta skattfrjálsa úttekt séreignarsparnaðar til kaupa á fyrstu íbúð og/eða ráðstöfunar iðgjalds inn á höfuðstól láns sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð, sbr. lög um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, nr. 111/2016. Samkvæmt lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, er markmið laganna að lækka húsnæðiskostnað efnaminni leigjenda með greiðslu húsnæðisbóta vegna leigu á íbúðarhúsnæði. Þá var hlutdeildarlánum til íbúðarkaupa komið á í árslok 2020 með breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998. Um er að ræða lán sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitir þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð og þeim sem ekki hafa átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum með það að markmiði að brúa eiginfjárkröfu við íbúðarkaup fyrir þá sem þess þurfa.

3.12. Barnabætur.
    Um ákvörðun barnabóta er fjallað í A-lið 68. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Barnabætur eru tekjutengdar bætur sem greiddar eru með börnum yngri en 18 ára. Fjárhæð barnabóta ræðst af fjölda og aldri barna á heimili, hjúskaparstöðu foreldra og tekna þeirra. Barnabætur eru tekjutengdar til að ná því fram að stuðningur barnabóta sé mestur hjá þeim fjölskyldum sem þurfa mest á stuðningi að halda en meginmarkmið barnabóta er að styðja við efnaminni foreldra.
    Með lögum um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 36/2024, voru gerðar ívilnandi og afturvirkar lagabreytingar á barnabótum sem tóku gildi í ársbyrjun 2024. Breytingar þessar voru hluti af stuðningi ríkisstjórnarinnar vegna langtímakjarasamninga á vinnumarkaði í mars 2024. Með breytingunum voru árleg framlög til stuðnings við barnafjölskyldur í gegnum barnabótakerfið aukin um 3 milljarða kr. á árinu 2024, til viðbótar við þegar lögfest áform og námu framlögin þá 19 milljörðum kr. Með lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025, nr. 127/2024, voru grunnfjárhæðir og tekju- og skerðingamörk barnabóta hækkuð og árleg framlög til stuðnings við barnafjölskyldur í gegnum barnabótakerfið með því aukin um 2 milljarða kr. á árinu 2025 og námu þau þá um 21 milljarði kr. á árinu 2025.
    Lagt er til að tímabundnar útreikningsreglur barnabóta verði framlengdar um eitt ár sem þýðir að reiknireglur og viðmiðunarfjárhæðir kerfisins verði þær sömu á árinu 2026 og á árinu 2025. Á þeim forsendum er áætlað að útgjöld vegna barnabóta nemi allt að 21 milljarði kr. á árinu 2026.

3.13. Úrvinnslugjald.
    Markmið Úrvinnslusjóðs er að skapa hagræn skilyrði fyrir endurnotkun og endurnýtingu úrgangs í þeim tilgangi að draga úr magni úrgangs sem fer til endanlegrar förgunar og tryggja viðeigandi förgun spilliefna. Til að stuðla að endurvinnslu og annarri endurnýtingu er úrvinnslugjald (kr./kg) lagt á vörur sem falla undir lög um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, hvort sem þær eru fluttar til landsins eða framleiddar hér á landi. Stjórn sjóðsins leggur, eftir því sem við á, fram tillögu til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingar á fjárhæð úrvinnslugjalds í samræmi við áætlun um tekjur af úrvinnslugjaldi og kostnað við úrvinnslu hvers flokks til að tryggja að tekjur og gjöld standist á og tillögu um nýjar gjaldskyldar vörur. Í skýringum við einstakar greinar frumvarpsins verður nánar vikið að þessum atriðum. Úrvinnslusjóður sendi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tillögur um breytingar á fjárhæðum úrvinnslugjalda og tillögur um nýjar gjaldskyldar vörur hinn 2. júlí sl. í samræmi við samþykkt þess efnis á fundi stjórnar Úrvinnslusjóðs 23. júní sl.
    Tillögurnar taka mið af áætlun um kostnað við úrvinnslu úrgangs þeirra vöruflokka sem falla undir lögin í samræmi við ákvæði í 4. gr. laganna um að hver vöruflokkur skuli vera fjárhagslega sjálfstæður. Bæði er um að ræða tillögur til hækkunar úrvinnslugjalds og um nýjar gjaldskyldar vörur.

3.14. Framlenging á heimild til að greiða fé úr ofanflóðasjóði vegna hættumats á eldgosum, vatnsflóðum og sjávarflóðum.
    Með lögum nr. 22/2012 um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997, var ofanflóðasjóði fyrst heimilt að styrkja hættumat eldgosa. Hinn 1. janúar 2015 tóku gildi lög nr. 127/2014 sem lögfestu ákvæði til bráðabirgða II um að taka þátt í greiðslu kostnaðar við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða frá 1. janúar 2015 til 31. desember 2017. Með gildistöku laga nr. 92/2017 var sú heimild framlengd til ársins 2022 þar sem um mjög viðamikið verkefni var að ræða og talið mikilvægt að því yrði fram haldið og með lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023, nr. 129/2022, var heimildin framlengd til loka árs 2023. Heimildin var síðan aftur framlengd, nú til loka ársins 2024, með lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2024, nr. 100/2023, og hún var aftur framlengd til loka ársins 2025 með lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025, nr. 127/2024. Á komandi árum og næstu áratugum má gera ráð fyrir að verkefni tengd hættumati muni halda áfram að skipa stórt hlutverk í starfsemi Veðurstofu Íslands.
    Meðal verkefna sem nauðsynlegt er að halda áfram með og ráðast í á næsta áratug eru eldgosahættumat nálægt þéttbýli, að greina áhrif og áhrifasvæði skotbombna frá eldgosum, meta áhrif loftslagsbreytinga á eldgosavá og hættu af völdum jökla sem hopa, ítarleg flóðagreining og hættumat ýmissa vatnasviða, mat á áhrifum loftslagsbreytinga á stærð og endurkomutíma flóða, reikningar á sjávarflóðum og sjávarföllum, útreikningar á flóðhæðum með ítarlegri skoðun fyrir nokkur svæði, endurskoðun mats á líklegri sjávarstöðuhækkun og að betrumbæta flóðbylgjureikninga. Vinnu við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða lýkur þó ekki á árinu 2030 en eftir þann tíma þarf að halda áfram að vinna að hættumati vegna jökulhlaupa, hættumati vegna flóða á landinu þá sérstaklega í og við þéttbýlisstaði auk reglulegrar endurskoðunar á hættu- og áhættumati sem liggur fyrir miðað við þær breytingar sem eiga sér stað á sjávarstöðu vegna loftslagsbreytinga og einnig vegna tækniframfara.
    Unnið er að hættumati vegna eldgosa, vatns- og sjávarflóða sem eru þau grunngildi sem þurfa að vera til staðar fyrir regluverk um náttúruvá. Í framhaldi af þeirri vinnu verða tekin næstu skref við gerð regluverks um aðra náttúruvá en ofanflóð þar sem kveðið verður á um hvernig fjármögnun þessara verkefna verður háttað. Þar sem fyrirséð er hins vegar að tímabundin heimild til að nota fé ofanflóðasjóðs til að taka þátt í greiðslu kostnaðar við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða rennur út hinn 31. desember 2025 er mikilvægt að framlengja þá heimild. Í frumvarpinu er því lagt til að framlengd verði heimild samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögunum til að nota fé ofanflóðasjóðs til að taka þátt í greiðslu kostnaðar við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða til 31. desember 2026.
    Gert er ráð fyrir að hlutur ofanflóðasjóðs í kostnaði við vinnu við næsta áfanga hættumats vegna eldgosa verði allt að 75 millj. kr. á ári miðað við verðlag við framlagningu frumvarpsins. Hlutur ofanflóðasjóðs í kostnaði við vinnu við gerð hættumats vegna vatnsflóða verður allt að 58 millj. kr. á ári miðað við verðlag við framlagningu frumvarpsins og við gerð hættumats vegna sjávarflóða allt að 29 millj. kr. á ári miðað við verðlag við framlagningu frumvarpsins. Framangreindar fjárhæðir eru þó allar með fyrirvara um árlegar fjárheimildir ofanflóðasjóðs. Ef vinna við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða frestast er hætta á að í náinni framtíð verði byggt á svæðum þar sem áhætta er talin of mikil fyrir slíka landnotkun, með ófyrirséðum afleiðingum.

