18.04.1988
Sameinað þing: 70. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6501 í B-deild Alþingistíðinda. (4502)

Töf á afgreiðslu rekstrarlána til bænda

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Vegna þeirra orða sem hér hafa fallið bæði hjá hv. 2. þm. Vestf. og hv. 5. þm. Reykv. vil ég taka það skýrt fram að það samkomulag sem ég vitnaði til var milli viðskiptabankanna annars vegar og viðskiptabanka þeirra, Seðlabankans, hins vegar, og svo við afurðastöðvar landbúnaðarins og það er að sjálfsögðu ekki nein ráðherraákvörðun. En hitt er rétt að málið var tekið upp á borð þeirra manna sem ég nefndi og þeirra stofnana að frumkvæði landbrh. sem lætur sér eins og vera ber annt um hagi þeirrar greinar sem hann fer með stjórnarfarslegt forræði fyrir.