18.12.1986
Neðri deild: 29. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (1950)

251. mál, almannatryggingar

Frsm. sjútvn. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. sjútvn. um frv. til l. um Stofnfjársjóð fiskiskipa. Nefndin hefur rætt frv. og er sammála um að mæla með samþykkt þess eins og það kemur frá Ed. Undir þetta skrifa allir nefndarmenn sjútvn., Stefán Guðmundsson, Garðar Sigurðsson, Gunnar G. Schram, Halldór Blöndal, Guðmundur H. Garðarsson, Ingvar Gíslason og Guðmundur Einarsson.