20.06.1985
Neðri deild: 108. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7089 í B-deild Alþingistíðinda. (6489)

Starfslok neðri deildar

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd þdm. þakka hæstv. forseta hans hlýju orð og góðu óskir í garð okkar og fjölskyldna okkar. Nú er komið að lokum langs og óvenjulegs þinghalds. Ég þakka hæstv. forseta ágæta fundarstjórn í vetur á erfiðu þingi. Hann hefur stýrt fundum af sanngirni og réttsýni. Síðustu dægrin hefur verið erfitt að stjórna fundum hér í deild, en hæstv. forseta og varaforsetum hefur tekist það af prýði.

Ég vona að þetta hlýja og fallega sumar, sem við höfum öll hlakkað til að njóta, verði hæstv. forseta og fjölskyldu hans hamingjuríkt og heilladrjúgt og ég vona einnig að við munum hitta hann heilan og hressan í haust. Ég vil biðja hv. þdm. að taka undir og árétta þessar óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.].