12.04.1984
Sameinað þing: 81. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4688 í B-deild Alþingistíðinda. (4080)

Varamaður tekur þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 10. apríl 1984.

Stefán Valgeirsson, 3. þm. Norðurl. e., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sinnt þingstörfum á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, þar sem 1. varaþm. Framsfl. í Norðurl. e. situr þegar á Alþingi, að 2. varamaður, Valgerður Sverrisdóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jóhanna Sigurðardóttir,

forseti Nd.

Þessu bréfi fylgir kjörbréf Valgerðar Sverrisdóttur. Ég vil leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til athugunar. Á meðan verður fundi frestað í fimm mínútur. — [Fundarhlé.]