07.05.1980
Neðri deild: 71. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2476 í B-deild Alþingistíðinda. (2342)

6. mál, tímabundið vörugjald

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Hér er fyrst og fremst um að ræða að staðfesta brbl. sem var samstaða um að staðfesta með fulltrúum stjórnarflokkanna og fulltrúa Alþfl. Þessi till. kom ekki fram við meðhöndlun málsins í nefnd. Hún kom eftir að málið hafði verið meðhöndlað í nefnd og hefur því ekki hlotið venjulega meðhöndlun í þinginu, eins og venja er til um slík mál, og ég segi því nei.