24.11.1987
Neðri deild: 14. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1175 í B-deild Alþingistíðinda. (783)

116. mál, læknalög

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Vegna þeirrar umræðu sem varð hér áðan vildi ég mega beina þeirri ósk til forseta að hann fari fram á að þingskjalið, sem við vorum að afgreiða rétt í þessu, verði prentað upp með athugasemdum við einstakar greinar. Ég held að það mundi létta nefndinni störf og vil því fara þess á leit.