24.02.1981
Sameinað þing: 54. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2515 í B-deild Alþingistíðinda. (2692)

Umræður utan dagskrár

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Hv. 1. þm. Reykv. hefur borið fram fsp. til hæstv. forsrh., til mín og hæstv. sjútvrh. um vinnubrögð innan ríkisstj. Hæstv. forsrh. hefur svarað þeirri fsp. eins og efni er til á þessari stundu og hef ég að sinni fyrir mitt leyti engu við svar hæstv. forsrh. að bæta.