Þingskjal 1454, 157. löggjafarþing 582. mál: einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).
Lög nr. 82 2. júlí 2026.
Lög um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).
1. gr.
Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 3. mgr. 16. gr. og 1. mgr. 20. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.2. gr.
Í stað orðsins „heilbrigðisnefndir“ í 3. mgr. 4. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 11. gr. laganna:- Í stað orðanna „Heilbrigðisfulltrúar, samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, dýralæknar“ í 1. málsl. kemur: Dýralæknar.
- Orðin „viðkomandi heilbrigðisnefnd“ í 2. málsl. falla brott.
- Í stað orðanna „gefa heilbrigðisnefndum“ í 3. málsl. kemur: eftir atvikum gefa Stofnun atvinnuveganna og Umhverfis- og orkustofnun.
4. gr.
Orðin „ heilbrigðisfulltrúa, heilbrigðisnefnda“ í fyrirsögn á undan 11. gr. laganna falla brott.5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- 1. mgr. fellur brott.
- 10. mgr. orðast svo:
- Í stað tilvísunarinnar „I–IV“ í 17. mgr. kemur: laganna.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- 1. tölul. orðast svo: eftirlit með atvinnurekstri og annarri starfsemi eða athöfnum sem falla undir þessa grein, útgáfu og efni starfsleyfa, sbr. 7. gr., svo sem nánari tilgreiningu á hvaða starfsemi um er að ræða, og skráningarskyldu, sbr. 8. gr.
- Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 2. tölul. kemur: sveitarfélaga og Umhverfis- og orkustofnunar.
- 4. tölul. fellur brott.
- Í stað orðsins „heilbrigðisnefnda“ í 5. tölul. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
- 21. tölul. fellur brott.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- Á eftir orðunum „þar á meðal ákvæði um“ í 1. tölul. kemur: hvaða starfsemi um er að ræða.
- Í stað orðsins „heilbrigðisnefnda“ í 18. tölul. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
- Í stað orðanna „útgefandi starfsleyfis“ í 19. tölul. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
8. gr.
1. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo: Allur atvinnurekstur, sbr. viðauka I og II, skal hafa gilt starfsleyfi sem Umhverfis- og orkustofnun gefur út, sbr. þó 7. gr. a og 8. gr.9. gr.
- Í stað orðanna „Útgefanda starfsleyfis“ í 2. og 4. mgr. 6. gr., 3., 4. og 6. mgr. 7. gr., 3. mgr. 7. gr. a, d-lið 1. mgr. 9. gr., 1. mgr. 14. gr., 2. mgr. 15. gr., 29. gr. og 63. gr. b laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.
- Í stað orðanna „útgefandi starfsleyfis“ í 3. mgr. 6. gr., 3. og 5.–7. mgr. 7. gr., 4. mgr. 9. gr., 1. og 2. mgr. 14. gr., 1. mgr. 15. gr., tvívegis í 1. mgr. 28. gr. og 63. gr. b laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Í stað orðsins „leyfisveitanda“ í 3. málsl. 5. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
11. gr.
Í stað orðanna „hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar og“ í 2. málsl. 1. mgr. 7. gr. a laganna kemur: stofnana eða.12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:- Orðin „og IV“ í 1. mgr. falla brott.
- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Falli starfsemi undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana er þó skylt að gefa út starfsleyfi.
- Í stað viðaukatalnanna „I–IV“ í 2. mgr. kemur: I og II.
- Í stað orðanna „Hlutaðeigandi eftirlitsaðili“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
13. gr.
- Í stað viðaukatölunnar „II“ í 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 16. gr. laganna kemur: a-lið viðauka II.
- Í stað viðaukatölunnar „IV“ í 4. mgr. 9. gr. laganna kemur: II.
- Í stað viðaukatalnanna „I–IV“ í 1. mgr. 34. gr., 1. og 2. mgr. 36. gr., 1. mgr. 39. gr., 1. mgr. 40. gr., 1., 3. og 4. mgr. 54. gr. og 1. mgr. 55. gr. laganna kemur: I og II.
