11.10.1979
Sameinað þing: 1. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (8)

Lausnarbeiðni ríkisstjórnarinnar

Aldursforseti (Oddur Ólafsson):

Fulltrúar þingflokka hafa nú fengið að tjá sig um yfirlýsingu forsrh. Ég vonast til þess, að við þær óeðlilegu aðstæður, sem nú ríkja, sætti hv. alþm. sig við að ekki verði neinar frekari almennar umræður hér um yfirlýsinguna. Hins vegar ef einhver vill gera örstutta aths. er orðið laust.

Umr. er lokið um yfirlýsingu forsrh. Kosningu embættismanna þingsins verður frestað til kl. 2 á morgun.