24.01.1980
Efri deild: 27. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í B-deild Alþingistíðinda. (632)

68. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Frsm. (Stefán Guðmundsson):

Forseti. Nefndin hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á lögum um útflutningsgjald af sjávarafurðum, nr. 5 13. febr. 1976. N. leggur til að það verði samþ. eins og það hefur verið afgreitt frá Nd.

Geir Gunnarsson var fjarverandi afgreiðsluna, en undir nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Lárus Jónsson, Egill Jónsson, Karl Steinar Guðnason, Guðmundur Karlsson og Guðmundur Bjarnason.