- Í stað orðanna „viðauka I–II“ í 38. gr. laganna kemur: viðauka I og a-lið viðauka II.
- Í stað orðanna „viðaukum I og II“ í 2. málsl. 4. mgr. 54. gr. laganna kemur: viðauka I og a-lið viðauka II.
14. gr.
Í stað orðanna „eftirlitsaðila“, „eftirlitsaðilanum“, „eftirlitsaðili“ og „eftirlitsaðilinn“ í lokamálslið 4. mgr. 21. gr., 2. mgr. 40. gr., tvívegis í 2. mgr., 4. mgr. og tvívegis í 5. mgr. 54. gr., tvívegis í 54. gr. a, 1. mgr. og tvívegis í 2. mgr. 55. gr. og fyrirsögn 62. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.15. gr.
Í stað orðsins „leyfisveitanda“ í 5. málsl. 33. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.16. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 36. gr. laganna:- Í stað orðanna „skulu Umhverfis- og orkustofnun, sbr. 51. gr., og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga, sbr. 47. gr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: skal Umhverfis- og orkustofnun.
- 2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Sveitarfélögum er heimilt að setja upp og reka mælistöðvar vegna hugsanlegs álags vegna umferðar eða starfsemi.
- 2. málsl. 4. mgr. fellur brott.
- Orðin „í samvinnu við heilbrigðisnefndir sveitarfélaga“ í 2. málsl. 6. mgr. falla brott.
- 1.–3. málsl. 7. mgr. orðast svo: Umhverfis- og orkustofnun skal gefa út staðbundnar áætlanir um loftgæði þar sem m.a. koma fram tímaáætlun, aðgerðir og stefnumörkun til að bæta loftgæði. Þá skal stofnunin, eftir því sem við á í samráði við hlutaðeigandi sveitarfélög, vinna viðbragðsáætlanir sem taka til skammtímaaðgerða varðandi loftgæði á einstökum svæðum. Umhverfis- og orkustofnun skal gefa út tilkynningar til almennings um loftgæði eftir því sem við á.
- Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 4. málsl. 7. mgr. kemur: sveitarfélag í samráði við Umhverfis- og orkustofnun.
- Lokamálsliður 7. mgr. fellur brott.
17. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 41. gr. laganna:- Orðin „heilbrigðisnefndar eða“ í 1. mgr. falla brott.
- 2. mgr. fellur brott.
18. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 42. gr. laganna:- Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Álit Umhverfis- og orkustofnunar.
19. gr.
Við 43. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Sveitarfélögum er heimilt að hafa samvinnu sín á milli um framkvæmd þeirra verkefna sem þeim eru falin í lögum þessum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim. Sveitarstjórnir skulu gera með sér samkomulag um tilhögun samstarfsins, þar á meðal um stjórn, rekstur og kostnaðarskiptingu. Um samvinnu sveitarfélaga fer eftir ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Heimilt er að fela byggðasamlagi eða öðru sveitarfélagi framkvæmd eftirlits og stjórnvaldsaðgerða samkvæmt lögum þessum.
20. gr.
44., 45., 46., 47., 48. og 49. gr. laganna falla brott.21. gr.
Í stað orðanna „heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga“ í 2. mgr. 50. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.22. gr.
Fyrirsögn XII. kafla laganna verður: Stjórn og skipan.23. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 51. gr. laganna:- Í stað orðsins „yfirumsjón“ í 2. mgr. kemur: umsjón.
- 2. málsl. 2. mgr. fellur brott.
- 4. mgr. orðast svo:
- Greinin ásamt fyrirsögn flyst í XII. kafla.
24. gr.
52. gr. laganna fellur brott.25. gr.
53. gr. laganna ásamt fyrirsögn flyst í XII. kafla.26. gr.
