03.05.1984
Sameinað þing: 85. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5154 í B-deild Alþingistíðinda. (4532)

3. mál, sala ríkisbanka

Frsm. 1. minni hl. (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um till. til þál. um sölu ríkisbanka. Ég vil leyfa mér að lesa hér, með leyfi forseta, álit 1. minni hl.:

„Nefndin hefur fjallað um till. til þál. um sölu ríkisbanka og leggur 1. minni hl. n. til að hún verði felld.

Fjarverandi afgreiðslu málsins voru Þorsteinn Pálsson og Guðrún Helgadóttir“.

Undir þetta nál. skrifa Ólafur Þ. Þórðarson, Eggert Haukdal og Pétur Sigurðsson.