Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands

2022 nr. 6 31. janúar


Tók gildi 1. febrúar 2022. Breytt með: Forsetaúrskurði nr. 2/2023 (tók gildi 27. jan. 2023). Forsetaúrskurði nr. 8/2024 (tók gildi 21. febr. 2024).


   Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar og laga um Stjórnarráð Íslands ber stjórnarmálefni undir ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands sem hér segir:
1. gr. Forsætisráðuneyti.
Forsætisráðuneyti fer með mál er varða:
1. Stjórnskipan lýðveldisins Íslands og Stjórnarráð Íslands í heild, þar á meðal:
    a. Embætti forseta Íslands, þ.m.t. … 1) embættisgengi og embættisbústað.
    b. Alþingi.
    c. Ríkisráð Íslands.
    d. Ríkisstjórn Íslands.
    e. Skipun ráðherra og lausn.
    f. Skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.
    g. Skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta.
    h. Skiptingu starfa milli ráðherra.
    i. Ráðherranefndir.
    j. Forystu og samhæfingu innan Stjórnarráðs Íslands.
    k. Stjórnarfar almennt, þ.m.t. lög um Stjórnarráð Íslands, stjórnsýslulög og upplýsingalög.
    l. Siðareglur fyrir ráðherra og starfsmenn Stjórnarráðs Íslands.
    m. Málstefnu fyrir Stjórnarráð Íslands.
    n. Ráðstöfun skrifstofuhúsa ráðuneyta og gestahúsa ríkisstjórnarinnar, þ.m.t. Þingvallabæjarins.
    o. Ráðgjafa um upplýsingarétt almennings.
    p. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
2. Þjóðhagsmál, þar á meðal:
    a. Hagstjórn almennt.
    b. Ráðherranefndir um efnahagsmál og ríkisfjármál.
    c. Gjaldmiðil Íslands.
    d. Seðlabanka Íslands.
    e. Hagskýrslugerð og upplýsingar um landshagi.
    f. Hagstofu Íslands.
3. Mannréttindi og mannréttindasáttmála.
4. Jafnréttismál, þar á meðal:
    a. Jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
    b. Stjórnsýslu jafnréttismála.
    c. Jafna meðferð [utan vinnumarkaðar]. 2)
    d. Jafna meðferð á vinnumarkaði.
    e. Kynrænt sjálfræði.
    f. Jafnréttisstofu.
    g. Kærunefnd jafnréttismála.
    h. Jafnréttissjóð Íslands.
    i. Sérfræðinefnd um breytingar á kynskráningu barna og varanlegar breytingar á ódæmigerðum kyneinkennum barna.
5. Þjóðartákn og orður, þar á meðal:
    a. Fána Íslands og ríkisskjaldarmerki.
    b. Þjóðsöng Íslendinga.
    c. Hina íslensku fálkaorðu.
    d. Önnur heiðursmerki.
6. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
7. Annað, þar á meðal:
    a. Þjóðaröryggisráð.
    b. [Almannavarnaráð.] 2)
    c. [Vísinda- og nýsköpunarráð.] 1)
    d. Þjóðlendur og málefni óbyggðanefndar.
    e. Embætti ríkislögmanns.
    f. Umboðsmann barna.
    g. Hrafnseyri við Arnarfjörð.
    h. Greiðslu bóta vegna dóms Hæstaréttar í máli nr. 521/2017.
    i. Varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands.
    j. Vernd uppljóstrara.
    [k. Heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa.] 2)
8. Sérstök áherslumál á sviði samhæfingar:
    a. Réttlát umskipti.
    b. Velsældaráherslur.
    c. Sjálfbæra þróun.
    d. Evrópusamvinnu.
    1)Forsetaúrskurður nr. 8/2024, 1. gr. 2)Forsetaúrskurður nr. 2/2023, 1. gr.
2. gr. Dómsmálaráðuneyti.
Dómsmálaráðuneyti fer með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Ákæruvald, þar á meðal:
    a. Embætti ríkissaksóknara.
    b. Embætti héraðssaksóknara.
3. Dómstóla, aðra en félagsdóm, þar á meðal:
    a. Dómstólasýsluna.
    b. Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara.
    c. Nefnd um dómarastörf.
4. Réttarfar, þar á meðal:
    a. Meðferð einkamála.
    b. Meðferð sakamála.
    c. Aðför, kyrrsetningu, lögbann og löggeymslu.
    d. Gjaldþrotaskipti, greiðslustöðvun og nauðasamninga.
    e. Tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
    f. Nauðungarsölur.
    g. Lögbókandagerðir.
    h. Öflun sönnunargagna vegna ætlaðra brota á hugverkaréttindum.
    i. Nálgunarbann og brottvísun af heimili.
    j. Lúganósamninginn um dómsvald og um viðurkenningu og fullnustu dóma í einkamálum.
5. Réttaraðstoð, þar á meðal:
    a. Gjafsókn, þ.m.t. málefni gjafsóknarnefndar.
    b. Réttaraðstoð vegna nauðasamninga.
    c. Gagnkvæma alþjóðlega réttaraðstoð.
6. Refsirétt.
7. Refsingar fyrir hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði.
8. Skaðabótarétt og sanngirnisbætur, þar á meðal:
    a. Bætur til þolenda afbrota, þ.m.t. málefni bótanefndar um greiðslu bóta til þolenda afbrota.
    b. Sanngirnisbætur, þ.m.t. málefni úrskurðarnefndar um sanngirnisbætur.
    c. Skaðabætur utan samninga.
    d. Niðurjöfnunarmenn sjótjóns.