Fyrirsögn XIII. kafla laganna fellur brott.27. gr.
2. málsl. 2. mgr. 55. gr. laganna fellur brott.28. gr.
56. gr. laganna orðast svo:Ráðherra er heimilt að ákveða með reglugerð að starfsemi heilbrigðiseftirlits skuli hljóta faggildingu og þá hvernig að henni skuli staðið.
29. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 58. gr. laganna:- Orðin „Heilbrigðisnefndum og“ í 1. málsl. falla brott.
- Við 1. og 2. málsl. bætist: eða Stofnun atvinnuveganna.
- Orðin „heilbrigðisnefndar eða“ og „eftir því sem við á“ í 3. málsl. falla brott.
30. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 59. gr. laganna:- Orðin „og húsdýrahalds“ í 1. tölul. 1. mgr. falla brott.
- 2. mgr. orðast svo:
- 3. mgr. orðast svo:
- Við 1. málsl. 5. mgr. bætist: og eftirlit, þ.m.t. sýnatöku, eftirfylgni eftirlits og beitingu þvingunarúrræða, sbr. XVII. kafla.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
31. gr.
Orðin „eða heilbrigðisnefnd“ í 60. gr. laganna falla brott.32. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 61. gr. laganna:- Orðin „heilbrigðisnefnd eða“ í 1. og 4. málsl. 1. mgr. og í 2. mgr. falla brott.
- Í stað orðanna „viðkomandi heilbrigðiseftirliti“ í 4. málsl. 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
- Orðin „og heilbrigðisnefnda“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
- Orðin „eða heilbrigðisnefndar“ í 2. málsl. 3. mgr. falla brott.
- Orðin „eða heilbrigðisnefnd“ í 5. málsl. 3. mgr. falla brott.
- Orðin „og sektir sem heilbrigðisnefndir leggja á að frádregnum kostnaði við innheimtu renna til rekstraraðila heilbrigðiseftirlits“ í lokamálslið 3. mgr. falla brott.
33. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 62. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Orðin „í samráði við heilbrigðisnefndir“ í 2. mgr. falla brott.
- 4. mgr. fellur brott.
34. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 63. gr. laganna:- Orðin „eða heilbrigðisnefnd“ tvívegis í 1. mgr. falla brott.
- 2. málsl. 2. mgr. fellur brott.
35. gr.
66. gr. laganna fellur brott, ásamt fyrirsögn.36. gr.
Fyrirsögn viðauka I við lögin verður: Iðnaðarstarfsemi, meðhöndlun úrgangs og annað.37. gr.
Viðauki II við lögin verður svohljóðandi, ásamt fyrirsögn:Viðauki II. Önnur mengandi starfsemi og hollustuháttastarfsemi.
- Önnur mengandi starfsemi:
- Aksturs- og/eða kennslubraut.
- Bensínstöð.
- Bifreiða- og vélaverkstæði.
- Bifreiðasprautun.
- Bón- og bílaþvottastöð.
- Brenna, stærri en 100 m3.
- Efnalaug og þvottahús.
- Eldi alifugla, annað en í viðauka I.
- Eldi sjávar- og ferskvatnslífvera.
- Eldi svína, annað en í viðauka I.
- Endurvinnsla skipa, sbr. 64. gr. a laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
- Flugeldasýning.
- Flugvöllur þar sem er áætlunarflug.
- Flutningur úrgangs.
- Formeðferð, svo sem þvottur, bleiking, mersivinnsla eða litun textíltrefja eða textílefna, önnur en í viðauka I.
- Framköllun, t.d. á ljós-, röntgen- og kvikmyndum.
- Framleiðsla á aukefnum og hjálparefnum fyrir matvælaiðnað, önnur en í viðauka I.
- Framleiðsla á áfengi og gosdrykkjum, önnur en í viðauka I.
- Framleiðsla á hreinsi- og þvottaefnum, önnur en í viðauka I.
