06.05.1988
Neðri deild: 93. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7673 í B-deild Alþingistíðinda. (5692)

433. mál, sala fasteigna Grænmetisverslunar landbúnaðarins

Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um heimild fyrir fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs til að selja fasteignir Grænmetisverslunar landbúnaðarins að Síðumúla 34 og jarðhús í Ártúnsbrekku við Elliðaár í Reykjavík.

Á árinu 1986 var undirritaður samningur milli Sölusamtaka íslenskra matjurtaframleiðenda, skammstafað SÍM, og ríkissjóðs um sölu eigna Grænmetisverslunar landbúnaðarins með fyrirvara um samþykki Alþingis. Á fjárlögum síðasta árs var heimild til að selja ofangreindar eignir, sbr. 6. gr., lið 522, en sú heimild var ekki nýtt einkum af tveimur eftirgreindum ástæðum.

Í fyrsta lagi: Ekki var talið að forsendu heimildarinnar um að fasteignirnar nýttust áfram í þágu samtaka framleiðenda matjurta væri fullnægt.

Í annan stað: Upplýsingar lágu fyrir um slæma rekstrarafkomu SÍM og að samtökin áformuðu að selja hluta fasteignanna til að mæta þeim fjárhagsvanda sem leiddi af slæmri rekstrarafkomu.

Við afgreiðslu fjárlaga þessa árs var ákveðið að endurnýja ekki þessa heimild, heldur boðað að lagt yrði fyrir Alþingi sérstakt frv. um sölu nefndra eigna. Frv. er flutt til þess að afla fjmrh. heimildar til þess að ganga endanlega frá ráðstöfun og sölu eigna Grænmetisverslunar landbúnaðarins samkvæmt framansögðu.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til, herra forseti, að þessu máli verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.