08.05.1979
Efri deild: 90. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4459 í B-deild Alþingistíðinda. (3531)

7. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Jón Helgason:

Herra forseti. Hæstv. sjútvrh. hefur gert grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á frv. um ráðstafanir vegna ákvörðunar Seðlabanka Íslands um breytingu á gengi íslenskrar krónu frá því það var afgreitt fyrr á þessu þingi frá hv. Ed. Fjh.- og viðskn. hefur athugað málið eftir þær breyt. sem hv. Nd. gerði á því, og meiri hl. n. mælir með að frv. verði samþ. eins og það er nú komið aftur til Ed., en minni hl. mun sitja hjá við afgreiðslu málsins.