Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
92. löggjafarþing 1971–72.
Þskj. 867  —  60. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

     um opinberar framkvæmdir í Reykjaneskjördæmi.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera áætlun um opinberar framkvæmdir í Reykjaneskjördæmi. Verk þetta skal unnið í samráði við sveitarstjórnir í kjördæminu og byggt m.a. á þeim athugunum, sem unnið hefur verið að á vegum Samtaka sveitarfélaga í Reykjanesumdæmi um framtíðarþróun þessa svæðis.


Samþykkt á Alþingi 16. maí 1972.