04.05.1981
Efri deild: 91. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3918 í B-deild Alþingistíðinda. (3966)

158. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Í þessu frv. er lögð til framlenging á skatti á skrifstofu- og verslunarhúsnæði sem hér var tekinn upp fyrir tæpum þremur árum. Í samræmi við fyrri afstöðu okkar við afgreiðslu þessa máls í fyrra leggur meiri hluti nefndarinnar til að frv. verði samþykkt.