14.06.1985
Efri deild: 99. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6561 í B-deild Alþingistíðinda. (5914)

523. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Davíð Aðalsteinsson:

Virðulegi forseti. Eins og hv. þdm. rekur minni til þá var flutt brtt. við þetta frv. hér í Ed. þegar það var hér til umræðu. Hún varðaði fjárfestingarsjóðina og þarf ekki að skýra það frekar, það er öllum svo í fersku minni. Í Nd. var gerð breyting við ákvæði til brb. sem varðar ráðstöfun ónýtts skattafsláttar, þ. e. að meðan ákvæði laga um eignarskattsauka er í gildi skal með hann fara á sama hátt og eignarskatt varðandi ráðstöfun ónýtts skattafsláttar. Þessi till. skýrir sig að mínum dómi sjálf.

Fjh.- og viðskn. Ed. hefur ekkert við þessa till. að athuga, síður en svo, og leggur til að frv. verði samþykkt með þeirri breytingu.