3.15. Hækkun skilagjalds og umsýsluþóknunar á umbúðir úr stáli, áli, gleri og plastefni.
    Lagt er til að skilagjald á umbúðir úr stáli, áli, gleri og plastefni hækki úr 22 kr. á einingu í 23 kr. á einingu með virðisaukaskatti, um næstu áramót. Tilefni breytingarinnar er ósk Endurvinnslunnar hf. um hækkun en að hennar mati er æskilegt að verðgildi skilagjaldsins haldi sér svo að hvati til að skila umbúðum í réttan farveg sé til staðar. Með lögum nr. 30/2021 sem breyttu lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, nr. 52/1989, var afnumin heimild ráðherra til að hækka fjárhæðir í samræmi við vísitölu neysluverðs. Rökin fyrir breytingunni voru þau að fram hafi komið sjónarmið um að skilagjald beri einkenni skatta fremur en þjónustugjalda og því væri óvarlegt að hækka fjárhæðir með reglugerð. Réttara þótti að hækkanir á gjöldum verði áfram gerðar með lögum. Í umfjöllun um breytinguna í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 30/2021 var þó tekið fram að eftir sem áður megi stefna á að skilagjaldið haldi verðgildi sínu til að stuðla að hvata fyrir skilum og rétt að Endurvinnslan hf. geri stjórnvöldum áfram grein fyrir þörf á hækkun gjaldsins ef tilefni er til.
    Árangurinn sem kerfið nær við söfnun notaðra drykkjarumbúða hefur verið með ágætum. Skil hafa sögulega verið lengi í kringum 86–87% en árið 2024 voru skilin rúmlega 88% og skil ársins 2025 stefna í að geta verið umtalsvert hærri eða um 89,8%. Endurvinnslan hf. leggur áherslu á að bæta skil og uppfylla markmið um 90% skil í áli og plasti og 85% í gleri og er það mat hennar að hækkun skilagjaldsins muni hjálpa til að auka skil og ná þeim markmiðum. Er það m.a. í samræmi við nýtt markmið um 90% söfnun á skilagjaldsskyldum einnota flöskum úr plasti fyrir drykkjarvörur í reglugerð um meðferð umbúða og umbúðaúrgangs, nr. 609/1996.
    Jafnframt er lagt til að umsýsluþóknun á umbúðir úr stáli, áli, gleri og plastefni hækki. Með breytingunni fer umsýsluþóknunin fyrir umbúðir úr stáli í 7,00 kr., fyrir umbúðir úr áli í 0,60 kr., fyrir umbúðir úr gleri stærri en 500 ml í 15,00 kr., fyrir umbúðir úr gleri 500 ml og minni í 12,00 kr., fyrir umbúðir úr lituðu plastefni í 5,50 kr., fyrir umbúðir úr ólituðu plastefni í 3,00 kr., og fyrir umbúðir úr endurunnu ólituðu plastefni í 2,50 kr., án virðisaukaskatts. Skil í kerfinu hafa batnað sem hefur haft í för með sér að tekjur Endurvinnslunnar hf. lækkuðu árið 2024 um 70 millj. kr. Til að ná markmiðum um skil er mikilvægt að á næstu árum verði tekjuafgangur af rekstri fyrirtækisins svo að hægt sé að halda áfram að bæta þjónustu og endurnýja tæki og tól. Núverandi tekjustreymi byggist á fjárhæð umsýsluþóknunar sem hefur lítið breyst síðustu ár en án hækkunar á henni stefnir í töluvert tap á rekstri Endurvinnslunnar hf.
    Endurvinnslan hf. opnaði nýja stöð á Köllunarklettsvegi í árslok 2023 og verið er að innrétta nýja stöð í Austurhrauni sem áætlað er að opni fyrir árslok. Þá er Endurvinnslan hf. í viðræðum um stöð að Lambhagavegi auk þess sem fyrirhugað er að bæta aðstöðu og setja upp nýjar talningavélar á Akranesi, Selfossi og Akureyri. Þá keypti Endurvinnslan hf. á þessu ári 40 söfnunarkassa sem dreift hefur verið um landið.
    Kostnaður við söfnun og endurvinnslu plasts hefur einnig aukist þar sem dregið hefur úr eftirspurn eftir lituðu plasti auk þess sem markaðsverð á glæru plasti er á niðurleið og fyrirséð er að framboð á því muni aukast umtalsvert á næstu árum. Af þeim sökum er lagt til að umsýsluþóknun á plastefnum hækki. Endurvinnslan hóf árið 2023 útskipun glers til endurvinnslu sem er kostnaðarsöm, m.a. þar sem hækkun hefur orðið á kostnaði við flutning en glerinu er safnað saman hér á landi og það flutt til endurvinnslu í Evrópu. Hugmyndir hafa verið uppi um að reyna að endurvinna gler innanlands sem gæti leitt til sparnaðar í kostnaði vegna meðhöndlunar en þær hugmyndir eru enn á frumstigi.
    Markaðurinn með drykkjarvörur hefur tekið þeim breytingum síðustu ár að umbúðir hafa færst frá því að vera úr plasti eða gleri yfir í ál. Álumbúðir voru lengi vel undir 50% í hlutdeild drykkjarumbúða í skilakerfinu en eru nú um 70% af heildinni og fer vaxandi. Hærra hlutfall af framleiddu áli skilar sér inn í skilakerfið en af plasti og gleri sem leiðir til þess að heildarskil hafa aukist en tekjur af umsýsluþóknun hafa á sama tíma lækkað vegna breytinga á samsetningu umbúða. Þá hefur verið töluverð óvissa á heimsmörkuðum með ál.
    Að öllu þessu virtu hefur Endurvinnslan hf. lagt til að skilagjald og umsýsluþóknun hækki til að ná markmiðum um aukin skil í skilakerfinu og til að afgangur verði af rekstri til uppbyggingar á skilakerfinu og um leið til að bæta þjónustustigið.

3.16. Gjald fyrir umsóknir um dvalarleyfi og ríkisborgararétt.
    Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins kemur m.a. fram að ríkisstjórnin hyggist einfalda stjórnsýslu og samræma löggjöf og framkvæmd er varðar útlendingamál við reglur nágrannaríkjanna. Ljóst er að gjaldskrá Útlendingastofnunar vegna umsókna um dvalarleyfi er ekki í nokkru samræmi við gjaldskrár annars staðar á Norðurlöndunum og það sama á við um vegna umsókna um ríkisborgararétt. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir hlutfallslegu verðlagi eykst munurinn milli umsóknargjalda á Íslandi og gjalda annars staðar á Norðurlöndum enn frekar. Vísbendingar eru um að þessi lága gjaldskrá skapi ranga hvata, óeðlilegt álag á Útlendingastofnun og ytri áhrif á samfélagið allt. Við uppbyggingu á breyttum gjöldum vegna umsókna um dvalarleyfi er horft til Noregs en þar hefur tekist betur að stýra aðsókn í dvalarleyfi en á Íslandi. Þá eru mikil líkindi með lagalegri umgjörð útlendingamála hér á landi og í Noregi auk þess sem Noregur er auðlindadrifið hagkerfi með svipað tekjustig og Ísland.

3.17. Gjald fyrir umsóknir og þjónustu sýslumannsembættanna og Þjóðskrár Íslands.
Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um hagræðingu í ríkisrekstri, einföldun stjórnsýslunnar og stöðvun hallareksturs þykir tímabært að breyta og einfalda einstaka gjaldtökuheimildir, bæta við nýjum og hækka gjöldin almennt þannig að þau taki mið af verðlagsbreytingum undanfarinna ára og endurspegli betur tíma og kostnað ríkisins við að veita þjónustuna. Eru því lagðar til breytingar á gjaldtökuheimildum sýslumannsembættanna og Þjóðskrár Íslands. Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar til að styðja við markmið rafrænna þinglýsinga ásamt því að stuðla að því að framkvæmdin verði einfölduð, handtökum fækkað og dregið verði úr kostnaði ríkissjóðs. Í öðru lagi er lagt til að gjaldtökuákvæði sérlaga verði fellt brott úr þeim lögum og kveðið á um gjaldið í lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, ásamt því að fjárhæð gjaldsins verði hækkuð til samræmis við aðrar gjaldhækkanir. Í þriðja lagi er lagt til að gjöldin taki breytingum í samræmi við verðlagsþróun undanfarinna ára ásamt því að þau hækki hlutfallslega. Þær umframhækkanir eru lagðar til þannig að gjöldin endurspegli betur tíma og kostnað ríkisins við veitta þjónustu. Loks er lagt til að gjöldin verði innheimt við framlagningu umsókna hjá sýslumanni. Að baki þeirri tillögu liggja hagkvæmnissjónarmið auk sjónarmiða um einföldun á málsmeðferð og aukið gagnsæi í stjórnsýsluframkvæmd.

3.18. Hækkun skrásetningargjalds í opinbera háskóla.
    Lagt er til að skrásetningargjald í opinbera háskóla hækki úr 75.000 kr. í 100.000 kr. Árið 2013 samþykkti Alþingi hækkun á skrásetningargjöldum úr 60.000 kr. í 75.000 kr. fyrir hvern nemanda og var sú breyting rökstudd með tölulegum upplýsingum úr bókhaldi Háskóla Íslands.
    Ósk um hækkun skrásetningargjalda barst frá ríkisháskólunum með bréfi, dags. 16. maí 2025, til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Þar kemur fram að samkvæmt rauntölum úr bókhaldi Háskóla Íslands hefði skrásetningargjaldið þurft að vera um 180.000 kr. við Háskóla Íslands á síðastliðnu ári til að nægja fyrir útgjöldum sem því er ætlað að standa undir. Samkvæmt rauntölum úr bókhaldi Háskólans á Akureyri árið 2024 er kostnaðurinn um 160.000 kr. og hjá Landbúnaðarháskóla Íslands er fjárhæðin um 232.000 kr. fyrir árið 2024.

