Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Hanna Katrín Friðriksson
3. þm. RN, V, HKF
Hanna Katrín Friðriksson

   
Hallgrímur Benediktsson

Hallgrímur Benediktsson

Fæddur á Vestdalseyri við Seyðisfjörð 20. júlí 1885, dáinn 26. febrúar 1954. Foreldrar: Benedikt Jónsson (fæddur 15. maí 1833, dáinn 18. nóvember 1925) bóndi og trésmiður á Refsstað og að Rjúpnafelli í Vopnafirði og 2. kona hans Guðrún Björnsdóttir (fædd 3. febrúar 1864, dáin 16. október 1929) húsmóðir. Faðir Geirs Hallgrímssonar alþingismanns og ráðherra. Maki (6. júlí 1918): Áslaug Geirsdóttir Zoëga (fædd 14. ágúst 1895, dáin 15. ágúst 1967) húsmóðir. Foreldrar: Geir T. Zoëga og kona hans Bryndís Sigurðardóttir Zoëga, fædd Johnsen, dótturdóttir Brynjólfs Benedictsens þfm. Börn: Ingileif Bryndís (1919), Björn (1921), Geir (1923), Geir (1925).

Stundaði nám í Verslunarskólanum í Reykjavík 1905—1906.

Póstmaður í Reykjavík 1906—1907. Verslunarmaður þar 1907—1911. Stofnaði 1911 umboðs- og heildverslun í Reykjavík og rak hana einn til 1921, í félagi við Hallgrím Tulinius 1921—1939 (H. Benediktsson & Co.), síðan einn aftur til æviloka.

Sigurvegari í Konungsglímunni á Þingvöllum 1907. Í stjórn Eimskipafélags Íslands 1921—1954, síðast formaður. Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1926—1930 og 1946—1954, forseti bæjarstjórnar 1952—1954. Í stjórn Árvakurs hf. 1928— 1954, formaður frá 1952. Í stjórn Félags íslenskra stórkaupmanna 1928—1934 og í stjórn Verslunarráðs Íslands 1931—1950, formaður 1934—1949. Í stjórn Nóa-Síríusar hf. 1930—1954 og Ræsis hf. 1942—1954. Í stjórn Shell á Íslandi hf., síðar Skeljungs, 1937—1954. Átti sæti í landsbankanefnd 1948—1954.

Alþingismaður Reykvíkinga 1945—1949 (Sjálfstæðisflokkur).



Síðast breytt 11.08.2020.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.