Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
82. löggjafarþing 1961–62.
Þskj. 811  —  99. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um raforkumál á Snæfellsnesi og í Dalasýslu.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hlutast til um, að hraðað verði tengingu raforkuvirkjana á Snæfellsnesi við aðalraforkukerfi landsins, og skal því lokið eigi síðar en árið 1966. Enn fremur skal hraða tengingu rafveitna í Dalasýslu við aðalorkuveitur.


Samþykkt á Alþingi 16. apríl 1962.