23.05.1985
Neðri deild: 74. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5632 í B-deild Alþingistíðinda. (4890)
86. mál, áfengislög
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég tel að með samþykkt þessa frv. muni drykkjuskapur aukast, einkum á vinnustöðum. Ég býst við að samþykki frv. stuðli að aukinni áfengisneyslu unglinga. Ég óttast að samþykki frv. verði mörgum einstaklingum og fjölskyldum til ógæfu. Og þess vegna segi ég nei.