14.05.1981
Neðri deild: 94. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4409 í B-deild Alþingistíðinda. (4453)

133. mál, heilbrigðisþjónusta

Frsm. (Jóhann Einvarðsson):

Herra forseti. Ég mæli hérna fyrir nál, heilbr.- og trn. varðandi frv. til breyt. á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 57 frá 1958. Er það í stuttu máli þannig, að n. er sammála um að mæla með samþykkt þess eins og það kom frá Ed. og voru allir nm. viðstaddir nema Pálmi Jónsson.