13.10.1982
Sameinað þing: 2. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (14)

Embættisfærsla sýslumanns á Höfn í Hornafirði

Stefán Jónsson:

Herra ferseti. Til þess að taka af allan efa þá er ég þeirrar skoðunar — og tala sem gamall fagmaður í fréttamennsku — þá er ég þeirrar skoðunar, að framkoma sýslumanns (Forseti: Ekki efnislega umræðu.) í þessu máli — ég sagði, til þess að taka af allan efa um hvatirnar á bak við svar mitt — að framkoma sýslumanns hafi verið eðlileg og þakkarverð frá sjónarmiði þeirra sem áttu að segja frá atburðum þarna. Ég er aftur á móti jafn eindregið hinnar skoðunarinnar, að það sé fáránlegt að synja um þessa fsp. og gera þm. upp getsakir um hvatir til þessarar fsp., og segi því já.