133. löggjafarþing — 34. fundur, 24. nóv. 2006.
fjárlög 2007.
1. mál
Virðulegi forseti. Guð láti á gott vita. Ég leyfi mér þó að spyrja hv. formann fjárlaganefndar hvort hann hyggist þá beita sér fyrir því að farið verði að óskum forstjóra sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi varðandi þörf fyrir aukin fjárframlög til að rétta af hallann sem hefur verið á sjúkrahúsinu og heilbrigðisstofnuninni þar.