02.02.1981
Neðri deild: 46. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2056 í B-deild Alþingistíðinda. (2274)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Ég vil taka fram að hv. 6. þm. Reykv. óskaði eftir að fá að gera fsp. utan dagskrár til formanns fjh.- og viðskn. hv. deildar um málsmeðferð. Ég get alls ekki leyft í þessu falli almennar eldhúsdagsumræður um efnahagsmál.