Ferill 141. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


91. löggjafarþing 1970–71.
Þskj. 864  —  141. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


     um athugun möguleika á byggingu og rekstri flöskuverksmiðju á Íslandi.




    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að kanna, hvort tiltækilegt sé að stofna og reka flöskuverksmiðju á Íslandi.
    Meðal annars sé haft í huga við þá könnun, hvort unnt sé að nýta fyrir starfsemi slíkrar verksmiðju að einhverju eða öllu leyti eitthvað af byggingum Síldarverksmiðja ríkisins, sem nú standa ónotaðar víða um land.


Samþykkt á Alþingi 5. apríl 1971.