- Framleiðsla á ilmvatni og snyrtivörum, önnur en í viðauka I.
- Framleiðsla á spónaplötum, límtré og þess háttar, önnur en í viðauka I.
- Framleiðsla glers, önnur en í viðauka I.
- Framleiðsla leirvara með brennslu, önnur en í viðauka I.
- Framleiðsla lífrænna og ólífrænna efna, önnur en í viðauka I.
- Framleiðsla plasts, önnur en í viðauka I.
- Garðaúðun og meindýravarnir.
- Geymsla gass og annarra hættulegra efna.
- Geymsla koldíoxíðs í jörðu.
- Glerullar- og steinullarframleiðsla, önnur en í viðauka I.
- Hreinsivirki fráveitu sem meðhöndlar meira en 50 pe.
- Jarðborun.
- Kanínurækt.
- Kítín- og kítosanframleiðsla.
- Líkbrennsla.
- Loðdýrarækt.
- Málningarvöruframleiðsla.
- Meðferð og vinnsla hráefna úr dýra- og/eða jurtaríkinu vegna matvæla- eða fóðurvinnslu, önnur en í viðauka I.
- Meðhöndlun asbests.
- Meðhöndlun og förgun spilliefna, þ.m.t. námuúrgangsstaðir, sbr. 14. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, önnur en í viðauka I.
- Meðhöndlun seyru, þ.m.t. flutningur, notkun og hreinsun.
- Meðhöndlun úrgangs, önnur en í viðauka I.
- Móttökustöð fyrir úrgang.
- Niðurrif bifreiða og bílapartasala.
- Niðurrif mannvirkja.
- Olíubirgðastöðvar.
- Olíumalar- og malbikunarstöðvar og geymsla olíuefna utan fastra starfsstöðva.
- Pappírsvöru- og pappakassaframleiðsla, önnur en í viðauka I.
- Prentun þar sem er notkun á mengandi efnum.
- Rannsóknir og vinnsla kolvetnis, önnur en í viðauka I.
- Ryðvarnarverkstæði.
- Saltvinnsla.
- Skotvöllur.
- Sláturhús, önnur en í viðauka I.
- Smurstöð.
- Spennistöð þar sem spennar innihalda yfir 2.000 lítra af olíu.
- Starfsemi þar sem notað er kælikerfi sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða ósoneyðandi efni sem og þjónusta við þau kerfi.
- Steypueiningaverksmiðja.
- Steypustöð.
- Sútunarverksmiðjur, aðrar en í viðauka I.
- Trésmíðaverkstæði, önnur en í viðauka I.
- Vefnaðar- og spunaverksmiðjur.
- Vinnsla á hrájárni eða stáli, önnur en í viðauka I.
- Vinnsla gúmmís, önnur en í viðauka I.
- Vinnsla jarðefna, þ.m.t. legsteinagerð, önnur en í viðauka I.
- Vinnsla járnlausra málma, önnur en í viðauka I.
- Vinnsla málma, önnur en í viðauka I.
- Virkjun og orkuveita frá 1 MW.
- Yfirborðsmeðferð efna, hluta eða afurða með lífrænum leysum, önnur en í viðauka I.
- Yfirborðsmeðferð málma eða plastefna, önnur en í viðauka I.
- Æfingasvæði slökkviliðs.
- Hollustuháttastarfsemi:
- Almenningssalerni.
- Baðstaður í náttúrunni, flokkur 1 og 2.
- Daggæsla hjá dagforeldrum með sex börn eða fleiri.
- Dvalarheimili.
- Fangagæsla.
- Fangelsi.
- Gististaður, að undanskilinni heimagistingu.
- Heilsuræktarstöð.
- Heimili og stofnanir fyrir börn og unglinga með sex börn eða fleiri.
- Hestaleiga og/eða reiðskóli.
- Íþróttahús.
- Íþróttamiðstöð.
- Íþróttavöllur.
