136. löggjafarþing — 36. fundur,  26. nóv. 2008.

tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan tvö í dag, að loknum umræðum um störf þingsins, fer fram umræða utan dagskrár um eflingu gjaldeyrisvaraforðans. Málshefjandi er hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir. Forsætisráðherra Geir H. Haarde verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.