    9. Lögmenn, dómtúlka og skjalaþýðendur, þ.m.t. málefni úrskurðarnefndar lögmanna.
10. Framfylgd laga og reglna um undirbúning stjórnarfrumvarpa.
11. Birtingu laga og stjórnvaldserinda, þar á meðal:
    a. Lagasafn.
    b. Lögbirtingablað.
    c. Stjórnartíðindi.
12. Eignarrétt og veðrétt, þar á meðal:
    a. Eignar- og afnotarétt fasteigna.
    b. Framkvæmd eignarnáms, sem eigi ber undir annað ráðuneyti, þ.m.t. málefni matsnefndar eignarnámsbóta.
    c. Þinglýsingar.
    d. Landamerki.
    e. Landskipti.
    f. Hefð.
13. Fullnustu refsinga, þar á meðal:
    a. Fangelsi.
    b. Fangavist.
    c. Reynslulausn fanga og samfélagsþjónustu.
    d. Flutning dæmdra manna.
    e. Náðun og sakaruppgjöf.
    f. Fangelsismálastofnun.
14. [Almannavarnir, þar á meðal:
    a. Vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.] 1)
15. Leit og björgun, þar á meðal:
    a. Samræmda neyðarsvörun.
    b. Vöktun innviða.
16. Lögreglu og löggæslu, þar á meðal:
    a. [Landamærastjórn og landamæravörslu.] 1)
    b. Gæslu landhelgi og fiskimiða.
    c. Skipströnd og vogrek.
    d. Framsal og afhendingu sakamanna.
    e. Schengen.
    f. Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
    g. Erfðaefnisskrá lögreglu.
    h. Öryggisþjónustu í atvinnuskyni.
    i. Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu.
    j. Embætti ríkislögreglustjóra.
    k. Lögreglustjóraembætti.
    l. Nefnd um eftirlit með lögreglu.
17. Sjómælingar og sjókortagerð.
18. Vopnamál.
19. Áfengislög.
20. Sifjarétt, þar á meðal:
    a. Hjúskaparlög.
    b. Barnalög [og innheimtu meðlaga]. 1)
    c. Ættleiðingar.
    d. Viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl.
21. Persónurétt og persónuvernd, þar á meðal:
    a. Lögræði.
    b. Mannanöfn og málefni mannanafnanefndar.
    c. Persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
    d. Vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi.
    e. Persónuvernd.
22. Erfðarétt, lög um horfna menn og yfirfjárráð, skipti á dánarbúum.
23. Kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu.
24. Trúmál, þar á meðal:
    a. Trúfélög.
    b. Þjóðkirkjuna.
    c. Sóknargjöld.
    d. Frið vegna helgihalds.
    e. Lífsskoðunarfélög.
25. Persónuskilríki, þ.m.t. vegabréf, önnur en diplómatísk.
26. Ríkisborgararétt.
27. Málefni útlendinga, að frátöldum atvinnuleyfum, sbr. x-lið 2) 4. tölul. 3. gr., og þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd, sbr. g-lið 2. tölul. 3. gr., þar á meðal:
    a. Útlendingastofnun.
    b. Kærunefnd útlendingamála.
28. Happdrætti, veðmálastarfsemi, talnagetraunir og almennar fjársafnanir.
29. Framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, þ.m.t. sýslumenn og hreppstjóra.
30. Kosningar, þar á meðal:
    a. Kjör til forseta Íslands, kosningar til Alþingis og sveitarstjórna, þjóðaratkvæðagreiðslur og aðrar almannakosningar sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
    [b. Landskjörstjórn.] 3)
    [c.] 3) Úrskurðarnefnd kosningamála.
31. Starfsemi stjórnmálasamtaka.
32. Málefni sjóða og stofnana sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
33. Landhelgisgæslu Íslands.
    1)Forsetaúrskurður nr. 8/2024, 2. gr. 2)Hér mun átt við y-lið, sbr. forsetaúrskurð nr. 8/2024, 3. gr. 3)Forsetaúrskurður nr. 2/2023, 2. gr.
3. gr. Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti fer með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Félags- og fjölskyldumál, þar á meðal:
    a. Þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, að frátalinni ráðgjöf vegna barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir og búsetu þeirra utan heimilis, sbr. c-lið 3. tölul. 10. gr.
    b. Réttindagæslu fyrir fatlað fólk.
    c. Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
    d. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.
    e. Málefni aldraðra.
    f. Málefni innflytjenda og flóttafólks.
    g. Þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. 27. og 33. gr. laga um útlendinga og setningu reglugerða samkvæmt þeim ákvæðum, sbr. og 10. og 11. tölul. 1. mgr. 120. gr. laganna.
    h.1)
    i. Félagslega aðstoð.
    j. Félagslegan viðbótarstuðning við aldraða.
    k. Greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
    l. Félagsþjónustu sveitarfélaga, að frátöldum málefnum barna og ungmenna, sbr. d-lið 3. tölul. 10. gr.
    m. Ráðgjöf og úrræði vegna fjármála heimilanna, þ.m.t. greiðsluaðlögun einstaklinga.
    n. Umboðsmann skuldara.
    o. Ættleiðingarstyrki.
    p. Orlof húsmæðra.
    3. Lífeyristryggingar almannatrygginga, þar á meðal:
    a. Lífeyristryggingar og eftirlaun aldraðra.
    b. Tryggingastofnun ríkisins.
    c. Fjárhagsaðstoð við lifandi líffæragjafa.
