Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
82. löggjafarþing 1961–62.
Þskj. 625  —  46. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um verndun fiskstofna við strendur Íslands.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að taka hið fyrsta til athugunar, í samráði við Fiskifélag Íslands og fiskideild atvinnudeildar háskólans, hvaða ráðstafanir séu nauðsynlegar til að koma í veg fyrir tjón á fiskstofnum við landið vegna veiða á ungfiski.


Samþykkt á Alþingi 4. apríl 1962.