28.01.1981
Neðri deild: 45. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1964 í B-deild Alþingistíðinda. (2207)

151. mál, þingsköp Alþingis

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Ég vil aðeins upplýsa í þessu sambandi, að ráðherra nýtur ekki forgangs á mælendaskrá nema í þeim málaflokkum sem undir hann heyra. Þó á þetta ekki við um hæstv. forsrh., sem jafnan nýtur forgangs. En t.a.m. hæstv. dómsmrh, nýtur ekki forgangs um orðið í landbúnaðarmálum o.s.frv.

Þetta á aðeins við um forgang þeirra þegar um málaflokk viðkomandi ráðherra er að tefla, nema — eins og ég sagði — þar sem lýtur að hæstv. forsrh. sem jafnan hefur forgang.