11.11.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í B-deild Alþingistíðinda. (432)

Umræður utan dagskrár

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég skal ekki vefengja þann úrskurð forseta að fresta umr. um þessa fsp. þar sem hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson skorast undan að svara fsp. hv. þm. Sighvats Björgvinssonar og þar sem hæstv. utanrrh. getur ekki svarað fyrir hæstv. viðskrh., en hvort tveggja sýnir ráðleysið og dáðleysið í stjórnarherbúðunum, undirstrikar þau gagnrýnisorð sem við höfum hér flutt.