23.03.1988
Neðri deild: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6085 í B-deild Alþingistíðinda. (4154)

293. mál, áfengislög

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Hæstv. heilbrmrh. gerði grein fyrir atkvæði sínu hér fyrir nokkrum mínútum. Það kom fram í máli hans að hann taldi áfengt öl minna skaðlegt en aðra vímugjafa. Hann viðurkenndi þar með skaðsemi eða hugsanlega skaðsemi áfengs öls, en sagði þó já. Með sömu rökum og komu fram hjá hæstv. heilbrmrh., þá segi ég nei.