3.19. Tímabundin lækkun á innviðagjaldi.
    Lagt er til að innviðagjald sem greitt er fyrir hvern farþega á skemmtiferðaskipi í millilandasiglingum á meðan skip dvelur í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði ríkisins, verði lækkað úr 2.500 kr. í 2.000 kr. Um tímabundna lækkun er að ræða sem gildir einungis árið 2026. Með tímabundinni lækkun á innviðagjaldinu er komið til móts við óánægju rekstraraðila skemmtiferðaskipa í millilandasiglingum sem telja að of lítill fyrirvari hafi verið á gjaldtökunni þegar hún kom fyrst til framkvæmda með lögum um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld, nr. 140/2024. Á árinu 2024 hafi þeim verið gert að greiða gistináttaskatt sem var 1.000 kr. fyrir hverja gistináttaeiningu, sbr. lög um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld, nr. 102/2023. Með lögum nr. 140/2024 hafi gjaldtökunni hins vegar verið breytt frá 1. janúar 2025 og þeim gert að greiða innviðagjald að fjárhæð 2.500 kr. fyrir hvern farþega. Sé miðað við að tveir farþegar séu að jafnaði í hverri gistináttaeiningu má segja að gjald fyrir hvern farþega hafi hækkað úr 500 kr. í 2.500 kr. Eins og fyrr segir er einungis um tímabundna lækkun að ræða fyrir árið 2026. Komum ferðamanna með skemmtiferðaskipum til landsins hefur fjölgað umtalsvert á undanförnum árum og greiða rekstraraðilar skipanna takmarkaða skatta til íslenska ríkisins, helst þjónustugjöld á borð við hafnagjöld til viðkomandi hafna, þ.m.t. eftir atvikum farþegagjald, og vitagjald til ríkissjóðs. Í þessu felst ákveðið samkeppnisforskot skemmtiferðaskipa á innlenda ferðaþjónustu sem erfitt er að réttlæta þar sem farþegar skipanna njóta á sama hátt íslenskrar náttúru og innviða og aðrir ferðamenn sem eru hér á landi. Innviðagjaldinu er ætlað að jafna samkeppnisstöðu innlendra og erlendra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Samkvæmt upplýsingum frá tollyfirvöldum hefur álagning innviðagjalds á árinu 2025 gengið vel, skýrsluskil hafa verið góð og innheimta sömuleiðis. Rekstraraðilar skemmtiferðaskipa í millilandasiglingum ættu því að vera orðnir gjaldtökunni vel kunnugir.

3.20. Framlög til Íslandsstofu verði ákveðin af Alþingi í fjárlögum ár hvert.
    Gert er ráð fyrir því að fjárveiting til Íslandsstofu, sem ákvörðuð er af Alþingi með fjárveitingu í fjárlögum hverju sinni, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 5. gr. laga um Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun, nr. 38/2010, verði ekki ákvörðuð sem stærð af markaðsgjaldi, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna. Í 3. mgr. greinarinnar er kveðið á um það að tekjur Íslandsstofu skv. 2. tölul. 1. mgr. skuli aldrei vera lægri en sem nemi markaðsgjaldi skv. 2. mgr. sömu laga. Markaðsgjald, 0,05%, er lagt á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds eins og hann er skilgreindur í III. kafla laga um tryggingagjald, nr. 113/1990. Lagt er til að ákvæði 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2010 verði fellt brott og að tekjur Íslandsstofu hækki ekki í takt við áætlaða aukningu innheimts tryggingagjalds heldur fylgi fjárlagavinnu hvers árs.
    Samhliða er gert ráð fyrir því að ákvæði 2. mgr. 5. gr. verði fellt brott úr lögum um Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun, nr. 38/2010, og flutt efnislega óbreytt yfir í lög um tryggingagjald, nr. 113/1990. Með brottfalli 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2010 verður að telja að ákvæði 2. mgr. sömu greinar eigi sér frekar efnislega samsvörun í lögum nr. 113/1990 þar sem markaðsgjald er lagt á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds eins og hann er skilgreindur í lögum um tryggingagjald.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Efni frumvarpsins gefur tilefni til að meta hvort tillögur þess stangist á við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar. Þess var gætt við samningu frumvarpsins að efni þess og framsetning samrýmdist ákvæðum 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar.

5. Samráð.
    Við vinnslu þessa frumvarps var stuðst við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026. Við gerð þess var haft samráð við dómsmálaráðuneytið, félags- og húsnæðismálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og utanríkisráðuneytið.
    Í frumvarpinu er að finna breytingar á lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026. Vegna eðlis málsins og tengsla við frumvarp til fjárlaga voru frumvarpsáform, frummat á áhrifum og frumvarpsdrög ekki sett í samráðsferli samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna, sbr. 10. gr. reglna um starfshætti ríkisstjórnar, þar sem kveðið er á um að heimilt sé að víkja frá þessu ef mál eru sérlega brýn eða aðrar gildar ástæður eru fyrir hendi, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 1. gr., 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. og 2. málsl. 2. mgr. 9. gr. samþykktarinnar.

6. Mat á áhrifum.
6.1. Mat á fjárhagsáhrifum.
    Tillögur frumvarpsins eru af margvíslegum toga og sama má segja um áhrif þeirra á ráðstöfunartekjur, verðlag og kaupmátt.
    Í frumvarpinu er miðað við að krónutöluskattar hækki um 3,7% í samræmi við nýjustu verðbólguspá Hagstofu Íslands fyrir árið 2026. Hækkunin nær til áfengis-, tóbaks- og nikótíngjalda, bensín-, olíu- og kolefnisgjalda, kílómetragjalds vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða og bifreiða- og kílómetragjalds ásamt gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra og útvarpsgjalds. Áætlað er að verðlagsuppfærslan skili ríkissjóði samtals um 4,3 milljörðum kr. að meðtöldum hliðaráhrifum á virðisaukaskatt. Af því nemur hækkun útvarpsgjalds og gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra 376 millj. kr. en þau gjöld hafa ekki áhrif á vísitölu neysluverðs. Þá mun verðlagsuppfærsla krónutölugjalda auka tekjur ríkissjóðs um rúmlega 3,9 milljarða kr. Þessar hækkanir munu óhjákvæmilega hafa áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs og eru þau áhrif áætluð 0,12%. Í því samhengi ber að líta til þess að ráðstafanir sem auka tekjur ríkissjóðs draga úr þenslu í hagkerfinu og þar með úr almennum verðbólguþrýstingi. Þannig styður ríkisfjármálastefnan við verðstöðugleika og dregur úr þörf fyrir hækkun stýrivaxta. Þessi almennu áhrif vega þyngra gagnvart efnahagslegum stöðugleika en bein áhrif verðlagsuppfærslu krónutölugjalda á vísitölu neysluverðs. Gert er ráð fyrir því að hækkun á kolefnisgjaldi, vörugjaldi af bensíni, olíugjaldi, kílómetragjaldi og kílómetragjaldi vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða sem kveðið er á um í frumvarpinu verði felld brott nái frumvarp um upptöku kílómetragjalds vegna notkunar ökutækja fram að ganga á árinu 2026. Verði það raunin er áætlað að verðlagsuppfærsla annarra gjalda skili ríkissjóði samtals um 2,3 milljörðum kr. að meðtöldum hliðaráhrifum á virðisaukaskatt og að áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs verði 0,06%.
    Gjöld til að standa straum af kostnaði við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavaldi taka nokkrum breytingum. Gjöldin eru ýmist ákvörðuð sem hlutfall af eignum eða tekjum eftirlitsskyldra aðila eða sem föst fjárhæð. Fastar fjárhæðir hækka að mestu í samræmi við verðlag. Gjaldhlutföll eru að mestu óbreytt utan þess að gjald á viðskiptabanka lækkar um 0,11 prósentustig vegna hækkunar álagningarstofns. Áætlaður rekstrarkostnaður Fjármálaeftirlitsins árið 2026 er 3.575 millj. kr. Áætlað eftirlitsgjald vegna fjármögnunar Fjármálaeftirlitsins sama ár er 3.508 millj. kr. og áætlað er að aðrar tekjur verði 67 millj. kr. Áætlað gjald vegna fjármögnunar skilavalds er 105 millj. kr. sem endurspeglar áætlaðan rekstrarkostnað þess árið 2026. Til samanburðar var áætlaður rekstrarkostnaður Fjármálaeftirlitsins árið 2025 3.357 millj. kr. Áætlað var að það yrði fjármagnað með 3.298 millj. kr. eftirlitsgjaldi og öðrum tekjum upp á 59 millj. kr. Áætlað gjald vegna fjármögnunar skilavalds var samtals 94,5 millj. kr. sama ár sem endurspeglaði áætlaðan kostnað vegna skilavaldsins. Samtals hækkar því áætlaður rekstrarkostnaður fyrir Fjármálaeftirlit og skilavald um 6,62% milli ára sem helgast af almennum verðlagshækkunum og spá um verðlags- og launaþróun ársins 2026.
    Tillaga í frumvarpinu um óbreyttar viðmiðanir vaxtabótakerfisins leiðir til þess að útgjöld vegna vaxtabóta nema 800 millj. kr. á árinu 2026.
    Árleg framlög til stuðnings við barnafjölskyldur í gegnum barnabótakerfið verða óbreytt frá árinu 2025 og munu þau nema allt að 21 milljarði kr. á árinu 2026. Verði frumvarp þetta óbreytt að lögum ætti það að hafa jákvæð áhrif á ráðstöfunartekjur heimila og þá sérstaklega barnafólks og lág- og millitekjuhópa. Áhrif þess á stjórnsýslu ríkisins og stofnanir þess eru talin hverfandi. Á hinn bóginn mun ríkissjóður verða af nokkrum tekjum, a.m.k. til skemmri tíma, sem veikir afkomu hans. Þau áhrif ættu þó að óbreyttu að minnka þegar litið er yfir lengra tímabil með auknum ráðstöfunartekjum fjölskyldna sem skila munu auknum veltusköttum.
    Gert er ráð fyrir að hlutur ofanflóðasjóðs í kostnaði við vinnu við næsta áfanga hættumats vegna eldgosa verði allt að 75 millj. kr. á ári miðað við verðlag við framlagningu frumvarpsins. Hlutur ofanflóðasjóðs í kostnaði við vinnu við gerð hættumats vegna vatnsflóða verður allt að 58 millj. kr. á ári miðað við verðlag við framlagningu frumvarpsins og við gerð hættumats vegna sjávarflóða allt að 29 millj. kr. á ári miðað við verðlag við framlagningu frumvarpsins. Framangreindar fjárhæðir eru þó allar með fyrirvara um árlegar fjárheimildir ofanflóðasjóðs. Ef vinna við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða frestast er hætta á að í náinni framtíð verði byggt á svæðum þar sem áhætta er talin of mikil fyrir slíka landnotkun, með ófyrirséðum afleiðingum.
    Kostnaður við söfnun og endurvinnslu plasts hefur aukist og skil einnota umbúða fyrir drykkjarvörur hafa batnað sem hefur haft í för með sér að tekjur Endurvinnslunnar hf. lækkuðu árið 2024 um 70 millj. kr. Stefnir því í töluvert tap á rekstri félagsins. Gert er ráð fyrir því að hækkun skilagjalds og umsýsluþóknunar á umbúðir úr stáli, áli, gleri og plastefni muni leiða til aukinna skila í skilakerfinu, að afgangur verði af rekstri til uppbyggingar á skilakerfinu og um leið til að bæta þjónustustigið.
    Gert er ráð fyrir því að jákvæð tekjuáhrif á ríkissjóð vegna afnáms ónýtts persónuafsláttar til greiðslu fjármagnstekjuskatts nemi 600 millj. kr. á árinu 2027.
    Áætluð tekjuáhrif vegna áforma um að falla frá framkvæmd samsköttunar þrepa í tilviki hjóna og sambýlisfólks eru talin nema 2,8 milljörðum kr. á ári. Matið er miðað við framreiknaðar forsendur um laun og þrepamörk. Áhrif þessarar breytingar koma ekki til greiðslu fyrr en á árinu 2027 vegna tekna ársins 2026 og eru talin verða þau sömu í krónum talið, eða 2,8 milljarðar kr. árlega, á tímabilinu 2028–2030.
    Gert er ráð fyrir því að hækkun gjalda vegna umsókna um dvalarleyfi og ríkisborgararétt muni hafa í för með sér umtalsverða hækkun tekna í ríkissjóð, þrátt fyrir að hækkuninni sé einnig ætlað að draga úr tilhæfulausum umsóknum sem að sama skapi er gert ráð fyrir að muni hafa jákvæð áhrif á umsýslu Útlendingastofnunar. Sé tekið mið af fjölda umsókna ársins 2024, sem voru 10.120, og meðaltalsfjárhæð hækkaðra gjalda, sem nemur 68.333 kr., kemur tekjuaukning ríkissjóðs til með að nema rúmlega 500 millj. kr. miðað við óbreytta fjárhæð skv. 14. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.
    Gert er ráð fyrir því að hækkun gjalda vegna umsókna hjá sýslumanni og Þjóðskrá Íslands muni hafa í för með sér umtalsverða hækkun tekna ríkissjóðs. Sé tekið mið af meðalfjölda mála síðustu fjögurra ára og hækkun gjalda eins og lagt er til í frumvarpi þessu kemur tekjuaukning ríkissjóðs til með að nema rúmlega 500 millj. kr. miðað við óbreytt gjöld.
    Áætlaðar viðbótartekjur af hækkun skrásetningargjalds opinberra háskóla, úr 75.000 kr. í 100.000 kr., eru metnar tæplega 617 millj. kr.
    Gert er ráð fyrir að tímabundin lækkun á innviðagjaldi leiði til 380 millj. kr. lækkunar á tekjum ríkissjóðs. Áætlað er að tekjur af gjaldtökunni nemi 1,2 milljörðum kr. á árinu 2026, að teknu tilliti til lækkunar á gjaldinu.
    Gert er ráð fyrir því í forsendum fjárlaga fyrir árið 2026 að áhrif þeirrar breytingar að framlög til Íslandsstofu verði ákvörðuð af Alþingi, með fjárveitingu í fjárlögum hverju sinni, leiði til þess að framlög til Íslandsstofu verði 81 millj. kr. lægri en ella. Fjárveitingin á fjárlögum ársins 2025 nam 1.214 millj. kr.
    Aðrar breytingar hafa ýmist áhrif á tekju- og/eða gjaldahlið en samanlögð áhrif af þeim breytingum á afkomu ríkissjóðs eru talin óveruleg.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



