11.03.1983
Sameinað þing: 64. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2991 í B-deild Alþingistíðinda. (3031)

Um þingsköp

Forseti (Jón Helgason):

Vegna orða hv. síðasta ræðumanns vil ég skýra frá því, að ég tilkynnti deildaforsetum um ákvörðun mína áður en þingflokksfundur Framsfl. var haldinn, svo að það stenst ekki sem hv. síðasti ræðumaður sagði. En ég vil aðeins skírskota til þess, sem ég hef sagt áður við umr. um þingsköp, af hverju ég tel að eigi og vil afgreiða þessa till. nú og get ekki fallist á að það auki virðingu Alþingis að láta alltaf umr. í Sþ. víkja fyrir deildafundum. Það er kannske fyrst og fremst sú ástæða sem er fyrir því að ég tók þessa ákvörðun.