- Leiksvæði, önnur en leiksvæði við fjöleignarhús með sameiginlegu svæði.
- Sambýli þar sem veitt er þjónusta allan sólarhringinn.
- Samgöngumiðstöð.
- Samkomuhús, þ.m.t. veitingastaður.
- Skemmti- og þemagarður, þ.m.t. tívolí og dýragarður.
- Skólahúsnæði.
- Starfsmannabúðir.
- Starfsmannabústaðir.
- Starfsemi þar sem veitt er heilbrigðisþjónusta.
- Stofa þar sem fram fer húðrof.
- Stofa þar sem fram fer meðferð á líkama án húðrofs.
- Sund- og baðstaður.
- Tjald- og hjólhýsasvæði.
- Útihátíð.
- Verslunarmiðstöð.
38. gr.
Viðauki IV við lögin fellur brott.39. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 6. gr. og 3. mgr. 7. gr. er heilbrigðisnefndum heimilt, frá birtingu laga þessara og fram til 1. janúar 2027, að gefa út eða breyta starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem fellur undir viðauka IV við lögin án þess að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða drög að breytingu á starfsleyfi opinberlega og veita frest til athugasemda. Hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd er þó heimilt að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða drög að breytingu á starfsleyfi og veita frest til athugasemda skv. 3. mgr. 6. gr. og 3. mgr. 7. gr., eftir því sem við á, ef ætla má að starfsemin geti haft veruleg grenndaráhrif.
40. gr.
Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 4. tölul. 4. mgr. 6. gr. a laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.41. gr.
Í stað orðsins „heilbrigðiseftirlits“ í 3. mgr. 16. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.42. gr.
Í stað orðanna „heilbrigðisfulltrúi viðkomandi sveitarfélags“ í 2. málsl. 1. mgr. 29. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.43. gr.
Á undan orðinu „upplýsingar“ í i-lið 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: veitingu leyfis til smásölu tóbaksvara, sbr. 11. mgr. 8. gr., og.44. gr.
5. gr. b laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:45. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:- 2. málsl. 7. mgr. fellur brott.
- Í stað orðanna „heilbrigðisnefndar á viðkomandi eftirlitssvæði“ í 1. og 2. málsl. 11. mgr. kemur: ÁTVR.
- 5. málsl. 11. mgr. orðast svo: ÁTVR er heimilt að innheimta gjald fyrir leyfi og Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að innheimta gjald fyrir eftirlit með starfsemi leyfishafa.
- 2. málsl. 13. mgr. fellur brott.
46. gr.
Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 2. málsl. 11. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.47. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:- Í stað orðanna „Heilbrigðisnefndir, undir yfirumsjón Umhverfis- og orkustofnunar, hafa eftirlit með smásölustöðum tóbaks og fylgjast með því í umdæmi sínu“ í 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun hefur eftirlit með smásölustöðum tóbaks og fylgist með því.
- Í stað orðanna „heilbrigðisnefndar og getur þá nefndin“ í 2. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar og getur þá stofnunin.
- Í stað orðanna „heilbrigðisnefnd á viðkomandi eftirlitssvæði“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
- Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: stofnuninni.
- Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 4. mgr. kemur: ÁTVR og Umhverfis- og orkustofnunar.
48. gr.
Í stað orðsins „Heilbrigðisnefndir“ í 1. mgr. 18. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.49. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 20. gr. a laganna:- Við 1. tölul. bætist: og framkvæmd leyfisveitinga, sbr. 1. mgr. 5. gr.
- 3. tölul. orðast svo: verkefni Umhverfis- og orkustofnunar um framkvæmd eftirlits, sbr. 5. gr. b, að höfðu samráði við ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála.
50. gr.
2. mgr. 4. gr. laganna orðast svo:Umhverfis- og orkustofnun fer með eftirlit með framkvæmd laga þessara.
51. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:- Orðin „og eftir atvikum heilbrigðisnefndar“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
- Í stað orðsins „útgefandi“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
- 2. mgr. orðast svo:
- Í stað orðanna „útgefanda starfsleyfis“ og „Útgefandi starfsleyfis“ í 4. mgr., 5. mgr., tvívegis í 9. mgr., 10. mgr. og 11. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.
52. gr.
Í stað orðanna „Útgefandi starfsleyfis“ í 2. málsl. 2. mgr. 16. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.53. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:- 5. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- Í stað orðanna „útgefanda starfsleyfis skv. 2. mgr. 14. gr.“ í 2. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
54. gr.
Í stað orðanna „hlutaðeigandi heilbrigðisnefndir“ í 2. mgr. 24. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.55. gr.
Í stað orðanna „útgefandi starfsleyfis“ í z-lið 43. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.56. gr.
Orðin „eða viðkomandi eftirlitsaðila“ tvívegis í 60. gr. laganna falla brott.57. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 61. gr. laganna:- Í stað orðsins „eftirlitsaðili“ í 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
- Orðin „Umhverfis- og orkustofnun hefur“ í 1. mgr. falla brott.
- Orðin „eða viðkomandi eftirlitsaðila“ í 6. mgr. falla brott.
58. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 64. gr. a laganna:- 2. mgr. orðast svo:
- 4. mgr. fellur brott.
59. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 65. gr. laganna:- 2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- Orðið „einnig“ í 3. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- Í stað orðsins „heilbrigðiseftirlitsins“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: eftirlitsins.
- Orðin „og öðrum eftirlitsaðilum samkvæmt lögum þessum“ í 2. mgr. falla brott.
- 5. mgr. fellur brott.
60. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 66. gr. laganna:- Orðin „og heilbrigðisnefnd þar sem hún fer með eftirlit“ í 1. mgr. falla brott.
- Orðin „eða heilbrigðisnefnd þar sem hún fer með eftirlit“ í 4. mgr. falla brott.
61. gr.
2. mgr. 67. gr. laganna fellur brott.62. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 4. gr. laganna:- Orðin „heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna eða“ í 2. málsl. falla brott.
- Orðin „eða við hlutaðeigandi heilbrigðiseftirlit eftir því sem við á“ í 3. málsl. falla brott.
- Lokamálsliður fellur brott.
63. gr.
Orðin „heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna“ í 5. gr. laganna falla brott.64. gr.
Orðin „og ef við á hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar“ í 7. mgr. 8. gr. laganna falla brott.65. gr.
Orðin „og heilbrigðisnefnda viðkomandi sveitarfélaga“ í 5. mgr. 12. gr. laganna falla brott.66. gr.
Orðin „og skal hann vera starfandi heilbrigðisfulltrúi“ í 1. mgr. 13. gr. laganna falla brott.67. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 14. gr. laganna:- Orðin „og heilbrigðisnefnd“ í 3. málsl. a-liðar falla brott.
- Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 4. og 5. málsl. a-liðar kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
- 6. málsl. a-liðar fellur brott.
- 3. málsl. b-liðar fellur brott.
- Orðin „heilbrigðisnefnd eða“ í 4. málsl. b-liðar falla brott.
68. gr.
3. mgr. 21. gr. laganna fellur brott.69. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. laganna:- Orðin „eða heilbrigðisnefnd, þar sem það á við“ í 1. mgr. falla brott.
- Lokamálsliður 2. mgr. fellur brott.
- Orðin „en tilkynna skal það hluteigandi heilbrigðisnefnd“ í 3. mgr. falla brott.
70. gr.
Orðin „eða viðkomandi heilbrigðisnefnd, sbr. 2. mgr. 4. gr.“ tvívegis í 23. gr. og í 1. mgr. 24. gr. laganna falla brott.71. gr.
Í stað orðanna „heilbrigðisnefndum sveitarfélaga“ í 1. mgr. 10. gr., orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 2. mgr. 10. gr., orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 5. mgr. 15. gr., orðsins „heilbrigðisnefnda“ í 5. mgr. 17. gr. laganna og sömu orða hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun og Stofnun atvinnuveganna.72. gr.