6.2. Mat á jafnréttisáhrifum.
    Ekki hefur farið fram ítarleg greining á jafnréttisáhrifum frumvarpsins. Þó má leiða að því líkur að einhverjar tillögur þess geti haft ólík áhrif á karla og konur enda eru konur að meðaltali með lægri tekjur en karlar. Í rannsókn Hagstofu Íslands frá janúar 2025, á launamun kynjanna 2019–2023, kemur fram að munur á atvinnutekjum karla og kvenna árið 2023 hafi verið 21,9%. Kynbundin skipting vinnumarkaðarins í störf og atvinnugreinar skýri að miklu leyti þennan launamun. Samkvæmt álagningarskrá ársins 2025 voru 50% kvenna í neðri helmingi tekjudreifingarinnar og konur eru aðeins 30% einstaklinga í efstu tekjutíundinni. Hækkun krónutöluskatta og annarra skatta og gjalda kemur því að meðaltali hlutfallslega verr niður á konum en körlum.
    Hvað hækkanir á bifreiðagjaldi varðar verður að hafa í huga að mun fleiri karlar en konur eru skráðir eigendur fólksbíla og lítill munur er þar á eftir hjúskaparstöðu. Konur eiga almennt minni og sparneytnari fólksbíla og eignarhald þeirra er mjög lágt þegar kemur að öðrum tegundum ökutækja en mikill kynjamunur er í samgöngum sem atvinnugrein. Þá eru karlar líklegri til að ferðast lengri vegalengdir til og frá vinnu og gefa erlendar rannsóknir einnig vísbendingar um sambærileg samgöngumynstur þar sem athafnasvæði karla er stærra en kvenna. Þessar niðurstöður má m.a. finna í stöðugreiningu þáverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um samgöngur og jafnrétti frá ágúst 2021 og áfangaskýrslu um kynbundinn mun í notkun samgöngukerfisins frá apríl 2018. Í skýrslunni kemur einnig fram að konur vinni nær heimili en karlar og virðist þannig almennt ferðast styttri vegalengdir. Það má því ætla að karlar aki meira en konur og taki samkvæmt framansögðu í meira mæli á sig áðurnefnda krónutöluhækkun.
    Hækkun krónutöluskatta felur jafnframt í sér hækkun á gjöldum af áfengi, tóbaki og nikótínvörum. Samkvæmt upplýsingum á vef landlæknis neyta karlar meira áfengis en konur, bæði hvað varðar neyslu á a.m.k. einu glasi af áfengum drykk einu sinni í viku eða oftar síðustu 30 daga og ölvunardrykkju (fimm eða fleiri áfengir drykkir á einum degi síðustu 30 daga) en sá munur virðist þó fara minnkandi. Kynjamunur meðal þeirra sem reykja daglega virðist hins vegar ekki vera mikill og dagleg notkun nikótínvara virðist ívið meiri hjá körlum en konum.
    Gera má ráð fyrir því að framlenging á tímabundnum útreikningsreglum og viðmiðunarfjárhæðum vaxtabóta og barnabóta hafi einhver jafnréttisáhrif í för með sér. Samkvæmt álagningarskrá einstaklinga á árinu 2025 vegna tekjuársins 2024 er lítillega algengara að karlar séu á leigumarkaði en konur. Hvað eignarhald á fasteignum varðar eru einhleypar konur líklegri til að eiga fasteign en karlar sem eiga frekar fasteign í sambúð. Með tilliti til tekjutengingar vaxtabóta og barnabóta er líklegra að framlenging ákvæðanna gagnist konum betur en körlum.
    Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra og útvarpsgjald er lagt á einstaklinga sem eru 16 ára til og með 69 ára og eru með tekjustofn yfir reiknuðum skattleysismörkum. Þar sem konur eru að meðaltali með lægri tekjur en karlar má búast við að hlutfallslega greiði þær konur sem eru með tekjur yfir skattleysismörkum að jafnaði hærri prósentu af launum sínum en karlar.
    Regla 4. tölul. 1. mgr. 66. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, nýtist hjónum í þeim tilvikum þegar annað hjóna er í efsta tekjuskattsþrepi en hitt nær á sama tíma ekki að fullnýta miðþrepið. Reglan heimilar tilfærslu á tekjum úr efsta þrepi niður í miðþrep, með þaki þó. Gera má ráð fyrir því að ákvæðið auki kynjamisrétti þar sem konur hafa að jafnaði lægri laun en karlar, vinna færri stundir og inna því oft á tíðum af hendi stærri hluta ólaunaðra heimilis- og umönnunarstarfa. Þar sem karlar eru tekjuhærri í u.þ.b. 3/ 4 sambanda þá er þetta aðgerð sem gagnast körlum í meira mæli en konum. Ráðstöfunartekjur tekjuhærri einstaklingsins, í flestum tilvikum karlsins, aukast en tekjur tekjulægri einstaklings, þ.e. í flestum tilvikum konunnar, haldast óbreyttar. Þetta þýðir að karlar fá skattaívilnun sem byggist á vinnu og launum kvenna, ráðstöfunartekjur þeirra aukast og launabil á milli kynja eykst sem er þvert á markmið um efnahagslegt jafnræði á milli karla og kvenna. Út frá jafnréttissjónarmiðum skiptir máli að skattkerfi séu ekki með innbyggðan hvata sem getur dregið úr atvinnuþátttöku eða fjárhagslegu sjálfstæði. Samsköttunin felur í sér hvata fyrir konur að taka á sig í meira mæli en karlar ólaunuð heimilis- og umönnunarstörf sem birtist til að mynda í háu hlutfalli kvenna í hlutastarfi. Af þeim sem nutu samsköttunar á tekjuárinu 2024 voru karlar í 81% tilfella sem nutu lækkunar á tekjuskattsstofni en konur í einungis 19% tilfella. Samsköttunin dregur því úr efnahagslegu jafnrétti á milli kynja og fjárhagslegu sjálfstæði kvenna ásamt því að stuðla að hefðbundinni verkaskiptingu inni á heimilum þar sem þær skyldur lenda í meiri mæli á konum en körlum. Áhrif millifærslu á milli skattþrepa eru því til þess fallin að auka kynjamisrétti.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Í greininni er lagt til að fjárhæðir kolefnisgjalds verði hækkaðar um 3,7% til samræmis við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands og forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.

