19.12.1985
Neðri deild: 39. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1931 í B-deild Alþingistíðinda. (1646)

168. mál, Aflatryggingarsjóður sjávarútvegsins

Frsm. meiri hl. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 51 28. apríl 1983, um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins, frá meiri hl. sjútvn. Þar segir svo:

„Nefndin fjallaði um frv. á fundum sínum. Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt. Guðmundur Einarsson skilar séráliti.“

Undir þetta nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Garðar Sigurðsson, Gunnar G. Schram og Guðmundur H. Garðarsson.