Í stað orðanna „heilbrigðisnefndar“ í 4. mgr. og „heilbrigðisnefnd“ tvívegis í 5. mgr. 4. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.73. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:- Orðin „og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga“ í 1. málsl. 1. mgr. falla brott.
- Orðin „í samvinnu við heilbrigðisnefndir og“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
- Orðin „frá hlutaðeigandi heilbrigðisnefndum“ í 3. mgr. falla brott.
74. gr.
Í stað orðanna „heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga“ í 2. mgr. 9. gr. laganna kemur: Sambandi íslenskra sveitarfélaga.75. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. laganna:- Í stað orðanna „heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: sveitarfélög.
- Í stað orðanna „heilbrigðisnefndum sveitarfélaga“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: sveitarfélögum.
- Í stað orðanna „Þá er heimilt“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: Heimilt er.
76. gr.
Í stað orðanna „heilbrigðisnefndar sveitarfélags“ og „viðkomandi heilbrigðisnefnd“ í 4. málsl. 2. mgr. 9. gr. og 2. málsl. 2. mgr. 10. gr. laganna kemur: Stofnunar atvinnuveganna; og: Stofnun atvinnuveganna.77. gr.
Orðin „hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar“ í 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laganna falla brott.78. gr.
Í stað orðanna „hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd“ og „heilbrigðisnefndar“ í 2. málsl. 1. mgr. 13. gr., 2. málsl. 1. mgr. 14. gr. og 2. málsl. 3. mgr. 15. gr. laganna kemur: Stofnun atvinnuveganna; og: Stofnunar atvinnuveganna.79. gr.
3. og 4. málsl. 23. gr. laganna falla brott.80. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 25. gr. laganna:- 3. málsl. 2. mgr. fellur brott.
- Í stað orðanna „og viðkomandi heilbrigðisnefnd skulu“ í 4. mgr. kemur: skal.
81. gr.
Orðin „eða heilbrigðisnefndar“ í 1. mgr. 30. gr. laganna falla brott.82. gr.
Orðin „heilbrigðisnefndir sveitarfélaga“ í 15. tölul. 5. gr. laganna falla brott.83. gr.
6. gr. laganna fellur brott, ásamt fyrirsögn.84. gr.
Í stað orðanna „um getur í 2. tölul. 6. gr.“ í 6. tölul. 7. gr. laganna kemur: heyrir undir starfsleyfi sem Umhverfis- og orkustofnun gefur út og/eða hefur eftirlit með á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.85. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 48. gr. laganna:- Orðin „heilbrigðisnefndum sveitarfélaga“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.
- Orðin „hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd“ í 2. málsl. 2. mgr. falla brott.
- 4. mgr. fellur brott.
86. gr.
Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 1. málsl. 2. mgr. og 5. mgr. 4. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.87. gr.
Orðið „heilbrigðisnefndar“ í 1. mgr. 5. gr. laganna fellur brott.88. gr.
Í stað orðanna „heilbrigðisnefndir sveitarfélaga“ í 2. málsl. 3. mgr. 22. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.89. gr.
Á eftir 4. mgr. 2. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Umhverfis- og orkustofnun skal hafa starfsfólk á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Suðurlandi og Suðurnesjum.
90. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2027.Í tilviki starfsfólks heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga, sem ráðið verður hjá nýrri stofnun, skal starfsaldur þess í fráfarandi starfi fyrir heilbrigðiseftirlit teljast til starfsaldurs hjá nýrri stofnun hvað varðar rétt til námsleyfis og lengd uppsagnarfrests samkvæmt kjarasamningum þar sem miðað er við samfellt starf hjá sömu stofnun. Að öðru leyti gilda ákvæði gildandi kjarasamninga um inntak réttindanna.
Samþykkt á Alþingi 19. júní 2026.