04.05.1982
Efri deild: 81. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4601 í B-deild Alþingistíðinda. (4358)

299. mál, ábyrgð vegna norrænna fjárfestingalána

Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar deildar hefur fjallað um þetta frv. Eins og fram kemur í grg. með frv. er hér um að ræða lið í aukinni samvinnu Norðurlanda um verkefni utan Norðurlanda í því skyni að efla atvinnu og atvinnulíf á Norðurlöndum og einnig samskipti Norðurlanda við þróun atvinnulífs annars staðar í veröldinni. Hér er um að ræða ákveðna tilraunastarfsemi í nokkur ár. Það er sameiginlegt álit okkar í nefndinni, að Íslendingar eigi að taka þátt í þessari samvinnu Norðurlandaþjóðanna. Hliðstæð frv. hafa verið lögð fyrir þjóðþing annarra Norðurlanda. Leggjum við til að frv. verði samþykkt.