4. Vinnumál, þar á meðal:
    a. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði, þ.m.t. orlof.
    b. Upplýsingar og samráð í fyrirtækjum.
    c. Aðild starfsmanna að Evrópufélögum.
    d. Starfsmenn í hlutastörfum.
    e. Tímabundna ráðningu starfsmanna.
    f. Réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum.
    g. Frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.
    h. Aðild starfsmanna við samruna félaga með takmarkaðri ábyrgð yfir landamæri.
    i. Útsenda starfsmenn og skyldur erlendra þjónustuveitenda.
    j. Aðild starfsmanna að evrópskum samvinnufélögum.
    k. Starfsmannaleigur.
    l. Aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
    m. Vinnueftirlit ríkisins.
    n. Vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
    o. Félagsdóm.
    p. Vinnumarkaðsaðgerðir.
    q. Stéttarfélög og vinnudeilur.
    r. Ríkissáttasemjara.
    s. Skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til.
    t. Atvinnuleysistryggingar.
    u. Tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví.
    [v. Tímabundinn stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.] 1)
    [w.] 1) Greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar á tímum kórónuveirufaldursins.
    [x.] 1) Atvinnutengda starfsendurhæfingu.
    [y.] 1) Atvinnuréttindi útlendinga.
    [z.] 1) Ábyrgð á launum við gjaldþrot.
    [[aa.] 1) Sorgarleyfi.] 2)
    [bb.] 1) Fæðingar- og foreldraorlof.
    [cc.] 1) Vinnumálastofnun.
    [dd.] 1) Félagsmálaskóla alþýðu.
    [ee.] 1) Framhaldsfræðslu og málefni Fræðslusjóðs.
5. Úrskurðarnefnd velferðarmála.
    1)Forsetaúrskurður nr. 8/2024, 3. gr. 2)Forsetaúrskurður nr. 2/2023, 3. gr.
4. gr. Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti fer með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Opinber fjármál að því marki sem þau eru ekki falin öðrum aðilum, þar á meðal:
    a. Stefnumörkun og áætlanagerð í opinberum fjármálum.
    b. Forsvar og gerð frumvarps til fjárlaga, fjáraukalaga og frumvarps um staðfestingu ríkisreiknings.
    c. Skuldbindingar fram yfir fjárlagaárið, þ.m.t. rekstrar- og þjónustusamninga.
    d. Almennt eftirlit með framkvæmd fjárlaga.
    e. Sjóðstýringu.
    f. Lánsfjármál og lántökur.
    g. Ríkisábyrgðir.
    h. Stuðning við nýsköpunarfyrirtæki.
    i. Tekjufallsstyrki.
    j. Viðspyrnustyrki.
    k. Fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
    [l. Styrki til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.] 1)
    [m.] 1) Stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
    [n.] 1) Reikningshald ríkisins.
    [o.] 1) Fjársýslu ríkisins.
    [p.] 1) ÍL-sjóð.
3. Eignir ríkisins, þar á meðal:
    a. Fasteignir, verðbréf og hlutabréf og fyrirsvar þeirra, þ.m.t. hlutverk ráðherra samkvæmt ákvæði til bráðabirgða V í lögum um Seðlabanka Íslands, að því marki sem þær eignir eru ekki faldar öðrum.
    b. Húsnæðismál ríkisstofnana.
    c. Bifreiðamál ríkisstofnana.
    d. Opinberar framkvæmdir.
    e. Ríkisjarðir, land í eigu ríkisins og samninga vegna nýtingar vatns- og jarðhitaréttinda, náma og jarðefna á landi utan þjóðlendna.
    f. Nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni.
    g. Jarðasjóð ríkisins.
    h. Bankasýslu ríkisins.
    i. Ríkiseignir.
    j. Framkvæmdasýslu ríkisins.
4. Tekjuöflun ríkisins, þar á meðal:
    a. Skattamál, svo sem álagningu, uppgjör og aðra skattframkvæmd, skattrannsóknir og úrskurði í skattamálum.
    b. Ríkisskattstjóra og Skattinn.
    c. Skattrannsóknarstjóra.
    d. Yfirskattanefnd.
    e. Tolla og vörugjöld, þ.m.t. tollgæslu og innheimtu opinberra gjalda.
    f. Tollgæslu Íslands.
    g. Aðrar tekjur ríkissjóðs, þ.m.t. arðgreiðslur, leigutekjur og ýmis gjöld.
5. Starfsmannamál ríkisins, þar á meðal:
    a. Almenna stefnumótun í mannauðsmálum ríkisins og fræðslu.
    b. Launa- og kjaramál.
    c. Launavinnslu.
    d. Réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
6. Lífeyrismál, þar á meðal:
    a. Lífeyrismál starfsmanna ríkisins, forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara.
    b. Skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
    c. Starfsemi lífeyrissjóða, að því marki sem þau verkefni eru ekki falin öðrum.
    d. Viðbótartryggingavernd og séreignarsparnað, þ.m.t. starfstengda eftirlaunasjóði.
    e. Stuðning til kaupa á fyrstu íbúð.
7. Hagstjórn og fjármálastöðugleika, þar á meðal:
    a. Mat á þróun og horfum í efnahagsmálum og gerð þjóðhagsspár.
    b. Samhæfingu fjármála- og hagstjórnarstefnu fyrir hið opinbera.
    c. Vexti og verðtryggingu.
    d. Gjaldeyrismál.
    e. Setningu reglna um reikningsskil og ársreikning Seðlabanka Íslands skv. 4. mgr. 37. gr. laga um Seðlabanka Íslands.
    f. Fjárhagsleg samskipti við Seðlabanka Íslands í tengslum við eiginfjármarkmið bankans, ráðstöfun hagnaðar hans og samkomulag um nánari framkvæmd innköllunar skv. 40. gr. laga um Seðlabanka Íslands.
    g. Fjármálastöðugleikaráð.