Um 2.–5. gr.

    Í 2.–5. gr. er lagt til að áfengis-, tóbaks- og nikótíngjöld verði hækkuð. Um er að ræða 3,7% hækkun gjalda til samræmis við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands og forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.

Um 6. og 7. gr.

    Lagt er til að almennt vörugjald af bensíni hækki um 1,30 kr. á hvern lítra, úr 34,55 kr. í 35,85 kr., og að sérstakt vörugjald af blýlausu bensíni hækki um 2,05 kr. á hvern lítra, úr 55,65 kr. í 57,70 kr. Einnig er lagt til að sérstakt vörugjald á hvern lítra af öðru bensíni hækki um 2,20 kr., úr 58,95 kr. í 61,15 kr. Hækkunin nemur 3,7% og er í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands og forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.

Um 8. gr.

    Í greininni er lögð til hækkun á fjárhæð olíugjalds sem greiða skal í ríkissjóð sem vörugjald af gas-, dísil- og steinolíu skv. 1. gr. laga um olíugjald og kílómetragjald, nr. 87/2004. Lagt er til að gjaldið verði hækkað um 3,7% í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands og forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.

Um 9. gr.

    Hér er gerð tillaga um hækkun á fjárhæðum kílómetragjalds og sérstaks kílómetragjalds um 3,7% í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands og forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.

Um 10. og 11. gr.

    Gerð er tillaga um hækkun á fjárhæðum kílómetragjalds vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða um 3,7% í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands og forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.

Um 12. gr.

    Lagt er til að bifreiðagjald hækki um 3,7% í ljósi verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands og forsendna fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.

Um 13. gr.

    Í greininni eru lagðar til breytingar á 5. gr. laga um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald, þar sem kveðið er á um gjaldskylda aðila, álagningarstofn og hlutföll álagðs eftirlitsgjalds.
    Þær breytingar sem lagðar eru til endurspegla almennar verðlagshækkanir sem orðið hafa á árinu og spá fyrir verðlags- og launaþróun ársins 2026. Áætlað eftirlitsgjald ársins 2026 er samtals að fjárhæð 3.508 millj. kr. Rekstraráætlun gerir ráð fyrir að aðrar tekjur nemi 67 millj. kr. og er áætlaður rekstrarkostnaður Fjármálaeftirlitsins fyrir árið 2026 alls 3.575 millj. kr. Fastagjöld hækka í samræmi við verðlag en gjaldhlutföll eru að mestu óbreytt.
    Áætlað gjald vegna fjármögnunar skilavalds er samtals 105 millj. kr. sem endurspeglar áætlaðan kostnað vegna skilavaldsins. Gjaldhlutföll hækka um 3,4% og fastagjöld annarra aðila en viðskiptabanka eru hækkuð.

Um 14. gr.

    Í greininni eru lagðar til breytingar á 2., 3., 4. og 6. mgr. 7. gr. laga um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald auk þess sem lagt er til að ný málsgrein bætist við greinina.
    Gjöld í 2., 3. og 4. mgr. eru að mestu hækkuð í samræmi við verðlagsbreytingar.
    Tilgangurinn með þeirri breytingu sem lögð er til á 4. mgr. 7. gr. er að samræma gjaldtöku í formi fastagjalda vegna mats á hæfi til að fara með virkan eignarhlut í eftirlitsskyldum aðilum, þ.e. annars vegar í viðskiptabanka, sparisjóði, lánafyrirtæki eða vátryggingafélagi og hins vegar í öðrum eftirlitsskyldum aðilum, enda mat á hæfi til að fara með virka eignarhluti í eftirlitsskyldum aðilum framkvæmt með svipuðum hætti og út frá sömu forsendum og kröfum að teknu tilliti til tegundar og stærðar eftirlitsskylds aðila.
    Vegna mats á hæfi til að fara með virkan eignarhlut í öðrum eftirlitsskyldum aðilum en þeim sem eru nú taldir upp í 4. mgr. 7. gr. hefur Seðlabankinn heimild til að taka tímagjald samkvæmt gjaldskrá, sbr. 5. mgr. 7. gr. Aðrir eftirlitsskyldir aðilar sem hér um ræðir eru m.a. aðilar skv. III. kafla laga um útgáfu og meðferð rafeyris, nr. 17/2013, II. kafla laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, II. kafla laga um greiðsluþjónustu, nr. 114/2021, I. kafla laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021, og II. kafla laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021. Lagt er til að fastagjald fyrir mat á hæfi aðila til að fara með virkan eignarhlut í framangreindum aðilum verði 900.000 kr.
    Í greininni er einnig lagt til að bætt verði við nýrri 5. mgr. í 7. gr. þar sem kveðið verði á um fastagjald fyrir mat á hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna eftirlitsskyldra aðila. Í ýmsum sérlögum er kveðið á um sérstakar skyldur Fjármálaeftirlitsins að því er varðar mat á hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna eftirlitsskyldra aðila. Umtalsverð vinna fer fram hjá Seðlabankanum í tengslum við slíkt mat, en mismikill tími getur farið í að meta hæfi hvers og eins, auk þess sem stjórnarskipti hjá einstökum eftirlitsskyldum aðilum eru mistíð. Með hliðsjón af ólíku umfangi og tíðni er lagt til að samkvæmt nýrri 5. mgr. 7. gr. verði tekið fastagjald fyrir mat á hæfi þessara aðila. Ákvæðið gerir ráð fyrir því að tekið verði gjald fyrir hvern verkþátt, þannig að gjald verði tekið fyrir mat sem framkvæmt er á grundvelli skriflegra gagna og annað gjald fyrir munnlegt hæfismat. Í ákvæðinu er lagt til að fastagjald fyrir mat á grundvelli skriflegra gagna verði 220.000 kr. og fyrir munnlegt hæfismat 340.000 kr. Framangreindar breytingar á 4. mgr. 7. gr. og ný 5. mgr. fela í sér samræmingu auk þess að leiða til fyrirsjáanleika og gagnsæis fyrir markaðinn. Þetta fyrirkomulag hefur gefist vel, svo sem varðandi starfsleyfisumsóknir, sbr. 2. mgr. 7. gr. laganna.
    Lagt er til að skylda til að birta gjaldskrá í Stjórnartíðindum skv. 6. mgr. 7. gr., sem verður 7. mgr., verði takmörkuð við eftirlit skv. 1. mgr. og þjónustu skv. 6. mgr. Talið er ástæðulaust að birta gjaldskrá vegna annarra málsgreina í 7. gr. því fjárhæð gjalda samkvæmt þeim er tilgreind í þeim málsgreinum.

Um 15. gr.

    Lögð er til breyting á hlutfalli af álagningarstofni skv. 4. gr. laga um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara, nr. 166/2011, sem miðað er við þegar gjald sem ætlað er að standa undir kostnaði vegna reksturs umboðsmanns skuldara er lagt á gjaldskylda aðila, sbr. 1. mgr. 5. gr. laganna. Hlutfall gjaldsins lækkar frá árinu 2025 þar sem álagningarstofn þess hefur hækkað. Um nánari skýringar vísast til kafla 3.3.

Um 16. gr.

    Hér er lagt til að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra samkvæmt lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, verði hækkað um 3,7% og nemi 14.614 kr. á hvern gjaldanda við álagningu opinberra gjalda á árinu 2026 vegna tekna ársins 2025.

Um 17. gr.

    Lögð er til framlenging á gildistíma ákvæðis til bráðabirgða VII í lögum um málefni aldraðra þar sem kveðið er á um að Framkvæmdasjóður aldraðra hafi tímabundna heimild til að kosta rekstur hjúkrunarrýma aldraðra.

Um 18. gr.

    Lagt er til að ákvæði til bráðabirgða XV í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, verði framlengt um eitt ár og gildi út árið 2026. Það mun leiða til þess að framlag lífeyrissjóða samkvæmt lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, nr. 60/2012, á árinu 2026 verður ekki núvirt við tryggingafræðilega athugun á fjárhag sjóðanna.

Um 19. gr.

    Í greininni er lagt til að föst krónutala sóknargjalda lækki úr 1.221 kr. á mánuði í 1.133 kr. fyrir árið 2026. Ákvörðuð lækkun nemur því 7,2%. Um nánari skýringar vísast til kafla 3.5.

Um 20. gr.

    Lagt er til að fjárhæð losunargjalds vegna gjaldskyldrar losunar gróðurhúsalofttegunda sem á sér stað árið 2026 skv. 4. mgr. 20. gr. laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023, verði 10.123 kr. fyrir hvert tonn. Lækkunin er til samræmis við breytingar á meðalverði losunarheimilda á Evrópska efnahagssvæðinu eins og það er á árstímabili sem lýkur 31. júlí árið áður. Gert er ráð fyrir að breytingin muni hafa óveruleg áhrif á tekjur ríkissjóðs. Um nánari skýringar vísast til kafla 3.6.

Um 21. gr.

    Lagt er til að sérstakt gjald sem ríkisskattstjóri leggur á samhliða álagningu opinberra gjalda skv. 1. mgr. 14. gr. laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013, og rennur til Ríkisútvarpsins verði breytt sem nemur verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands, sbr. einnig forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026, og fari úr 21.400 kr. í 22.200 kr.

Um 22. gr.

