31.01.1985
Sameinað þing: 42. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2550 í B-deild Alþingistíðinda. (2021)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Helgi Seljan):

Ég dreg ekkert úr mikilvægi þessa máls og nauðsyn á umr. um það, en ég vek athygli á því að þessi umr. hefur nú þegar staðið í tvo og hálfan tíma og fer nú mjög að sneiðast um þann tíma sem forsetar ætluðu til umr. af þessu tagi. Sýnir það enn einu sinni hver nauðsyn er að reyna að setja ákveðnar reglur og ákveðnar skorður við umr. af þessu tagi. En ég vil, vegna þeirra sem enn eiga eftir að tala hér, óska eftir því að menn stilli máli sínu svo í hóf sem þeir geta og þá kannske ekki síður máli sínu almennt til þess að vekja ekki enn frekari umr. hér og lengri.