8. [Fjármálamarkað, lagaumgjörð og eftirlit, þar á meðal:
    a. Fjármálafyrirtæki.
    b. Fasteignalán til neytenda.
    c. Markaði fyrir fjármálagerninga.
    d. Prófnefnd verðbréfaréttinda.
    e. Lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði.
    f. Upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.
    g. Lög um yfirtökur.
    h. Fjármögnunarviðskipti með verðbréf.
    i. Verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga.
    j. Verðbréfasjóði.
    k. Peningamarkaðssjóði.
    l. Rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
    m. Upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.
    n. Evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði.
    o. Evrópska langtímafjárfestingarsjóði.
    p. Lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta.
    q. Fjárhagslegar viðmiðanir.
    r. Aðgerðir gegn markaðssvikum.
    s. Skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
    t. Opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
    u. Innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
    v. Tryggingarsjóð vegna fjármálafyrirtækja.
    w. Afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.
    x. Greiðslur yfir landamæri í evrum.
    y. Vátryggingar og vátryggingastarfsemi.
    z. Vátryggingasamstæður.
    aa. Ökutækjatryggingar.
    bb. Dreifingu vátrygginga.
    cc. Náttúruhamfaratryggingu Íslands.
    dd. Úrskurðarnefnd náttúruhamfaratryggingar.
    ee. Greiðsluþjónustu.
    ff. Öryggi fyrirmæla í greiðslukerfum og verðbréfauppgjörskerfum.
    gg. Greiðslureikninga.
    hh. Milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur.
    ii. Skortsölu og skuldatryggingar.
    jj. Viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.
    kk. Lánshæfismatsfyrirtæki.
    ll. Evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.] 2)
9. Almennar umbætur í starfsemi hins opinbera, þar á meðal:
    a. Skipulag og stjórnarhætti í ríkisstarfsemi.
    b. Opinber innkaup og málefni Ríkiskaupa.
    c. Kærunefnd útboðsmála.
    d. Hagræðingu í ríkisrekstri og árangursstjórnun.
    e.1)
    f. Stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
10. Annað, þar á meðal:
    a. Kröfulýsingu í þjóðlendur.
    b. Verslun með áfengi og tóbak og málefni Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins.
    c. Málefni og eigendaforsvar fjölþjóðlegra lánastofnana, annarra en þeirra sem fara með þróunaraðstoð, þ.m.t. gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum (NIB), Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF), þ.m.t. skipun í sjóðsráð skv. 2. málsl. 2. mgr. 31. gr. laga um Seðlabanka Íslands.
    1)Forsetaúrskurður nr. 2/2023, 4. gr. 2)Forsetaúrskurður nr. 8/2024, 4. gr.
5. gr. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti fer með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Vísindi og rannsóknir, þar á meðal:
    a. Háskóla.
    b. Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema.
    c. Rannsóknastarfsemi, einkum á sviði grunnrannsókna.
    d. Vísindastarfsemi sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
    e. Opinberan stuðning við vísindarannsóknir.
    f. Vandaða starfshætti í vísindum.
    g. Nefnd um vandaða starfshætti í vísindum.
    h. Rannsóknarsjóð.
    i. Innviðasjóð.
    j. Samtök um evrópska rannsóknarinnviði.
    k.1)
    l. Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum.
    m. Rannsóknamiðstöð Íslands.
3. Námsaðstoð, þar á meðal:
    a. Námslán.
    b. Menntasjóð námsmanna.
    c. Málskotsnefnd Menntasjóðs námsmanna.
4. Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands.
5. Nýsköpun, tækniþróun og stuðningsumhverfi atvinnulífs, þar á meðal:
    a. Atvinnuþróun, tæknirannsóknir og stafræna umbreytingu samfélags og atvinnulífs.
    b. Opinberan stuðning við nýsköpun, sbr. þó h-lið 2. tölul. 4. gr.
    c. Opinberar fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum.
    d. Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóð.
    e. Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins.
    f. Tækniþróunarsjóð.
6. Hugverkaréttindi, þar á meðal:
    a. Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar, þ.m.t. einkaleyfi, vörumerki, félagamerki, uppfinningar starfsmanna og hönnun.
    b. Hugverkastofu.
    c. Áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar.
[7. Endurnot opinberra upplýsinga.] 2)
[8.] 2) Iðnað, þar á meðal:
    a. Handiðnað og annan iðnað sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
    b. Stóriðju og fjárfestingarsamninga.
    c. Starfsréttindi í iðnaði.
    d. Löggildingu starfsheita í tækni- og hönnunargreinum.
[9. Viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.] 2)
[10.] 2) Fjarskipti, þar á meðal:
    a. Fjarskiptanet, þó ekki efni sem sent er á fjarskiptanetum.
    b. Fjarskiptaþjónustu, gagnaflutninga og fjarskiptarekstur.
    c. Fjarskiptavernd.
    d. Öryggi rafrænna samskipta og netöryggi.
    e. Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.
    f. Íslensk landshöfuðlén.
    g. Eftirlit með fjarskiptum.
    h. Rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti.
    i. Fjarskiptasjóð.
    j. Fjarskiptastofu og málefni úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála.
    1)Forsetaúrskurður nr. 8/2024, 5. gr. 2)Forsetaúrskurður nr. 2/2023, 5. gr.
6. gr. Heilbrigðisráðuneyti.
Heilbrigðisráðuneyti fer með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Sjúkratryggingar, þar á meðal:
    a. Sjúklingatryggingu.
    b. Slysatryggingar almannatrygginga.
    c. Sjúkratryggingastofnun.