    Lögð er til framlenging á ákvæði til bráðabirgða IV í lögum um tryggingagjald sem kveður á um að starfsendurhæfingarsjóðir fái ekki tekjur af almennu tryggingagjaldi út árið 2026. Sambærilegt ákvæði hefur verið í gildi fyrir árin 2013–2025. Eftir sem áður er gert ráð fyrir að á árinu 2026 leggi ríkissjóður framlag að fjárhæð 1.262 millj. kr. til starfsendurhæfingarsjóða.

Um 23. gr.

    Um skýringar við greinina vísast til skýringa við 50. gr. frumvarpsins.

Um 24. gr.

    Lagt er til að ákvæði til bráðabirgða III í lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, nr. 60/2012, verði framlengt um eitt ár. Atvinnurekendur, þeir sem stunda sjálfstæða starfsemi og lífeyrissjóðir munu því greiða áfram sama hlutfall af stofni til iðgjalds skv. 3. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, á árinu 2026 eins og á árunum 2016–2025, eða 0,10%.

Um 25. og 30. gr.

    Lagt er til að frá og með 1. janúar 2026 verði samsköttunarheimild milli hjóna og sambýlisfólks felld brott sem gildir þegar annar aðilinn er skattlagður í þriðja þrepi en hinn ekki, jafnframt því sem hinn tekjulægri fullnýtir ekki annað þrepið. Við þær aðstæður hefur sá tekjuhærri getað nýtt sem nemur helmingi af ónýttu tekjubili í öðru þrepi með millifærslu tekna úr þriðja þrepi í annað þrep. Tilfærslan er einungis heimil milli tveggja efri þrepanna.
    Það leiðir af brottfalli samsköttunar milli skattþrepa hjá hjónum og sambýlisfólki að fella þarf brott heimild ríkisskattstjóra til að taka til greina skriflega umsókn launamanns um endurgreiðslu á staðgreiðslu hans þegar sýnt þykir að heildarárstekjur samskattaðs aðila muni nema lægri fjárhæð en 11.125.045 kr. Við þær aðstæður hefur verið heimilt að taka tillit til samsköttunar milli skattþrepa og endurreikna þá staðgreiðslu sem innt hefur verið af hendi. Því er lagt til að 2.–4. málsl. 1. mgr. 18. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, verði felldir brott. Að teknu tilliti til 5. tölul. 1. mgr. 66. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, nemur fjárhæðin 15.901.524 kr. á árinu 2025, sbr. auglýsingu um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu, persónuafslátt og skattfrelsismark erfðafjárskatts árið 2025, nr. 1665/2024.

Um 26. gr.

    Frá útreiknuðum tekjuskatti dregst persónuafsláttur. Ef persónuafsláttur er ekki fullnýttur gengur hann fyrst upp í greiðslu tekjuskatts maka, ef við á, en síðan til greiðslu fjármagnstekjuskatts, þar sem viðkomandi má nýta 22/ 31 hluta af ónýttum persónuafslætti til greiðslu fjármagnstekjuskatts. Hlutfallið tekur mið af skatthlutfalli fjármagnstekjuskatts og lægsta skatthlutfalli tekjuskatts einstaklinga sem nú er að meðtöldu útsvari 31,49%. Með upptöku 300.000 króna frítekjumarks fyrir vaxtatekjur ásamt arði og söluhagnaði sem á uppruna að rekja til skráðra fyrirtækja ásamt 50% undanþágu leigutekna af langtímaleigu íbúðarhúsnæðis hefur í raun verið komið á persónuafslætti fjármagnstekna, sem með réttu hefði átt að leiða til breytinga á fyrirkomulagi á nýtingu óráðstafaðs persónuafsláttar. Því er lagt til að ákvæði 4. málsl. 2. mgr. A-liðar 67. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, sem kveður á um ráðstöfun 22/ 31 hluta af óráðstöfuðum persónuafslætti til greiðslu fjármagnstekjuskatts verði fellt brott.

Um 27. og 28. gr.

    Með ákvæðum þessum er lagt til að tímabundin hækkun á vaxtabótum, sem að óbreyttu hefði fallið niður um næstu áramót, verði framlengd um eitt ár. Því er ártalinu 2026 bætt við ákvæði til bráðabirgða XLI í lögunum, en það hefur að geyma ákvæði um vaxtabætur á árunum 2011–2025. Gert er ráð fyrir að ákvæðið komi til framkvæmda við ákvörðun á fyrirframgreiðslu vaxtabóta og við álagningu opinberra gjalda á árinu 2026.
    Jafnframt er gert ráð fyrir því að vaxtabætur, sbr. B-lið 68. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, falli brott frá og með 1. janúar 2027, sbr. 2. mgr. 52. gr. frumvarpsins, en haldi þó gildi sínu vegna ákvarðana vaxtabóta fyrri ára, sbr. 1. mgr. 97. gr., sbr. og 2. mgr. 101. gr. laganna. Húsnæðisstuðningur stjórnvalda hefur á undanförnum árum beinst í önnur úrræði eins og skattfrjálsa úttekt séreignarsparnaðar til kaupa á fyrstu íbúð og/eða ráðstöfunar iðgjalds inn á höfuðstól láns sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð, sbr. lög um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, nr. 111/2016, og hlutdeildarlán til íbúðarkaupa, sbr. lög um húsnæðismál, nr. 44/1998. Þá er markmið laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, að lækka húsnæðiskostnað efnaminni leigjenda með greiðslu húsnæðisbóta vegna leigu á íbúðarhúsnæði.

Um 29. gr.

    Í greininni er lagt til að tímabundin hækkun á barnabótum, sem að óbreyttu hefði fallið niður um næstu áramót, verði framlengd um eitt ár. Því er ártalinu breytt í 2026 í ákvæði til bráðabirgða LXXXII í lögunum, en það hefur að geyma ákvæði um barnabætur á árinu 2025. Gert er ráð fyrir að ákvæðið komi til framkvæmda við ákvörðun á fyrirframgreiðslu barnabóta og við álagningu opinberra gjalda á árinu 2026.

Um 30. gr.

    Um skýringar við greinina vísast til skýringa við 25. gr. frumvarpsins.

Um 31. gr.

    Í greininni er lagt til að úrvinnslugjald á smurolíu verði hækkað um 15 kr./kg, úr 73 kr./kg í 88 kr./kg. Tillaga um hækkun er tilkomin vegna aukins kostnaðar við söfnun og úrvinnslu olíuúrgangs, auk þess sem hægt gengur að ná viðunandi sjóðsstöðu uppgjörsflokksins. Um 4.000 tonnum af olíuúrgangi er ráðstafað árlega. Endurgjald sem Úrvinnslusjóður greiðir þjónustuaðilum fyrir ráðstöfun olíuúrgangs var hækkað 1. janúar 2025 þar sem endurgjald fyrir ryðvarnarolíu og smurfeiti hækkaði úr 296 kr./kg í 337 kr./kg (13,9% hækkun) og fyrir úrgangsolíu í smáílátum, minna en 400 kg/ári, úr 157 kr./kg í 166 kr./kg (5,7% hækkun). Endurgjald fyrir úrgangsolíu í smáílátum tekur mið af kostnaði við förgun úrgangsins innanlands en kostnaðurinn getur breyst oftar en fjárhæð úrvinnslugjalds er endurskoðuð. Þá eru einnig fyrirséðar árlegar hækkanir vegna greiðslna fyrir ráðstöfun olíuúrgangs samkvæmt samningi við þjónustuaðila um ráðstöfun olíuúrgangs, auk þess sem taka þarf tillit til sérstaks álags, sem nemur um 0,5 millj. kr. árlega og kveðið er á um í nýlegum samningi um ráðstöfun olíuúrgangs, vegna þess að um er að ræða flutning spilliefna. Fyrirsjáanlegt er að með óbreyttu úrvinnslugjaldi næst ekki viðunandi sjóðsstaða uppgjörsflokksins á næstu 3–5 árum, eins og æskilegt væri.

Um 32. gr.

    Í greininni er lagt til að HFO-efni (vetnisflúorolefín) í tollskrárnúmerinu 2903.5100 verði fellt brott úr viðauka VI við lögin og að úrvinnslugjald á halógeneruð efnasambönd verði hækkað um 40 kr./kg, eða úr 260 kr./kg í 300 kr./kg. Forsendur hækkunar eru mikil óvissa í vöruflokknum, bæði hvað varðar birgðastöðu hjá þjónustuaðilum og innflutning þessara efna, og eru því miklar sveiflur í árlegum kostnaði. Úrvinnslusjóður áætlar miðað við fyrirliggjandi forsendur að jafnvægi í tekjum og gjöldum náist í vöruflokknum í upphafi árs 2029. Halógeneruð efnasambönd eru lífræn leysiefni sem innihalda halógena og eru einkum notuð sem hreinsiefni í efnalaugum og til að leysa upp lakk og málningu, t.d. tríklóróetýlen og perklóróetýlen.
    Í a-lið er gerð tillaga um að tollskrárnúmerið 2903.5100 verði fellt brott úr viðaukanum en jafnframt er lagt til að það verði flutt yfir í viðauka XV, sbr. 35. gr. Tillagan byggir m.a. á skýringum sem koma fram í tollskýrslum að um kælimiðil sé að ræða ásamt mati Umhverfis- og orkustofnunar að réttara sé að efnavörur í þessu tollskrárnúmeri teljist til kælimiðla fremur en halógeneraðra efnasambanda og beri úrvinnslugjald í samræmi við það. Samkvæmt upplýsingum frá Skattinum var stór hluti halógeneraðra efnasambanda sem flutt voru inn árið 2024 efnasambönd í tollskrárnúmeri 2903.5100 en samkvæmt lýsingum í tollskýrslum eru þau efnasambönd kælimiðlar í flokki svokallaðra olefína (HFO-efna), þ.e. kælimiðillinn R1234yf. Um er að ræða kælimiðil sem er staðgengilsefni fyrir eldri tegundir kælimiðla og er með lægri hnatthlýnunarmátt en innflutningur á efninu hefur aukist síðustu ár.
    Í b-lið er gerð tillaga um að úrvinnslugjald á halógeneruð efnasambönd verði hækkað úr 260 kr./kg í 300 kr./kg. Árlega eru flutt inn á bilinu 12–15 tonn af halógeneruðum efnasamböndum. Endurgjald Úrvinnslusjóðs fyrir ráðstöfun halógeneraðra leysiefna var hækkað 1. janúar sl. úr 497 kr./kg í 568 kr./kg. (14,3%). Mjög óreglulegt er hve miklu efni er ráðstafað úr þessum flokki á hverju ári en sem dæmi var engum slíkum úrgangi ráðstafað á árunum 2023 og 2024, en 24 tonnum árið 2021. Halógeneruðum efnasamböndum hefur verið komið til förgunar í Danmörku og Úrvinnslusjóður áætlar að birgðastaða hjá þjónustuaðilum hér á landi séu um 18 tonn af efnum sem munu koma til úrvinnslu áður en langt um líður. Úrvinnslusjóður telur að hækka þurfi fjárhæð úrvinnslugjalds vegna væntrar ráðstöfunar en einnig vegna þess að lagt er til að úrvinnslugjald verði ekki lengur lagt á kælimiðilinn R1234yf í þessum vöruflokki, heldur verði hann fluttur í viðauka XV og lagt á hann sem kælimiðil. Við það má áætla að tekjur vöruflokksins dragist saman um allt að helming en sjóðsstaða hans hefur auk þess verið neikvæð undanfarin ár. Að gerðum þessum breytingum og að teknu tilliti til áðurnefndrar birgðastöðu hjá þjónustuaðilum áætlar Úrvinnslusjóður að það muni taka fjögur ár að breyta neikvæðri sjóðsstöðu vöruflokksins í jákvæða en viðmið sjóðsins er að ná jafnvægi á 3–5 árum.

