08.12.1987
Neðri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1624 í B-deild Alþingistíðinda. (1166)

179. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (Jón Kristjánsson):

Þess skal getið vegna umræðu um þetta mál sem nú hefst að við ætlum okkur tíma til kl. 6 til þessarar umræðu. Þá hafa komið óskir um þingflokksfundi og verður orðið við því. Það hefur ekki verið rætt um kvöldfund í kvöld og því mun hann ekki verða og ég vona að tíminn nýtist vel fram að sex til umræðunnar án þess að ég sé að fara fram á það við þm. að þeir komi ekki öllu til skila sem menn vilja koma að í þessari umræðu. Ég get þess að það má búast við að farið verði fram á kvöldfund á morgun og verður látið vita um það í tíma.