3. Heilbrigðisþjónustu, þar á meðal:
    a. Landspítala.
    b. Sjúkrahúsið á Akureyri.
    c. Heilsugæslu.
    d. Heilbrigðisstofnanir.
    e. Sérhæfða heilbrigðisþjónustu utan stofnana.
    f. Endurhæfingarstarfsemi og meðferðarstofnanir.
    g. Tæknifrjóvgun.
    h. Þungunarrof.
    i. Ófrjósemisaðgerðir.
    j. Sjúkraskrár og gagnasöfn á heilbrigðissviði.
    k. Réttindi sjúklinga.
    l. Starfsréttindi í heilbrigðisþjónustu.
    m. Heyrnar- og talmeinastöð.
    n. Hjúkrunarheimili.
    o. Dvalarheimili.
    p. Dagdvöl aldraðra.
    q. Framkvæmdasjóð aldraðra.
4. Lyfjamál, þar á meðal:
    a. Lyf, [þ.m.t. dýralyf]. 1)
    b. Ávana- og fíkniefni.
    c. Lækningatæki.
    d. Bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum.
    e. Lyfjastofnun.
5. Lýðheilsu og forvarnir, þar á meðal:
    a. Heilsueflingu.
    b. Áfengis- og vímuvarnir.
    c. Tóbaksvarnir.
    d. Sóttvarnir.
    e. Sóttvarnalækni.
    f. Ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir.
    g. [Nikótínvörur], 1) rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
    h. Geislavarnir.
    i. Geislavarnir ríkisins.
6. Græðara.
7. Lífvísindi og lífsiðfræði, þar á meðal:
    a. Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.
    b. Vísindasiðanefnd.
    c. Lífsýnasöfn.
    d. Líffæragjafir og líffæraígræðslu.
    e. Ákvörðun dauða, dánarvottorð og krufningar.
    8. Embætti landlæknis.
    1)Forsetaúrskurður nr. 2/2023, 6. gr.
7. gr. Innviðaráðuneyti.
Innviðaráðuneyti fer með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Samgöngur í lofti, á láði og legi, þar á meðal:
    a. Flugvelli, vegi, hafnir, vita og sjóvarnir.
    b. Skipulag og uppbyggingu samgöngukerfisins.
    c. Viðhald og rekstur samgöngukerfisins.
    d. Farþegaflutninga og farmflutninga á landi, þ.m.t. almenningssamgöngur.
    e. Landflutninga.
    f. Samgönguöryggi.
    g. Samgönguvernd.
    h. Samgönguáætlun.
    i. Rannsókn samgönguslysa, þ.m.t. málefni rannsóknarnefndar samgönguslysa.
    j. Samgöngutækjaskrár.
    k. Eftirlit með skráningu og búnaði samgöngutækja.
    l. Eftirlit með loftferðum og umferð ökutækja og skipa.
    m. Leiðsögu-, vöktunar-, upplýsinga- og eftirlitskerfi samgangna.
    [n. Áhafnir skipa.] 1)
    [o.] 1) Réttindamál fagaðila í skipum, loftförum og ökutækjum.
    [p.] 1) Köfun.
    [q.] 1) Slysavarnaskóla sjómanna.
    [r.] 1)1)
    [s.] 1) Skipagjald.
    [t.] 1) Samgöngustofu.
    [u.] 1) Vegagerðina.
3. Sveitarstjórnarmál, þar á meðal:
    a. Stjórnsýslu og verkefni sveitarfélaga.
    b. Tekjustofna og fjármál sveitarfélaga.
    c. Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
    d. Mörk sveitarfélaga.
    e. [IHS.] 2)
4. Skipulagsmál, þar á meðal:
    a. Skipulagslög.
    b. Skipulag haf- og strandsvæða.
    c. Skipulagsstofnun.
5. Húsnæðis- og mannvirkjamál, þar á meðal:
    a. Húsnæðislán.
    b. Greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga.
    c. Greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
    d. Húsnæðissjóð.
    e. Húsaleigumál.
    f. Húsnæðisbætur.
    [g. Sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.] 2)
    [h.] 2) Húsnæðissamvinnufélög og byggingarsamvinnufélög.
    [i.] 2) Almennar íbúðir.
    [j.] 2) Húsnæðissjálfseignarstofnanir.
    [k.] 2) Húsnæðismálasjóð.
    [l.] 2) Fjöleignarhús.
    [m.] 2) Frístundabyggð.
    [n.] 2) Kærunefnd húsamála.
    [[o.] 2) Fasteignaskrá og fasteignamat.] 1)
    [p.] 2) Eftirlit með mannvirkjum og gerð þeirra.
    [q.] 2) Brunavarnir.
    [r.] 2) Byggingarvörur.
    [s.] 2) Eftirlit með öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga í mannvirkjum.
    [[t.] 2) Yfirfasteignamatsnefnd.] 1)
    [u.] 2) Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
6. Byggðamál, þar á meðal:
    a. Byggðaáætlun og sóknaráætlanir.
    b. Svæðisbundna flutningsjöfnun.
    c. Póstþjónustu, póstrekstur og eftirlit með póstþjónustu.
    d. Byggðastofnun.
7. Skráningu einstaklinga, lögheimili og aðsetur, … 1) þar á meðal:
    a. Þjóðskrá Íslands.
    b.1)
    1)Forsetaúrskurður nr. 2/2023, 7. gr. 2)Forsetaúrskurður nr. 8/2024, 6. gr.
8. gr. Matvælaráðuneyti.
