Vilhjálmur Bjarnason

Þingseta
Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2013–2017 (Sjálfstæðisflokkur).
Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis júní 2020 (Sjálfstæðisflokkur).
Æviágrip
Fæddur í Reykjavík 20. apríl 1952.
Stúdentspróf MH 1972. Próf í bóklegu atvinnuflugi og blindflugi hjá Flugmálastjórn 1973. Cand.oecon.-próf frá HÍ 1977. MBA-próf frá Rutgers University, New Jersey 1997.
Starfaði á reiknistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands 1972–1973. Vann með námi hjá Seðlabanka Íslands 1974–1976 og 1995–1996. Starfaði hjá Útvegsbanka Íslands, m.a. í hagdeild og sem eftirlitsmaður útibúa 1977–1987, útibússtjóri bankans í Vestmannaeyjum 1980–1987. Starfsmaður Kaupþings hf. 1987–1988. Kennari við Iðnskólann í Reykjavík 1989–1995. Forstöðumaður verðbréfamarkaðar Fjárfestingafélagsins 1991–1993. Sérfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun og síðar Hagstofu Íslands 2000–2007. Framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta 2007–2014.
Í stjórn Samtaka fjárfesta 2000–2014, formaður 2000–2007, í varastjórn Samtaka sparifjáreigenda 2014–2016 og í stjórn frá 2016. Í nefndum á vegum viðskiptaráðuneytisins um endurskoðun laga um fjármálafyrirtæki og verðbréfasjóði frá 2009. Félagskjörinn skoðunarmaður Hins íslenska biblíufélags 2011–2016.
Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2013–2017 (Sjálfstæðisflokkur).
Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis júní 2020 (Sjálfstæðisflokkur).
Efnahags- og viðskiptanefnd 2013–2017, utanríkismálanefnd 2013–2016 og 2017.
Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2013–2016 og 2017, þingmannanefnd Íslands og ESB 2013–2016.
Hefur birt nokkrar greinar um fjármál og málefni fjármálamarkaða í innlendum og erlendum fræðiritum.
Æviágripi síðast breytt 2. febrúar 2021.