06.01.1988
Neðri deild: 47. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3696 í B-deild Alþingistíðinda. (2584)

181. mál, stjórn fiskveiða

Forseti (Jón Kristjánsson):

Í þessu sambandi vil ég segja það að ég hef engan dóm lagt á ummæli ráðherra ríkisstjórnarinnar, aðeins sagt það að umræða um þetta dagskrármál hafi verið fullkomlega eðlileg í alla staði og að atkvæði muni verða greidd um þetta mál á fullkomlega eðlilegan hátt og með þeim hætti sem þm. gera sjálfir upp við samvisku sína þegar umræðu er lokið hér.