Matvælaráðuneyti fer með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Sjávarútveg og veiði í ám og vötnum, þar á meðal:
    a. Stjórn fiskveiða, þ.m.t. vernd og nýtingu fiskstofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins.
    b. Veiðigjöld.
    c. Rannsóknir og eftirlit með vernd og nýtingu fiskstofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins.
    d. Hafrannsóknastofnun.
    e. Framkvæmd fiskveiðisamninga við erlend ríki.
    f. Fiskvinnslu og aðra vinnslu úr sjávarfangi.
    g. Skiptaverðmæti sjávarafla.
    h. Uppboðsmarkað sjávarafla.
    i. Lax- og silungsveiði.
    j. Rannsóknir á lífríki í ám og vötnum og ráðgjöf um nýtingu þeirra.
    k. Fiskræktarsjóð.
    l. Matsnefnd samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði.
    m. Nýsköpun og þróun í sjávarútvegi.
    n. Fiskistofu.
    o.1)
    p. Verðlagsstofu skiptaverðs.
    q. Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
3. Eldi og ræktun nytjastofna í sjó eða ferskvatni, þar á meðal:
    a. Fiskeldi.
    b. Gjaldtöku vegna fiskeldis í sjó.
    c. Fiskeldissjóð.
    d. Umhverfissjóð sjókvíaeldis.
4. Landbúnað, þar á meðal:
    a. Framleiðslu landbúnaðarafurða.
    b. Búfjárhald.
    c. Verðlagningu og sölu á búvörum.
    d. Velferð dýra.
    e. Varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði og yrkisrétt.
    f. Framkvæmd búnaðarlaga.
    g. Stuðning ríkisins við framleiðslu og markaðsmál, þ.m.t. framkvæmd búvörulaga.
    h. Almenn jarðamál, ábúðarmál, afrétti, fjallskil og girðingar, þ.m.t. málefni úttektarmanna og yfirmatsnefndar samkvæmt ábúðarlögum.
    i. Nýtingu hlunninda jarða.
    j. Eftirlit með sáðvöru og áburði.
    k. Hagþjónustu landbúnaðarins.
    l. Úrskurðarnefndir á sviði landbúnaðar.
    m. Bjargráðasjóð.
5. Matvæli og matvælaöryggi, þar á meðal:
    a. Inn- og útflutning landbúnaðarafurða.
    b. Inn- og útflutning dýra og plantna og erfðaefna þeirra.
    c. Dýralæknaþjónustu, þ.m.t. starfsleyfi dýralækna.
    d. Heilbrigðiseftirlit með framleiðslu, vinnslu, inn- og útflutningi og markaðssetningu matvæla og fóðurs.
    e. Heilbrigði dýra og varnir gegn dýrasjúkdómum.
    f. Heilbrigði plantna og varnir gegn plöntusjúkdómum.
    g. Matvælarannsóknir.
    h. Matvælasjóð.
    i. Matvælastofnun.
6. [Skóga, skógrækt og landgræðslu, þar á meðal:
    a. Land og skóg.] 2)
    7. Eftirlit með timbri og timburvöru.
    1)Forsetaúrskurður nr. 2/2023, 8. gr. 2)Forsetaúrskurður nr. 8/2024, 7. gr.
9. gr. Menningar- og viðskiptaráðuneyti.
Menningar- og viðskiptaráðuneyti fer með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Viðskiptalíf, almenna lagaumgjörð, þar á meðal:
    a. Opinberar eftirlitsreglur.
    b. Rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.
    c. Frum- og milliinnheimtu peningakrafna.
    d. Víxla, tékka og skuldabréf.
    e. Fyrningu kröfuréttinda.
    f. Samningarétt.
    g. Ábyrgðarmenn.
    h. Viðskiptaleyndarmál.
    i. Félagarétt, þ.m.t. bókhald, endurskoðendur og ársreikninga.
    j. Fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri.
    k. Skráningu fyrirtækja og félaga og málefni fyrirtækjaskrár, ársreikningaskrár og almannaheillafélagaskrár.
    l. Skráningu raunverulegra eigenda.
    m. Félög til almannaheilla.
    n. Sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur.
    o. Framkvæmd útboða.
    p. Samkeppnismál.
    q. Ríkisaðstoð.
    r. Samkeppniseftirlitið.
    s. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála.
    t. Staðla og Staðlaráð Íslands.
    u. Faggildingu.
    v. Löggildingu endurskoðenda.
    w. Endurskoðendaráð.
3. Fjölmiðla, þar á meðal:
    a. Mynd- og hljóðmiðla.
    b. Netmiðla.
    c. Prentmiðla.
    d. Eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum.
    e. Ríkisútvarpið.
    f. Fjölmiðlanefnd.
4. Höfundarrétt, þar á meðal:
    a. Fylgiréttargjald samkvæmt höfundalögum.
    b. Sameiginlega umsýslu höfundarréttar.
    c. Úrskurðarnefnd höfundarréttarmála.
5. Ábyrgðarreglur og efnisréttindi á netinu, þ.m.t. höfundarrétt.
6. Ferðamál, verslun og þjónustu, þar á meðal:
    a. Skipan ferðamála.
    b. Ferðagjafir.
    c. Ferðamálastofu.
    d. Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
    e. Veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
    f. Bílaleigur.
    g. Skapandi greinar í þágu atvinnuþróunar.
    h. Sölu fasteigna og skipa.
    i. Eftirlitsnefnd fasteignasala.
    j. Verslunarskrár, firmu og prókúruumboð.
    k. Umboðssöluviðskipti.
    l. Mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.
7. Neytendamál, þar á meðal:
    a. Eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
    b. Ráðstafanir gegn óréttmætri takmörkun á netumferð o.fl.
    c. Vöruöryggi, þ.m.t. vörur unnar úr eðalmálmum.
    d. Neytendalán.
    e. Lausafjárkaup, fasteignakaup, neytendakaup og þjónustukaup.
    f. Úrskurðaraðila á sviði neytendamála.
    g. Pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun.
    h. Ferðatryggingasjóð.
    i. Skiptileigusamninga fyrir afnot af húsnæði í orlofi eða frístundum.
    j. Neytendasamninga.
    k. Neytendastofu.
    l. Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa.
    m. Áfrýjunarnefnd neytendamála.
