10.05.1988
Neðri deild: 101. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7916 í B-deild Alþingistíðinda. (6046)

431. mál, virðisaukaskattur

Þórhildur Þorleifsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég get ekki látið hjá líða að ítreka það enn einu sinni að við kvennalistakonur munum aldrei samþykkja skattlagningu á nauðþurftir fólks og við teljum bæði mat og menningu til nauðþurfta.

Fyrst ég er komin hingað vil ég líka vekja athygli á því að hæstv. menntmrh. hefur ekki enn sagt hug sinn um skattlagningu á menningu og má ég kannski láta í ljósi þá frómu ósk að hann geri það nú. Ég segi já.