19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1899 í B-deild Alþingistíðinda. (1631)

Þingfrestun

Forseti (Jón Helgason):

Þessi fundur Alþingis er hinn síðasti fyrir jólahlé. Ég vil leyfa mér að þakka hv. alþm. ágætt samstarf það sem af er þessu þingi og umburðarlyndi í minn garð. Ég þakka varaforsetum og skrifurum fyrir aðstoð þeirra, enn fremur skrifstofustjóra og öllu starfsliði Alþingis öðru fyrir ágætlega unnin störf á því ári sem nú er senn að líða. Ég óska hv. alþm. og starfsmönnum Alþingis ásamt fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég óska utanbæjarmönnum góðrar heimferðar og heimkomu og vænti þess, að við megum öll hittast hér heil til starfa á nýju ári að loknu jólaleyfi.