8. Safnamál, þar á meðal:
    a. Bókasöfn, þ.m.t. Landsbókasafn Íslands.
    b. Skjalasöfn, þ.m.t. Þjóðskjalasafn Íslands.
    c. Listasöfn, þ.m.t. Listasafn Íslands.
    d. Minjasöfn, þ.m.t. Þjóðminjasafn Íslands og Náttúruminjasafn Íslands.
    e. Safnasjóð.
9. Listir og menningu, þar á meðal:
    a. Bókmenntir.
    b. Myndlist.
    c. Listskreytingar opinberra bygginga.
    d. Sviðslist, þ.m.t. sviðslistaráð og sviðslistasjóð.
    e. Tónlist, þ.m.t. Sinfóníuhljómsveit Íslands og tónlistarsjóð.
    f. Tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.
    g. Kvikmyndir, þ.m.t. Kvikmyndamiðstöð Íslands og Kvikmyndasafn Íslands.
    h. Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar.
    i. Starfslaun listamanna.
    j. Stuðning við listir og kynningu íslenskrar listar innan lands og utan.
    k. Miðstöð íslenskra bókmennta og bókmenntasjóð.
    l. Stuðning við útgáfu bóka á íslensku.
    m. Listskreytingasjóð.
    n. Þjóðleikhúsið.
    o. Íslenska dansflokkinn.
    p. Félagsheimili.
    q. Grænlandssjóð.
10. Íslensku, þar á meðal:
    a. Íslenska tungu og íslenskt táknmál.
    b. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
    c. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.
    d. Örnefni og bæjarnöfn.
    e. Örnefnanefnd.
10. gr. Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Mennta- og barnamálaráðuneyti fer með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Fræðslumál, þar á meðal:
    a. Leikskóla.
    b. Grunnskóla.
    c. Framhaldsskóla.
    d. Námsstyrki, þ.m.t. námsstyrkjanefnd.
    e. Lýðskóla.
    f. Tónlistarskóla.
    g. Listaskóla.
    h. Námskrárgerð.
    i. Námsgögn.
    j. Námsmat.
    k. Vinnustaðanámssjóð.
    l. Úrskurðarnefnd vegna kostnaðar við skólagöngu fósturbarna.
    m. [Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu.] 1)
    n. Starfsréttindi bókasafns- og upplýsingafræðinga.
    o. Lögverndun starfsréttinda leik-, grunn- og framhaldsskólakennara.
    p. Starfsréttindi náms- og starfsráðgjafa.
    q.2)
3. Málefni barna og ungmenna, þar á meðal:
    a. Samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
    b. Barnavernd.
    c. Ráðgjöf vegna barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir og búsetu þeirra utan heimilis skv. 20. og 21. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og setningu reglugerðar skv. 3. mgr. 21. gr., sbr. og 6. tölul. 1. mgr. 40. gr. laganna.
    d. Málefni barna og ungmenna skv. VIII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
    e. Barna- og fjölskyldustofu.
    f. Ráðgjafar- og greiningarstöð.
    g. Æskulýðslög.
4. Íþróttamál, þar á meðal:
    a. Málefni þjóðarleikvanga.
    b. Frjáls félagasamtök.
    c. Íþróttasjóði.
    d. Íslenskar getraunir.
    e. Launasjóð stórmeistara í skák og Skákskóla Íslands.
    f. Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.
    1)Forsetaúrskurður nr. 8/2024, 8. gr. 2)Forsetaúrskurður nr. 2/2023, 9. gr.
11. gr. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti fer með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Náttúruvernd og sjálfbæra þróun, þar á meðal:
    a. Verndun lífríkis og líffræðilegrar fjölbreytni, svo sem vernd vistkerfa, búsvæða, tegunda og erfðaefnis, þ.m.t. í hafi.
    b. Vernd jarðfræðilegrar fjölbreytni, þ.m.t. jarðmyndana og landslags.
    c. Verndun náttúruminja eða sérstakra vistkerfa á hafsbotni til að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar sem ráðuneytið fer með framkvæmd á.
    d. Vernd tiltekinna vistkerfa og jarðminja.
    e. Friðlýst svæði og önnur verndarsvæði.
    f. Svæði sem njóta verndar samkvæmt sérlögum vegna náttúru eða landslags.
    g. Þjóðgarðinn á Þingvöllum.
    h. Vatnajökulsþjóðgarð.
    i. Úrbætur og uppbyggingu á aðstöðu til móttöku ferðamanna í þjóðgörðum, á friðlýstum svæðum og öðrum verndarsvæðum.
    j. Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
    k. Náttúruverndarsjóð.
    l. Náttúrurannsóknastöðina við Mývatn.
    m. Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.
3. Menningarminjar, þar á meðal:
    a. Skil menningarverðmæta til annarra landa.
    b. Verndarsvæði í byggð.
    c. Minjastofnun Íslands.
4. Rannsóknir og skráningu upplýsinga um náttúru landsins, hafsins og hafsbotnsins, þar á meðal:
    a. Umhverfisrannsóknir og umhverfisvöktun.
    b. Rannsóknir á jarðrænum auðlindum á landi og á hafsbotni öðrum en olíu og ráðgjöf um nýtingu þeirra.
    c. Íslenskar orkurannsóknir.
5. Söfnun upplýsinga um umhverfis- og auðlindamál og sjálfbærni á norðurslóðum, þ.m.t. málefni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar.
