28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3202 í B-deild Alþingistíðinda. (2251)

1. mál, fjárlög 1988

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég tel margt brýnna að leysa í þágu Alþingis og alþm. en húsnæðismál. Ég hygg að bið verði á því að reist verði sú bygging sem verið er að leggja til að hönnuð verði til loka. Ég held að menn ættu að nota þann tíma til að hugsa sitt ráð betur en gert hefur verið. Ég segi nei.