Um 33. gr.

    Í greininni er lagt til að úrvinnslugjald verði lagt á einnota rafrettur í tollskrárnúmerunum 2404.1211, 2404.1212, 2404.1221 og 2404.1222. Þessi tollskrárnúmer komu ný inn í tollskrá haustið 2024 þegar fyrra tollskrárnúmeri var skipt upp með tilliti til nikótíninnihalds í einnota rafrettum. Í ljós kom að ekki hafði verið lagt úrvinnslugjald á tollskrárnúmerið sem var forveri nýju númeranna. Við uppskiptingu tollskrárnúmersins erfðust því engar fjárhæðir yfir á nýju tollskrárnúmerin. Úrvinnslugjald hefur hins vegar verið lagt á margnota rafrettur í tollskrárnúmeri 8543.4000, þ.e. í flokknum lítil raftæki, að fjárhæð 24 kr./kg, en hægt er að fjarlægja og skipta út liþíum-rafhlöðu í margnota rafrettum. Talið er að um ein milljón rafrettna séu fluttar inn árlega hér á landi og um 80% af þeim séu einnota.
    Lagt er til að úrvinnslugjald á einnota rafrettur verði 208 kr./kg og viðeigandi tollskrárnúmerum bætt við viðauka X, Færanlegar rafhlöður og rafgeymar, fremur en viðauka XIX, Raf- og rafeindatæki. Rökin fyrir því eru að ekki er hægt að fjarlægja liþíum-rafhlöðuna úr einnota rafrettum og segja má að rafrettan sé að meginhluta liþíum-rafhlaða en með umbúðum úr plasti og öðrum efnum og litlu hólfi fyrir nikótínvökva. Það veldur m.a. aukinni íkveikjuhættu við meðhöndlun þeirra að lokinni notkun. Leiðbeiningar Úrvinnslusjóðs til almennings varðandi skil á notuðum einnota rafrettum eru þess vegna að skila þeim með notuðum rafhlöðum.

Um 34. gr.

    Í greininni er lagt til að við viðaukann bætist þrjú tollskrárnúmer í stað annarra þriggja sem falla brott. Breytingarnar eru gerðar til að leiðrétta villur sem urðu við tilgreiningu tollskrárnúmera í viðauka XI A með birtingu í lögum nr. 127/2022, um breytingu á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, í kjölfar auglýsingar fjármála- og efnahagsráðuneytisins nr. 128/2022, um breytingu á viðauka I við tollalög, nr. 88/2005.

Um 35. gr.

    Í greininni er lagt til að tollskrárnúmerið 2903.5100 bætist við viðauka XV og að fjárhæð úrvinnslugjalds verði 2,5 kr./kg, sem er sama gjald og lagt hefur verið á aðra kælimiðla síðastliðin ár. Vísað er að öðru leyti til umfjöllunar um 32. gr. frumvarpsins.

Um 36. gr.

    Í greininni er gerð tillaga um að úrvinnslugjald verði lagt á íhluti í margnota rafrettur, rafhlaupahjól, svifbretti og hleðslukapla fyrir rafbíla, sem er nýmæli, og að úrvinnslugjald fyrir íhluti í lítil raftæki verði leiðrétt til samræmis við úrvinnslugjald á lítil raftæki.
    Í a-lið er lagt til að úrvinnslugjald fyrir tollskrárnúmer 8543.9009 verði hækkað úr 11 kr./kg (sama gjald og fyrir stór raftæki) í 24 kr./kg (sama gjald og fyrir lítil raftæki). Um er að ræða íhluti í lítil raftæki, en íhlutir eiga að falla í sama gjaldaflokk og raftækin sem íhlutirnir fara í.
    Í b-lið er gerð tillaga um að úrvinnslugjald verði lagt á íhluti í margnota rafrettur, rafhlaupahjól, svifbretti og hleðslukapla fyrir rafbíla. Hleðslukaplarnir eru með tengi með rafrásum á báðum endum og falla sem slíkir undir skilgreininguna á raf- og rafeindatæki samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs. Lagt er til að bæta tollskrárnúmerum 8543.9003 og 8544.4209 við viðauka XIX og að fjárhæð gjaldsins verði 24 kr./kg í samræmi við gjald á önnur lítil raftæki. Í tollskrárnúmeri 8543.9003 er um að ræða íhluti í margnota rafrettur og í 8544.4209 eru allir kaplar sem gerðir eru til að flytja rafstraum undir 1.000 V spennu með tengjum. Úrvinnslugjald er sem stendur ekki lagt á rafhlaupahjól og svifbretti en þau falla undir tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2012/19/ESB frá 4. júlí 2012 um raf- og rafeindabúnaðarúrgang og eiga að sæta framlengdri framleiðendaábyrgð. Því er lagt til að bæta þeim í viðauka XIX þar sem þau beri sama gjald og stór raftæki. Rafhlaupahjól og svifbretti tollflokkast í tollskrárnúmer 8711.6012 ef þau eru með stýri en 8711.6015 ef þau eru án stýris, t.d. einhjól o.fl.

Um 37. gr.

    Ákvæðið felur í sér tímabundna framlengingu heimildar samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögunum til að nota fé ofanflóðasjóðs til greiðslu kostnaðar við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða til 31. desember árið 2026. Að óbreyttu fellur ákvæðið úr gildi 31. desember 2025.

Um 38. gr.

    Í a-lið er að ósk Endurvinnslunnar hf. lögð til hækkun á skilagjaldi á umbúðir úr stáli, áli, gleri og plastefni. Miðað við þróun verðlags er lagt til að skilagjaldið verði 23 kr. á einingu með virðisaukaskatti og fari úr 19,82 kr. á einingu í 20,73 kr. á einingu, án virðisaukaskatts. Að mati Endurvinnslunnar hf. er æskilegt að verðgildi skilagjaldsins haldist svo að hvati til að skila umbúðum í réttan farveg sé til staðar. Telur Endurvinnslan hf. að hækkun skilagjaldsins muni hjálpa til við að auka skil og ná markmiðum um 90% skil á áli og plasti og 85% á gleri í skilakerfinu.
    Í b-lið er að ósk Endurvinnslunnar hf. lögð til hækkun á umsýsluþóknun á umbúðir úr stáli, áli, gleri og plastefni. Með breytingunni fer fjárhæðin úr 6,10 kr. fyrir umbúðir úr stáli í 7,00 kr., úr 0,40 kr. fyrir umbúðir úr áli í 0,60 kr., úr 12,30 kr. fyrir umbúðir úr gleri stærri en 500 ml í 15,00 kr., úr 9,40 kr. fyrir umbúðir úr gleri 500 ml og minni í 12,00 kr., úr 4,10 kr. fyrir umbúðir úr lituðu plastefni í 5,50 kr., úr 1,60 kr. fyrir umbúðir úr ólituðu plastefni í 3,00 kr., og úr 0,60 kr. fyrir umbúðir úr endurunnu ólituðu plastefni í 2,50 kr.

Um 39.–47. gr.

