07.11.1983
Efri deild: 12. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í B-deild Alþingistíðinda. (448)

50. mál, tímabundið vörugjald

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Með frv. því sem hér hefur verið lagt fram um breyt. á lögum nr. 107 frá 1978, um sérstakt tímabundið vörugjald, er lagt til að gildistími innheimtu sérstaks vörugjalds verði framlengdur og gjaldið innheimt í eitt ár til viðbótar, þ.e. á árinu 1984.

Samkv. frv. til fjárlaga fyrir árið 1984 er gert ráð fyrir gjaldtöku þessari og eru áætlaðar tekjur af innheimtu þess um 1 140 millj. kr. Gjaldið er bæði lagt á innfluttar vörur og innlenda framleiðslu, sem falla undir þá vöruflokka sem taldir eru upp í nefndum lögum, og er gert ráð fyrir að af innfluttum gjaldskyldum vörum verði vörugjaldstekjur um 990 millj. kr., en 150 millj. kr. af innlendri framleiðslu. Ekki er gert ráð fyrir neinum breytingum á þeim vöruflokkum sem gjald þetta nær til og verður gjaldið því eftir sem áður innheimt í tveimur gjaldflokkum, þ.e. 24% af vörum í lægri gjaldflokki, en 30% í þeim hærri.

Ég tel ekki ástæðu til á þessu stigi að hafa um þetta frekari orð og legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umr.