04.02.1982
Sameinað þing: 48. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2225 í B-deild Alþingistíðinda. (1883)

106. mál, öryggismál sjómanna

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. og sjútvrh. fyrir þessi svör, sem ég tel fullnægjandi að sinni, og þykir að sjálfsögðu sérstaklega vænt um að hæstv. ráðh. skuli bera lof á teikningar Sigmunds Jóhannssonar á þessu sviði þótt hann sé kannske ekki jafnsammála teikningum hans á 4. síðu Morgunblaðsins daglega.