    Lagðar eru til breytingar á gjaldtöku fyrir þjónustu sýslumannsembættanna, Útlendingastofnunar og Þjóðskrár Íslands. Þykir tímabært að breyta og einfalda einstaka gjaldtökuheimildir ásamt því að hækka gjöldin almennt þannig að þau taki mið af verðlagsbreytingum undanfarinna ára, í einhverjum tilvikum sambærilegum gjöldum annars staðar á Norðurlöndunum sem og að þau endurspegli betur tíma og kostnað ríkisins við að veita þjónustuna. Þá eru breytingarnar sem lagðar eru til í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um einföldun stjórnsýslu og hagræðingu í ríkisrekstri. Í ljósi framangreinds eru eftirfarandi breytingar lagðar til:
    Í ákvæðum 39., 40., 43., 44., 46. og 47. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á gjöldum vegna málefna sem sýslumenn fara með framkvæmd á. Er þannig lagt til að gjöldin taki breytingum í samræmi við verðlagsþróun undanfarinna ára. Er í þeim efnum miðað við verðlagsþróun frá því að flest núgildandi gjöld voru lögfest, þ.e. frá desember 2022 til júlí 2025. Þá er jafnframt lagt til að gjöldin taki almennri 20% hækkun umfram verðlagsþróun svo þau endurspegli betur tíma og kostnað ríkisins við veitta þjónustu. Þróun undanfarinna ára hefur verið á þá leið að verkefnum sem fylgja þjónustunni hefur almennt fjölgað, m.a. vegna lagabreytinga og aukinna þjónustukrafna samfélagsins sem felur í sér fleiri vinnustundir fyrir hvert mál, ríkari kröfur um sérfræðiþekkingu o.fl. Þykir því eðlilegt að gjöldin standi ekki aðeins í stað með hækkun samkvæmt verðlagsþróun, heldur hækki auk þess almennt þannig að ríkissjóður beri ekki stóran hluta kostnaðarins af þjónustunni til móts við þjónustuþega.
    Þá eru lagðar til breytingar á gjaldtöku vegna skiptagjalds og leyfi til setu í óskiptu búi sökum innleiðingar rafrænna þinglýsinga, sbr. 41. og 42. gr. frumvarpsins. Tillagan er í samræmi við framkvæmd sýslumanna við fjárnám, kyrrsetningu og löggeymslu, sbr. 4. og 5. gr. og 4. málsl. 2. mgr. 8. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, en sambærileg breyting og nú er lögð til var gerð á gjaldtöku slíkra gerða með lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2023, nr. 129/2022. Rétt er að geta þess að hingað til hefur ekki verið innheimt gjald fyrir umsókn um leyfi til setu í óskiptu búi, en greiða hefur þurft fyrir þinglýsingu skjalsins. Lagt er til að gjald fyrir þinglýsingu erfðaskiptayfirlýsinga og búsetuleyfa verði undanþegið greiðslu þegar lögð er fram beiðni um þinglýsingu þeirra skjala. Í stað þess verði gjald innheimt við umsókn, annars vegar um leyfi til einkaskipta á dánarbúi og hins vegar um leyfi til setu í óskiptu búi og gjaldtaka muni því aðeins fara fram einu sinni hjá sýslumanni, þ.e. fremst í ferlinu. Niðurfelling gjaldtöku vegna þinglýsingar þessara skjalategunda mun ekki leiða til neikvæðra áhrifa á ríkissjóð þar sem gjaldtakan er færð framar í ferlið, þ.e. við framlagningu umsóknar hjá sýslumanni. Þannig er kveðið á um gjald sem tekur mið af meðaltali kostnaðar hin síðustu ár vegna meðferðar sýslumanns á leyfi til einkaskipta á dánarbúi (erfðaskiptayfirlýsingar) og leyfi til setu í óskiptu búi (búsetuleyfi) og eftir atvikum rafrænni þinglýsingu þeirra. Engin málefnaleg rök þykja styðja það að umsókn um leyfi til setu í óskiptu búi haldist gjaldfrjáls við breytingartillögu sem þessa. Með breytingunni er jafnframt mögulegt að nýta kosti rafrænna þinglýsinga hvað viðkemur hluta dánarbúsmála hjá sýslumanni, enda þarf þá ekki að innheimta sérstakt gjald áður en unnt er að þinglýsa þessum tilteknu réttindum. Þá er lagt til að gjöldin hækki í samræmi við umfjöllun um 39., 40., 43., 44., 46. og 47. gr. frumvarpsins.
    Í 45. gr. frumvarpsins eru lagðar til ýmsar breytingar. Hvað varðar verkefni sýslumanna og Þjóðskrár Íslands (vegna vegabréfa) er annars vegar um að ræða tillögu um hækkun gjalda í samræmi við umfjöllun um 39., 40., 43., 44., 46. og 47. gr. og hins vegar er lagt til að gjöldin verði öll innheimt við framlagningu umsókna hjá sýslumanni í samræmi við m.a. núgildandi 4. og 5. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991. Að baki breytingartillögunni liggja hagkvæmnissjónarmið, auk sjónarmiða um einföldun á málsmeðferð og aukið gagnsæi í stjórnsýsluframkvæmd. Tillagan kallar á breytt orðalag ýmissa ákvæða laga um aukatekjur ríkissjóðs. Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að gæta samsvörunar við reglur nágrannaríkja á sviði útlendingamála, m.a. með einföldun stjórnsýslu og samkvæmni löggjafar, er í 45. gr. frumvarpsins lögð til hækkun gjalda fyrir umsóknir um dvalarleyfi og ríkisborgararétt skv. 14. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991. Umsóknargjöld þessi eru að óbreyttum lögum í nær öllum tilfellum þau langlægstu í samanburði við aðrar Norðurlandaþjóðir. Verði frumvarpið að lögum verða gjöldin í samræmi við gjöld fyrir umsóknir um dvalarleyfi og ríkisborgararétt annars staðar á Norðurlöndum. Jafnframt er lagt til að mismunandi gjald verði tekið eftir tegund dvalarleyfis og á það sér hliðstæðu í norskri framkvæmd. Þannig verða frekari líkur á því að unnt verði að stýra flæði þeirra einstaklinga sem sækja um dvalarleyfi hér á landi. Hærra gjald felur auk þess í sér aukinn hvata fyrir umsækjendur til að vanda vel til verka við gerð umsóknar og fylgiskjala um dvalarleyfi og fer þá minni tími í að kalla eftir úrbótum frá umsækjendum en nokkur brögð hafa verið að því. Þá er lagt til að fallið verði frá innheimtu gjalds fyrir flýtimeðferð umsókna um dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku til samræmis við framkvæmdina annars staðar á Norðurlöndum þar sem reynslan af úrræðinu hefur ekki verið góð. Gert er ráð fyrir því að áfram gildi sú undanþága að ekki skuli greiða fyrir dvalarleyfi skv. 66. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sé samningur Íslands samkvæmt þeirri grein við erlent ríki í gildi og kveðið sé á um undanþágu frá greiðslu í þeim samningi.

Um 48. gr.

    Í greininni er lagt til að skrásetningargjald í opinbera háskóla verði hækkað úr 75.000 kr. í 100.000 kr. Ef miðað er við forsendur fjárlaga um verðlagsþróun má leiða rök að því að skrásetningargjaldið hefði átt að vera um 110.000 kr. árið 2024 og um 112.000 kr. árið 2025. Hins vegar er rétt að líta til þess að um mjög snarpa hækkun er að ræða gagnvart nemendum. Að framansögðu er því lagt til að hækka skrásetningargjaldið úr 75.000 kr. í 100.000 kr.

Um 49. gr.

    Með greininni er lagt til að ákvæði til bráðabirgða verði bætti við lög um gistináttaskatt og innviðagjald, nr. 87/2011, þess efnis að innviðagjald skv. 2. mgr. 3. gr. a verði með einskiptis aðgerð lækkað tímabundið úr 2.500 kr. í 2.000 kr. á árinu 2026.

Um 23. og 50. gr.

    Í 42. gr. frumvarpsins er lagt til að 3. mgr. 5. gr. laga um Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun, nr. 38/2010, verði felld brott. Með því verða tekjur Íslandsstofu ekki hærri en sem nemur ákvörðun Alþingis, með fjárveitingu í fjárlögum hverju sinni. Verði frumvarpið að lögum mun fjárveitingin því ekki hækka í takt við áætlaða aukningu innheimts tryggingagjalds en skv. 3. mgr. 5. gr. laganna skulu tekjur Íslandsstofu aldrei vera lægri en sem nemur markaðsgjaldi skv. 2. mgr. 5. gr. laganna.
    Við brottfall 3. mgr. 5. gr. áðurnefndra laga er því jafnframt lagt til í 23. gr. frumvarpsins að ákvæði 2. mgr. 5. gr., sem fjallar um markaðsgjald sem leggja skal á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds, verði flutt efnislega óbreytt yfir í lög um tryggingagjald, nr. 113/1990.

Um 51. gr.

    Í 51. gr. frumvarpsins er lagt til að gjaldtökuákvæði sérlaga, þ.e. 50. gr. lögræðislaga, nr. 71/1997, verði fellt brott úr þeim lögum og fært í lög um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, sbr. 45. gr. frumvarpsins. Auk þess er lagt til að fjárhæð gjaldsins verði hækkuð til samræmis við verðlagsþróun frá 1. janúar 1998, þ.e. þegar lögræðislögin tóku gildi, og til júlí 2025 ásamt almennri 20% hlutfallshækkun. Tilefni breytinganna er að stuðla að auknu gagnsæi við gjaldtöku sýslumanns. Þykir fara betur á því að halda gjöldum sem renna í ríkissjóð á einum stað, í lögum um aukatekjur ríkissjóðs, heldur en að hafa þau á víð og dreif í sérlögum.

Um 52. gr.

    Greinin fjallar um gildistöku.
    Í 1. mgr. kemur fram að lögin öðlist gildi 1. janúar 2026.
    Í 2. mgr. er mælt fyrir um að 27. gr., sem kveður á um brottfall B-liðar 68. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, skuli öðlast gildi 1. janúar 2027, verði frumvarpið að lögum. Ákvæðið skuli þó halda gildi sínu um ákvörðun vaxtabóta fyrri ára, sbr. 1. mgr. 97. gr., sbr. og 2. mgr. 101. gr. áðurnefndra laga um tekjuskatt.
    Í 3. mgr. er kveðið á um það að ákvæði 25.–26. gr. og 30. gr. komi til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda 2027 og á staðgreiðsluárinu 2026 eftir því sem við eigi.