6. Stjórn vatnamála.
7. Umhverfisgæði, þar á meðal:
    a. Hljóðvist.
    b. Hollustuhætti og mengunarvarnir.
    c. Varnir gegn mengun hafs og stranda.
    d. Fráveitur.
    e. Efnalög.
    f. Meðferð elds og varnir gegn gróðureldum.
8. Erfðabreyttar lífverur.
9. Umhverfisábyrgð.
10. Hringrásarhagkerfi, þar á meðal:
    a. Meðhöndlun úrgangs.
    b. Úrvinnslugjald, þ.m.t. Úrvinnslusjóð.
    c. Ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.
11. Loftslagsmál, þar á meðal:
    a. Losun gróðurhúsalofttegunda.
    b. [Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.] 1)
    c. Loftslagsráð.
    d. Loftslagssjóð.
12. Landupplýsingar og grunnkortagerð, þ.m.t. Landmælingar Íslands.
13. Veður og náttúruvá, þar á meðal:
    a. Veðurþjónustu.
    b. Vöktun á náttúruvá.
    c. Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
    d. Rannsókn á orsökum ofanflóðs og afleiðingum þess ef manntjón hlýst af.
    e. Veðurstofu Íslands.
14. Veiðistjórnun og alþjóðaverslun með villt dýr og plöntur, þar á meðal:
    a. Stjórn veiða villtra fugla og villtra spendýra, annarra en sjávarspendýra.
    b. Vernd og friðun villtra dýra og villtra fugla.
    c. Alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna í útrýmingarhættu.
15. Framkvæmd alþjóðasamninga um umhverfismál.
16. Umhverfismat framkvæmda og áætlana.
17. Verndar- og orkunýtingaráætlun.
18. Orkumál og auðlindanýtingu, þar á meðal:
    a. Öryggi raforkukerfisins.
    b. Raforkumarkað.
    c. Jöfnun kostnaðar við húshitun og dreifingu raforku.
    d. Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
    e. Forystu um orkusparnað, nýtingu orku og orkuskipti.
    f. Visthönnun vöru sem notar orku og orkumerkingar.
    g. Hitaveitur, þ.m.t. gjaldskrár og stofnstyrki.
    h. Leyfi til nýtingar á auðlindum í jörðu og á, í eða undir hafsbotni.
    i. Leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíuleit).
    j. Vatnalög.
    k. Orkustofnun.
    l. Orkusjóð.
    m. Úrskurðarnefnd raforkumála.
19. Umhverfisstofnun.
20. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
    1)Forsetaúrskurður nr. 8/2024, 9. gr.
12. gr. Utanríkisráðuneyti.
Utanríkisráðuneyti fer með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Utanríkismál, þar á meðal:
    a. Skipti forseta Íslands og annarra þjóðhöfðingja.
    b. Sendiskrifstofur og ræðisskrifstofur Íslands erlendis.
    c. Sendiráð og ræðisskrifstofur erlendra ríkja á Íslandi.
    d. Skipti við erlend ríki, þ.m.t. norræna samvinnu.
    e. Réttindi Íslendinga og íslenska hagsmuni erlendis.
    f. Samninga við önnur ríki og gerð þeirra og framkvæmd tiltekinna samninga, sbr. meðal annars lög nr. 90/1994, nr. 57/2000, nr. 93/2008 og nr. 58/2010.
    g. Aðild Íslands að alþjóðlegum samtökum, stofnunum, ráðstefnum og fundum er varða opinbera hagsmuni og eigi ber undir annað ráðuneyti samkvæmt ákvæðum þessa úrskurðar eða eðli máls. Friðhelgi og forréttindi alþjóðastofnana.
    h. Diplómatísk vegabréf, þjónustuvegabréf og áritun vegabréfa.
    i. Kynningu Íslands og íslenskra efna með öðrum þjóðum nema slík mál séu lögð til annars ráðuneytis.
    j. Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun.
    k. Varnarmál, aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO), varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna, samskipti og samstarf við erlend ríki, hermálayfirvöld og alþjóðastofnanir á sviði öryggis- og varnarmála, varnarsvæði, öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli og önnur öryggissvæði, þ.m.t. skipulags- og mannvirkjamál, rekstur mannvirkja og eigna Atlantshafsbandalagsins á Íslandi, þ.m.t. íslenska ratsjár- og loftvarnakerfið (IADS).
    l. Útflutningsverslun.
    m. Undirbúning og framkvæmd viðskiptasamninga.
    n. Skipti Íslands við alþjóðleg viðskiptasamtök.
    o. Vörusýningar erlendis.
    p. Þróunarsamvinnu, friðargæslu og neyðarhjálp.
    q. Hafréttarmál.
    r. [Afvopnun, takmörkun vígbúnaðar og útflutningseftirlit.] 1)
    s. [Framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna.] 1)
    1)Forsetaúrskurður nr. 8/2024, 10. gr.
13. gr. Stjórnarmálefni, stefnumótunarhlutverk og úrlausn ágreinings.
Stjórnarmálefni sem tilgreind eru í úrskurði þessum vísa til þeirra verkefna sem framkvæmdarvaldinu er falið að fara með samkvæmt stjórnarskrá og almennum lögum. Ráðherrar bera ábyrgð á framkvæmd stjórnarmálefna og stefnumótun á málefnasviðum sem tilgreind eru í úrskurði þessum eins og þeim er skipt á milli þeirra í forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra.
Málefni sem eigi er getið í 1.–12. gr. skulu lögð til ráðuneytis þar sem þau eðli sínu samkvæmt eiga heima.
Nú leikur vafi á um, eða ágreiningur rís um, hvaða ráðuneyti skuli með mál fara og sker forsætisráðherra þá úr.
14. gr. Gildistaka.
Forsetaúrskurður þessi, sem á sér stoð í 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 4. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, öðlast gildi 1. febrúar 2022.