03.05.1982
Neðri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4497 í B-deild Alþingistíðinda. (4253)

178. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að svara hér einstökum hugarburði hv. þm. Friðriks Sophussonar í sambandi við þetta mál, en á grundvelti þeirra umræðna, sem hér hafa orðið, og óánægju manna með afgreiðstu á málum tel ég rétt að fjh.- og viðskn. taki þetta mál til athugunar að nýju og mun beita mér fyrir því.